Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 6.–8. maí 201430 Fólk
Fegin að vera
komin út úr
skápnum
Leikkonan Ellen Page tilkynnti
það opinberlega í febrúar að
hún væri samkynhneigð. Page
mætti nýlega í spjallþátt nöfnu
sinnar, Ellen DeGeneres, og
ræddi við hana um opinberun-
ina, þar sem hún sagði að hún
hefði aldrei verið jafn stressuð á
ævinni og þá.
Page sagði þó að eftir á að
hyggja hefði hún vitað að hún
var tilbúin. „Ég vissi að ég
myndi verða haminjusamari
fyrir vikið, þetta lá þungt á mér.
Ég skammaðist mín mikið og
var með samviskubit yfir því að
vera ekki komin út úr skápnum,“
sagði leikkonan í viðtalinu.
Veiðimálastofnun
Veiðinýting Lífríki í ám og vötnum Rannsóknir Ráðgjöf
Dagskrá:
14:00 Fundur settur
Yfirlit um starfsemi Veiðimálastofnunar
Sigurður Guðjónsson
14:20 Staða Atlantshafslaxins hér
á landi og annars staðar
Guðni Guðbergsson
14:40 Kaffihlé
15:10 Framleiðsla í íslenskum ám
Jón S. Ólafsson
15:30 Áhrif hita á smádýr í ferskvatni,
rannsóknir í Hengladölum
Elísabet R. Hannesdóttir
Hvernig verður stangveiðin í sumar?
Ársfundur Veiðimálastofnunar 2014
Verður haldinn þriðjudaginn 6. maí 2014 í sal Veiðimála-
stofnunar 3. hæð á Keldnaholti (Árleyni 22)
Allt áhugafólk velkomið
„Of grönn – svo of feit“
Tyra Banks segist þekkja sársauka þess að verða fyrir útlitsfordómum
H
ver hefði haldið að stelpa
sem var send á spítala vegna
þess að hún var of grönn
myndi síðar lenda í því að
vera kölluð of feit?“ segir fyrirsæt-
an og athafnakonan Tyra Banks
í viðtali við bandaríska tímaritið
People. Þar ræðir hún hvernig það
var að vera ung kona sem óx hratt
á tímabili en þyngdist lítið.
„Þetta sumar varð ég ellefu ára
og léttist um fimmtán kíló en tók út
vaxtarkipp. Ég var ekki einu sinni
„ofurfyrirsætu-grönn“ Þetta var
miklu verra en það. Fólk hélt að ég
væri með átröskun. Þetta var á 9.
áratugnum og þá var hungursneyð
í Eþíópíu og fólk gantaðist með út-
lit mitt,“ segir Tyra sem verður fer-
tug á þessu ári. Hún fór ítrekað
til lækna sem tóku ótal blóðpruf-
ur og sendu hana í fjölmargar
rannsóknir. Fljótlega breyttust þó
hlutirnir, hún þroskaðist og lík-
amlegur þroski fylgdi vaxtarkippn-
um sem hún hafði tekið. Þegar
hún varð svo fullorðin og hafði
lagt ofurfyrirsætuferilinn á hilluna
þyngdist hún og segist hafa upp-
lifað háð og spott fyrir þyngd sína.
„Ég veit hversu sársaukafullt það
er að vera bæði of grönn og að vera
kölluð of feit,“ segir Tyra sem segist
vilja að ungar konur fái frið til að
vera þær sjálfar, án þess að finna
fyrir útlitsfordómum. „Gallarnir
eru bestir. Þeir eru frábærir,“ segir
hún og segir að fólk eigi að fagna
fjölbreytileikanum. n
Þekkir erfiðleikana Tyra segir óþolandi
að verða fyrir útlitsfordómum á alla vegu.
Mynd ReuTeRs
Bara vinir
Mikið hefur sést til þeirra Kylie
Jenner og Justins Bieber saman
undafarið. Kylie, sem er 16 ára
og yngsta Kardashian-systir-
in, og Justin sem er tvítugur og
flestir þekkja, eru þó ekki sögð
vera að slá sér upp. Þau hafa
verið dugleg að birta myndir af
þeim saman á samskiptasíð-
um eins og Instagram, með-
al annars um helgina þegar
þau voru í Las Vegas. Ónafn-
greindur vinur Justins segir þó
í samtali við US Weekly að þau
séu bara vinir. „Þau eru bara
að skemmta sér saman, það
er ekkert meira í gangi,“ hefur
blaðið eftir honum.
