Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 3.–6. janúar 201418 Sport
Ökuþórinn Michael Schumacher liggur enn í dái á sjúkrahúsi
Á
stand ökuþórsins fyrrver-
andi Michaels Shumacher
er stöðugt þrátt fyrir að
hann sé enn í lífshættu.
Þetta sagði umboðsmað-
ur hans, Sabine Kehm, fyrir utan
sjúkrahúsið í Grenoble á miðviku-
dag. „Hann er enn í lífshættu og
tvísýnt um batahorfur.“
Michael Shumacher varð fyrir
heilaskaða þegar hann lenti í hörð-
um árekstri á skíðum á sunnudag.
Hann var að skíða utan brautar
með 14 ára syni sínum þegar hann
renndi á stóran stein. Hann var
með hjálm en hann brotnaði og
þessi mesti ökuþór í sögu Formúlu
1 höfuðkúpubrotnaði illa.
Er haldið köldum
Schumacher hefur gengist undir
margar aðgerðir á heila, frá því
óhappið varð, en hann er alvanur
skíðum. Aðgerðirnar hafa flestar
miðað að því að létta á þrýstingi
á heilann vegna blóðsöfnunar.
Á þriðjudag sýndi Schumacher
svolitlar framfarir en óvíst er hvort
eða hvenær hann kemst til meðvit-
undar. Hann er í dái og líkami hans
hefur verið kældur, til að reyna að
draga úr bólgum.
Shumi, eins og aðdáendur kalla
hann, varð á ferli sínum sem öku-
þór sjöfaldur heimsmeistari í
Formúlu 1; tvö ár í röð með Benett-
on og fimm ár í röð með Ferrari,
árin 2000 til 2004. Hann hætti að
keyra í lok árs 2006 en sneri aftur
á brautina árið 2010, og ók þá fyrir
Mercedes. Hann lét af kappakstri í
hitteðfyrra, 2012.
Bestur í sögunni
Hann vann hvorki fleiri né færri en
91 keppni í Formúlu 1 og var eft-
ir aldamótin ósigrandi á keppn-
isbrautinni. Hann er handhafi
ótal meta á kappakstursbrautinni.
Enginn hefur orðið heimsmeistari
oftar eða unnið fleiri keppnir. Hann
á fjölmörg brautarmet og er sá ök-
umaður sem flestar keppnir hefur
unnið á einu keppnistímabili. Árið
2004 vann hann 13 af 18 keppn-
um. Samkvæmt opinberri heima-
síðu Formúlu 1 er hann samkvæmt
tölfræðinni „mesti ökuþór í sögu
Formúlu 1.“
Skíði, hestar og fallhlífarstökk
Eftir að hann lagði stýrið á hilluna,
ef svo má að orði komast, á árinu
2012, hefur Schumacher einbeitt
sér að öðrum áhugamálum. Þess-
um mikla íþróttamanni er margt
til lista lagt; hann er góður skíða-
maður, vanur fallhlífarstökkvari
og er duglegur að sinna hesta-
mennsku og þykir einnig liðtækur
knattspyrnumaður.
Óvíst er hvort Schumacher
nái heilsu á ný. Skurðlæknar hafa
látið hafa eftir sér að það gæti tek-
ur vikur eða mánuði áður en nokk-
uð liggur fyrir um batahorfur Þjóð-
verjans. n
Árangur
Shumachers
Ár - Keppnislið - Árangur
n 1990 - Jordan/Benetton - 14. sæti
n 1992 - Benetton - 3. sæti
n 1993 - Benetton - 4. sæti
n 1994 - Benetton - Heimsmeistari
n 1995 - Benetton - Heimsmeistari
n 1996 - Ferrari - 3. sæti
n 1997 - Ferrari - Dæmdur úr leik
n 1998 - Ferrari - 2. sæti
n 1999 - Ferrari - 5. sæti
n 2000 - Ferrari - Heimsmeistari
n 2001 - Ferrari - Heimsmeistari
n 2002 - Ferrari - Heimsmeistari
n 2003 - Ferrari - Heimsmeistari
n 2004 - Ferrari - Heimsmeistari
n 2005 - Ferrari - 3. sæti
n 2006 - Ferrari - 2. sæti
n 2010 - Mercedes - 9. sæti
n 2011 - Mercedes - 8. sæti
n 2012 - Mercedes - 13. sæti
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Umdeildur
Schumacher sveifst
einskis til að ná árangri
n Á ferli sínum þykir hann hafa verið
harðsnúinn ökumaður, jafnvel óvæginn,
og átti tvisvar þátt í umdeildum óhöpp-
um á brautinni sem höfðu úrslitaáhrif á
það hver varð heimsmeistari.
Í fyrra skiptið, árið 1994, lenti hann
utan brautar og skemmdi bílinn. Hann
hafði leitt kappaksturinn. Á hálfum
hraða, á biluðum bíl, keyrði hann í
veg fyrir Damon Hill, sem hefði orðið
heimsmeistari ef hann hefði komist
fram úr. Báðir bílar voru óökuhæfir og
Schumacher vann.
Schumacher gerði tilraun til að leika
svipaðan leik í baráttu gegn Jacques
Villeneuve árið 1997. Villeneuve, sem
var stigi á eftir Shumacher í stigakeppni
ökuþóra, var í þann mund að taka fram
úr honum. Þegar Schumacher varð þess
var beygði hann snögglega inn í hlið
Villeneuve. Schumacher hafnaði sjálfur
utan brautar og var dæmdur úr leik, en
Villeneuve varð heimsmeistari.
„Hann er enn í
lífshættu og
tvísýnt um batahorfur
Sá besti
Schumacher
var á ferli sínum
sem ökuþór
harðsnúinn og
sigursæll.
Myndir rEutErSÓvíst hvort
hann nær sér
Vinsæll Stuðningsmenn hafa safnast saman fyrir utan sjúkrahúsið þar sem kappinn dvelur.
Solskjær
stýrir Cardiff
Norðmaðurinn Ole Gunnar
Solskjær hefur verið ráðinn
knattspyrnustjóri velska
knattspyrnuliðsins Cardiff. Fé-
lagið, sem leikur í ensku úrvals-
deildinni, hefur ekki riðið feitum
hesti frá því sem liðið er leiktíð-
ar og hefur sankað að sér 17 stig-
um í 20 leikjum. Liðið er einu
sæti frá fallsæti. Ole Gunnar gerði
garðinn frægan hjá Manchester
United og átti þar farsælan feril.
Hann hefur þjálfað í Noregi eft-
ir að ferlinum lauk, árið 2007, og
segir að hann hafi lengi dreymt
um að stýra liði í enska boltan-
um. Efstur á óskalista stjórans
er sagður Íslendingurinn Alfreð
Finnbogason.
Kári hleypur
fyrir ÍR
Langhlauparinn Kári Steinn
Karlsson, margfaldur Íslands-
meistari í langhlaupum, er
genginn í raðir ÍR. Hann hefur
undanfarin ár keppt fyrir Breiða-
blik en þjálfarinn hans, Gunnar
Páll Jóakimsson, er ÍR-ingur.
Fleiri íþróttamenn gengu í raðir
ÍR nú í byrjun árs; langstökkvar-
inn Þorsteinn Ingvarsson, kast-
arinn Guðni Valur Guðnason og
bræðurnir Tristan Freyr og Krist-
er Blær, synir Jóns Arnars Magn-
ússonar, fyrrverandi tugþrautar-
kappa. Mbl.is greinir frá þessu.