Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2014, Page 49
Helgarblað 3.–6. janúar 2014 Lífsstíll 41
Vill íslenskan hönnuð
n Alberto Bonaldo sækir nýjar hugmyndir á ferðalögum n Á íslenska kærustu
É
g er stoltur af því að eiga fyrir
tæki sem er meira en 75 ára
gamalt,“ segir Alberto Bonaldo,
framkvæmdarstjóri Bonaldo,
sem er löngu orðið þekkt fyrir
framleiðslu sína á húsgögnum. „Allt
sem við gerum er eingöngu framleitt
á Ítalíu af sérfræðingum á sínu sviði.“
Alberto Bonaldo var staddur hér
á landi yfir áramótin ásamt Erlu Láru
Ástvaldsdóttur, kærustu sinni, en þau
hafa verið saman í eitt ár. Húsgagna
fyrirtækið þykir meðal flottustu fyrir
tækja sinnar tegundar í heiminum og
hefur verslunin Casa í Skeifunni selt
vörur þeirra í áratug. Alberto heim
sótti Casa meðan dvöl hans stóð og
skoðaði verslunina. Blaðamaður
fékk sér sæti á stól frá Bonaldo og
ræddi við framkvæmdastjórann um
hönnun fyrirtækisins.
Hönnuðir úr öllum áttum
„Hönnuðirnir okkar koma alls stað
ar frá,“ segir Alberto. „Línan okkar er
gerð af 20 hönnuðum sem eiga það
allir sameiginlegt að vera virtir í sínu
starfi. Einn af þeim hefur unnið eftir
sóknarverðustu hönnunarverðlaun
Ítalíu og annar hefur verið valinn
besti hönnuður Evrópu. Við erum
mjög stolt af þessum árangri.“
Alberto ferðast um allan heim
inn þar sem honum gefst tækifæri
til þess að sækja sér innblástur og fá
hugmyndir að nýjum vörum. Dag
leg skrifstofustörf heilla Alberto lítið
og á hann í miklum samskiptum við
hönnuði fyrirtækisins um hvernig
megi feta ótroðnar slóðir.
Gefur ungum hönnuðum tækifæri
„Á hverju ári gefum við ungum og
upprennandi hönnuði tækifæri til
þess að kynna nýja strauma fyrir okk
ur,“ segir Alberto. „Á síðasta ári hann
aði ungur hönnuður frá Japan tvö hús
gögn undir okkar nafni. Hönnunin var
frábær og hlaut mjög góðar viðtökur,“
en í hverri viku fær Bonaldo sendar
allt að hundrað teikningar frá ungum
hönnuðum sem vilja hrífa fyrirtækið.
Ferðalangurinn hefur orðið
var við mismunandi kröfur og
væntingar viðskiptavina sinna um
allan heim og telur hann mikilvægt
að koma til móts við óskir þeirra.
Sami stóllinn getur því verið úr mis
munandi efni eftir heimsálfum til
þess að þóknast markaðnum. Al
berto vonast til þess að einn daginn
muni húsgagnafyrirtækið opna
verslun hér á landi.
Hugsar út fyrir rammann
„Hver veit nema einn daginn að svo
verði,“ segir Alberto. „Ég hefði einnig
áhuga á að vera með íslenskan hönnuð
á okkar snærum. Við höfum verið
með hönnuði alls staðar að úr heim
inum og af hverju ekki að fá íslensk
an hönnuð?“ segir hann og hefur orð
á því að á markaðnum í dag sé hægt
að finna svo margt að nauðsynlegt sé
að hugsa út fyrir rammann til þess að
vera með framsækna hönnun. n
Ingólfur Sigurðsson
ingosig@dv.is
Bifreiða- og vélaverkstæði • Álhellu 8
Hafnarfirði • Sími 577 6670 • velras.is
Er bíllinn tilbúinn fyrir veturinn?
Allar almennar bílaviðgerðir – Gírkassa- og vélaviðgerðir.
Yfirförum, gerum við og förum með í skoðun sé þess óskað.
Fljót og góð þjónusta.
Metanbreytingar
HÁTÆKNIBÚNAÐUR
EINN VIRTASTI FRAMLEIÐANDI
METANBÚNAÐAR Í EVRÓPU
HRINGDU STRAX OG FÁÐU UPPLÝSINGAR
Sparaðu bensín!
Metanvæddu bílinn!
Ástfangin Alberto
er hér með unnustu
sinni, hinni íslensku
Erlu Láru. Þau eyddu
áramótunum á Íslandi.
Hönnun Verk eftir
Bonaldo.