Stærstu tísku-
slysin á Met Gala
n Þemað í ár líklegt til að fjölga slysum n Flottustu hönnuðir heims
C
ostume Institute Gala-
hátíðin verður haldin í
Metropolitan Museum of
Art í New York þann 6. maí.
Þangað mæta allar stjörnu-
rnar og flottustu hönnuðir heims
í sínu fínasta pússi, ballið er það
allra glæstasta á árinu og oft sagt
vera uppskeruhátíð tískuunnenda.
Á rauða dreglinum á ár verða
meðal annarra; Lupita Nyong'o,
Sarah Jessica Parker, Taylor Swift
og Kim Kardashian og margt
auðugasta fólk heims. Miði á at-
burðinn kostar tæpar þrjár millj-
ónir íslenskra króna. Þótt atburð-
urinn veki mikla athygli þá stíga
hönnuðir og stjörnur feilspor á
dreglinum. Þemað vefst fyrir þeim
og útkoman getur orðið háðuleg
fremur en glæst. Tískuslysin eru
fjölmörg og eftirminnileg.
elítuklæðnaður í ár
Á hverju ári er ákveðið þema á há-
tíðinni. Í fyrra var þemað, pönk: frá
kaos til hátísku, þar sem áherslan
var á áhrif pönks á tískuna síðan
snemma á 7. áratug síðustu ald-
ar. Framleiðendur tískufatnað-
ar fylgdu í kjölfarið og vel mátti
greina áhrif frá atburðinum í tísku-
verslunum á borð við Top Shop,
Zara og Asos.
Þemað í ár er sérlega erfitt og
líklegt að stuðullinn yfir tískuslys-
in verði geigvænlega hár. Gestir
eiga nefnilega að klæðast elítu-
klæðnaði í anda 20. aldar, svo sem
bosmamiklum samkvæmiskjólum
og háum silkihönskum.
Miðaverð hærra til að trekkja
að fínni gesti
Tengt ballinu er haldin sýningin
Charles James, handan tískunnar.
Yfirlitssýning um hönnuð sem
varð áhrifamikill í Bandaríkjunum
á síðustu öld.
Charles James var lítt þekktur
utan iðnaðarins og auðugra við-
skiptavina sinna. Á 3. áratugnum
lýstu samtíðarmenn hans hon-
um sem snillingi. Christian Dior
sagði verk hans í ætt við ljóðlist og
hönnuðir á borð við Coco Chan-
el og Elsa Schiaparelli klæddust
hönnun hans.
Anna Wintour er meðal sýn-
ingarstjóra og þess hefur verið
getið að hún hafi viljað að gestir
í ár væru vel valdir. Því er miða-
verðið mun hærra en í fyrra. Þá
hafa verið gefnir út strangir staðl-
ar, karlar skuli til að mynda bera
hvít bindi og konur hanska. n
ritstjorn@dv.is
Katie
HOlMeS
2008
Kjóllinn, skórn-
ir, farðinn.
Þetta ár var
ofurhetju-
þema, en það
er hreinlega
ekki nægilega
góð afsökun
fyrir þessum
klæðaburði.
elizaBetH
BanKS 2007
Elizabeth á ófá
tískuslysin að baki
og nokkur á Met
Gala. Hér er hún í
einkennilegum og
klunnalegum kjól.
ViCtOria
BeCKHaM
2009
Þótt hún teljist
framleiða fág-
aðan fatnað
þá steig frú
Victoria ansi
stórt feilspor á
dreglinum.
niCOle
ritCHie
Nicole Ritchie
hefur oft átt
betri daga á
dreglinum,
grátt hárið
stingur í stúf.
anna
WintOur
2004
Á þessi kona ekki
að vera leiðtogi
tískuheimsins?
Þessi samsetn-
ing gefur það
ekki til kynna.
aSHley
OlSen 2013
Hér er Ashley í
glæsilegustu gerð
kartöflupoka sem
sést hefur.