Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 3
Vikublað 6.–8. maí 2014 Fréttir 3 Íslenskt tal leiðbeinir notanda um allar aðgerðir Nú þegar eru fjöldi Íslendinga í fullu fjöri sem startað hefur verið í gang með hjartastuðtækjum frá Donnu. Samaritan PAD hjartastuðtæki kosta aðeins frá kr. 199.600 m/vsk. 2000 var fjölgunin mest í yngsta hópn­ um og það ár fyrirfóru níu ungmenni sér. Síðan hefur dregið úr sjálfsvígum fólks undir tvítugu og í dag eru þau eitt til þrjú á ári. „Það er enn of mikið. Við horfum til þess að á undanförn­ um árum höfum við farið hringinn í kringum landið með fræðslu fyrir fé­ lagsþjónustu, heilsugæslu, presta, kennara og námsráðgjafa sem hefur kannski orðið til þess að umræðan er að opnast og fólk vinnur meira saman.“ Aðstæður þeirra sem svipta sig lífi eru líka ólíkar. „Þetta getur gerst í hverri fjölskyldu. Stundum kemur sjálfsvígið eins og þruma úr heið­ skíru lofti en stundum hafa aðstand­ endur vitað til þess að viðkomandi hafi glímt við erfiðleika. Það kemur alltaf jafn mikið á óvart þegar einhver sviptir sig lífi, aðstandendur verða alltaf hissa og dofna og fara í gegnum allar tilfinningarnar.“ Hún segir að stundum gerist þetta á óvæntum stundum, eins og þegar alkóhólistar eru að hefja bataferli. „Þeir hafa skilið eftir sig sviðna jörð og vita ekki hvar þeir eiga að byrja að biðjast afsökunar. Ef ekkert tekur við þegar alkóhólistinn kemur úr meðferð og tengslanetið er horfið er vaxandi hætta á að hann fari aftur í neyslu eða hann hugsi með sér að hann muni aldrei komast aftur inn í þetta samfé­ lag og þá sé eins gott að hverfa, fyrir­ fara sér. Það hafa allir þörf fyrir nánd.“ Fjölda manns bjargað á hverju ári Á síðustu árum hefur verið lögð áhersla á að hjálpa fagfólki að þekkja merki kvíða, þunglyndis, depurðar og annarra geðsjúkdóma. „Þung­ lyndi er grafalvarlegur sjúkdómur sem getur leitt fólk til dauða. Bæði af því að það getur endað með því að fólk bindur enda á eigið líf og eins vegna þess að fólk hættir að hugsa um líkamlegar þarfir sínar, tekur ekki mark á líkamlegum kvillum og leitar sér síður hjálpar. Fagfólk þarf að vera vakandi fyrir því en því miður er ekki hægt að koma í veg fyrir öll sjálfsvíg. Sem betur fer er fólki þó bjargað á hverju ári. Talað er um að það séu á milli 500 og 600 sjálfsvígstilraunir gerðar á ári. Það er fólk sem fær oft og tíðum nýtt líf. Það nær botninum með sjálfsvígstilraun­ inni og fer í kjölfarið að vinna í sínum málum. Þá er fólk að vaxa út frá mikl­ um erfiðleikum.“ n Vill sneggri viðbrögð Þorleifur styður bæði gjaldfrelsi og greiðslur til foreldra vegna fátæktar A ð mati Dögunar í Reykja­ vík ætti að lengja fæðingar­ orlofið og hafa borgarrekna dagvistun að því loknu sem og hún hefjist fyrr en nú er. Við viljum aukna samfellu í dagvistunarkerfinu og að strax að loknu fæðingarorlofi taki við heild­ rænt kerfi skóla og frístundastarfs,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, odd­ viti flokksins, um áherslur Dögunar hvað varðar dagvistun barna. „Þetta kæmi í stað þess fyrirkomulags sem nú er við lýði þar sem börn fara oft, fyrst í daggæslu í einkageiranum og svo í leikskóla borgarinnar.