Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2014, Page 25
Heilsa
3. janúar 2014
S
aga Garðarsdóttir hefur
stundað íþróttir frá unga
aldri og segist eiga fjöl-
breyttan íþróttaferil að
baki. Hún þjálfar nú lík-
amsræktarhópinn Saga Class, en
hann samanstendur af nokkrum
vinkonum úr Hlíðunum sem
hittast á Klambratúni tvisvar
í viku og stunda fjölbreyttar
æfingar undir harðri stjórn
Sögu.
Töff stuðkonur
Saga Class-hópurinn var
myndaður af Tinnu Lind
Gunnarsdóttur, leikkonu
og vinkonu Sögu.
„Tinna Lind hafði
fengið þá hugmynd
að hana langaði til að
hreyfa sig meira en vildi
ekki kaupa sér kort í lík-
amsræktarstöð. Og þar
sem hana langaði til að
stunda líkamsrækt utan
dyra brá hún á það ráð að
hóa saman vinkonunum
í hverfinu og fá einhvern
til að koma og þjálfa þær.
Og af því að hún vissi að
ég hef verið mikið í leik-
fimi og ýmsum íþróttum
þá hringdi hún í mig og
spurði hvort ég hefði
áhuga á þessu,“ segir
Saga og bætir við að
hún hafi ekki hugsað sig
tvisvar um.
„Mér fannst þetta
hljóma mjög fyndið og
skemmtilegt svo ég sam-
þykkti þetta. Síðan hefur
hópurinn stækkað og er
orðinn þetta líka ógeðs-
lega skemmtilegt sam-
ansafn af töff stuðkonum
úr Hlíðunum og öðrum
bæjarhlutum. Þetta er
nefnilega svo skemmti-
legt að konur víðs vegar
að hafa verið að bætast í
hópinn.“
Brandarakunnátta
nauðsynleg
„Það hjálpar mjög mik-
ið að þekkja einhvern í
hópnum af því að ég er
nú ekki að gera þetta fyrir neinar
stórkostlegar fjárhæðir,“ segir Saga,
spurð hvort hópurinn sé opinn öll-
um áhugasömum.
„Þetta er því smá klíka en það
sem hjálpar þér til að komast inn
er annaðhvort að þekkja einhvern
í hópnum eða að kunna alveg
ógeðslega marga skemmtilega
brandara.“
Líkt og fyrr segir stundar Saga
Class-hópurinn æfingar sínar á
Klambratúni, en um er að ræða
blöndu af hinum ýmsu leikfimi-
æfingum.
„Þetta er einhvers konar blanda
af Boot Camp, Víkingaþreki og æf-
ingum sem ég hef lært í fótbolta
og íþróttalýðháskólanum sem ég
var í. Svo gerum við líka æfingar úr
hallærislegri, gamaldags leikfimi
þannig að þetta er svona sitt lítið af
hverju. Ég vel það besta úr öllu.“
Fólk mætir á eigin ábyrgð
Saga hefur stundað íþróttir af
miklum móð frá því að hún var
ung stelpa.
„Ég hef verið í fótbolta, hand-
bolta, íþróttalýðháskóla og á skíð-
um í Noregi. Ég á mjög fjölbreytt-
an og skrýtinn íþróttaferil að baki,“
segir hún en tekur þó fram að hún
sé ekki menntaður íþróttakennari
og taki því ekki ábyrgð á meiðslum
nemenda sinna.
„Ég hef ekkert próf upp á það
að enginn muni slasast þannig að
ég biðla til lesenda að kæra mig
ekki. En ég kalla mig heldur ekki
leikfimiþjálfara, heldur myndi ég
frekar segja að ég væri leikfimileik-
ari,“ segir hún og bætir við að fólk
mæti á eigin ábyrgð í tímana.
„Fólk hefur líka verið að gubba
algjörlega á eigin ábyrgð í tímun-
um og svo var ein kona sem fór til
læknis um daginn, eftir æfingu.
Við höfðum tekið svo mikið af
magaæfingum og hún fékk eitt-
hvað í magann en var svo rosa-
lega montin þegar læknirinn sagði
að hún væri komin með íþrótta-
meiðsl. Hann sagði að þetta væru
„hardcore“ íþróttameiðsl sem að
fullt af mjög þekktum íþróttaköpp-
um væru með. Þannig að við erum
allavega að hamast.“ n
horn@dv.is
Velur bestu
æfingarnar
Saga stýrir leikfimi á Klambratúni
m
y
n
d
k
r
iS
Ti
n
n
m
a
g
n
ú
SS
o
n
U m s j ó n : V i k t o r í a H e r m a n n s d ó t t i r / v i k t o r i a @ d v . i s