“ Dagforeldrar starfi sem launþegar Dögun í Reykjavík hefur sett fram þá hugmynd að dagforeldrar ættu þess kost að starfa sem launþegar undir skóla og frístundarsviði borgarinnar. „Dagforeldrar í Reykjavík gegna veigamiklu hlutverki í þjónustu og umönnun barna okkar í Reykjavík. Það er því mikilvægt að viðhalda þeirri þekkingu og þeim mannauði sem skapast hefur í núverandi dag­ foreldrakerfi. Af þessum ástæðum er varhugavert að leggja þjónustu dag­ foreldra niður. Mikil fremur ætti að koma á borgarreknum ungbarna­ leikskólum til viðbótar dagforeldra­ kerfinu svo foreldrar geti valið það daggæsluform sem henti sínu barni. Þá leggur Dögun í Reykjavík áherslu á að foreldrar hafi val um að vera í fæðingarorlofi, hafa barn sitt hjá dagforeldri eða í leikskóla.“ Mik­ ill skortur er á dagforeldrum sem stendur og segir Þorleifur fulla þörf á að auglýsa eftir dagforeldrum í þeim hverfum þar sem skortur er á plássi. Þá vill hann að foreldrar eigi þess kost að fá greitt fyrir að vera heima, kjósi þeir það. „Eins ættu foreldrar sem kjósa, og geta verið heima með barn sitt fram að hefðbundnum leik­ skólaaldri, að fá greitt sem nemur niðurgreiðslu á ungbarnaleikskóla­ plássi,“ segir Þorleifur. Frístundakort tekjutengd Það kemur varla á óvart að Þorleif­ ur styðji hugmyndir Vinstri grænna um gjaldfrjálsa leikskóla, grunn­ skóla og frístundaheimili. Þorleifur segir fátækt barna í borginni krefj­ ast sneggri viðbragða en fjögurra ára aðlögunartíma sem Vinstri græn leggja til. „Dögun í Reykjavík vill for­ gangsraða með það að markmiði að stemma strax stigu við vaxandi barnafátækt í borginni með tekju­ tengingu gjaldskráa. Þannig greiði þeir sem eru hvað tekjulægstir ekk­ ert fyrir grunnþjónustu barna en þeir tekjuhæstu meira. Þá vill Dögun í Reykjavík einnig að frístundakort séu tekjutengd þannig að þau börn sem búi við fátækt á heimilum hafi sömu tækifæri og önnur börn til að taka virkan þátt í frístundastarfi.“ n Meiri stuðningur vegna fátæktar Áherslur Dögunar í málefnum barna í borginni snúa að fá- tækt þeirra. Þorleifur vill sneggri viðbrögð við aðstæðumun barna í borginni. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is sjálfsvígi foreldra leynt fyrir börnum n Þöggunin djúpstæð í vestrænni menningu n Sorgarferlið erfiðara en ella n 2.500 nýir syrgjendur á ári Þrjú sjálfsvíg á mánuði Karlar líklegri en konur til að svipta sig lífi n Á 40 sekúndna fresti fremur einn einstaklingur sjálfsvíg í heiminum. n Að minnsta kosti þrír einstaklingar fyrirfara sér á Íslandi í hverjum mánuði. n Á árunum 1999–2009 voru 382 sjálfs- víg framin á Íslandi, þar af 291 karlar. n Á sama tímabili fyrirfóru sér 29 ung- menni undir tvítugu og 28 einstaklingar 67 ára og eldri. n Frá árinu 1996 hafa að minnsta kosti þrjú börn á aldrinum 6–15 ára svipt sig lífi. n Karlar eru mun líklegri en konur til að svipta sig lífi, en konur gera mun fleiri sjálfsvígstilraunir. Að sögn Salbjargar eru fimm þættir sem þarf að hafa í huga þegar fólk lendir í tilvistarkreppu. 1. Fólk þarf viðtal við fagaðila þar sem farið er yfir stöðuna. Hvað var, það sem er og það sem er framundan varðandi markmið og annað. 2. Fólk þarf að fá fræðslu um orsök, einkenni, afleiðingar, horfur og von ef um sjúkdóm er að ræða. 3. Fólk þarf að skoða hvort lífsstíls- breytinga sé þörf. Það þarf að skoða svefninn, næringuna, hreyfinguna, sam- skipti við aðra, skólann, vinnuna og annað. 4. Fólk þarf kannski lyf, stundum í skemmri tíma, stundum lengri. 5. Fólk þarf að skoða tengslanetið, finna stuðninginn og fræða fjölskylduna því enginn er eyland. Fjölskylduvinnan er mjög mikilvæg. Fimm skref í átt að bættri líðan Mikilvægt að ræða við fjölskyldu og fagaðila „Eitt og eitt barn hefur verið í vandræðum og svipt sig lífi. Þá höfum við sagt að einelti drepur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.