Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 9
Vikublað 6.–8. maí 2014 Fréttir 9 Gæði fara aldrei úr tísku Hitastýrð blöndunartæki Stílhrein og vönduð Segir bréf Jónínu hafa verið niðrandi n „Hef reynt að koma vitinu fyrir dóttur okkar“ n Sendi töluvert magn skilaboða S tjórn Krossins hefur sent frá sér útskýringar á bréfi sem Jónínu Benedikts- dóttur barst nýlega. Í bréf- inu var Jónínu tilkynnt að henni hefði verið vikið úr Krossinum en Sigurbjörg Gunnarsdóttir skrif- aði undir bréfið fyrir hönd stjórn- ar trúfélagsins. Sigurbjörg er dóttir Gunnars Þorsteinssonar, eiginmanns Jónínu, en hatrammar deilur hafa átt sér stað undanfarin ár um yfir- ráð í Krossinum. Að sögn Jónínu er ástæða brottrekstrarins skrif hennar til Sigurbjargar og annarra safnaðar- meðlima sem Jónína kveðst hafa ver- ið að reyna að „koma vitinu fyrir,“ í deilunum um stjórnun Krossins. Svívirðingar, áreiti og hótanir Í yfirlýsingu frá Krossinum er þetta staðfest en þar segir að skilaboð Jón- ínu hafi verið særandi, ógnandi og þau innihaldið hótanir, svívirðingar og áreiti. „Stjórn Krossins kom saman fyrir nokkrum vikum til að sammælast um viðbrögð við fjöl- mörgum skriflegum og munnleg- um orðsendingum sem höfðu borist ýmsum safnaðar meðlimum á síð- ustu misserum í gegnum netpóst, smáskilaboð, síma eða augliti til auglitis á kirkjulóð safnaðarins. Bár- ust þessar orðsendingar frá Jónínu og innihéldu þær særandi og ógn- andi fullyrðingar, svívirðingar, áreiti og hótanir. Stjórninni var ljóst að safnaðarmeðlimir voru margir farnir að veigra sér við að mæta á samkom- ur vegna þessa og því þótti brýnt að bregðast við með einhverjum hætti,“ segir í yfirlýsingunni. Í samtali við DV vill Sigurbjörg ekki útskýra þessi skilaboð Jónínu með nánari hætti en segir að þetta hafi verið töluvert mikið magn skila- boða til meðlima safnaðarins. „Ég ætla ekki að tjá mig nánar um inni- haldið,“ segir Sigurbjörg. Sýndu Jónínu nærgætni Í tilkynningunni segir einnig að reynt hafi verið að leita annarra leiða til að stöðva áreiti Jónínu. Sigurbjörg sendi henni bréf og fór fram á það í fullri vinsemd að hún hætti öllum skrif- legum og munnlegum sendingum sem innihéldu meiðandi og ókristi- legt orðaval. Hún fékk hins vegar tvö bréf sem voru „orðljót, niðrandi og í raun hatursfull,“ eins og það er orðað í tilkynningunni. „Til að sýna Jónínu nærgætni var ákveðið að halda þessu atviki frá fjölmiðlum, engin tilkynn- ing um þetta birt á heimasíðu safn- aðarins og bréf hennar ekki tíunduð,“ kemur enn fremur fram í tilkynningu Krossins. „Ég hef reynt á alla vegu“ „Málið er auðvitað flóknara því við erum að tala um dóttur okkar og þegar börnin okkar lenda í slæmum félagsskap þá reynum við að koma vitinu fyrir þau og það hef ég gert. Ég hef reynt á alla vegu,“ sagði Jón- ína í samtali við DV.is fyrir helgi. Hún kveðst hafa reynt að leita sátta í mál- inu sem varðar það að Gunnar Þor- steinsson og stuðningsmenn hans innan trúfélagsins líta svo á að sú stjórn sem nú situr sé ólögleg og sitji í umboðsleysi. „Ég vil ekki vera þátttakandi í því að kirkja sé notuð sem stríðsvett- vangur. Það er nóg af öðrum stöðum sem við getum barist. Ég hef reynt að halda mig fyrir utan þetta, nema ég hef reynt að koma vitinu fyrir dóttur okkar sem hefur lagst mjög lágt gagn- vart föður sínum. Núna síðast með því að kæra bókhald Krossgatna til sérstaks saksóknara.“ Fjaðrafok á aðalfundum Tvær fylkingar hafa tekist á síðan Gunnar var sakaður um kynferðis- brot, en í kjölfarið hætti hann sem forstöðumaður Krossins. Í byrjun apríl greindi Kastljós frá því að áfangaheimilið Krossgötur og Kross- inn hefðu óskað eftir því að sérstakur saksóknari færi yfir bókhald beggja stofnananna með tilliti til bókhalds- áranna 2008–2012. Síðustu tveir að- alfundir hafa ekki verið lausir við fjaðrafok, en árið 2012 hvatti Sigur- björg félagsmenn til þess að kjósa Gunnar, föður sinn ekki, en hún hafði staðið með honum þegar hann var ásakaður um kynferðisbrot. Á síð- asta aðalfundi, sumarið 2013, þurfti að kalla til lögreglu eftir að til átaka kom. Þar buðu þau feðgin sig bæði fram til forystu. Gunnar vill nú kom- ast aftur í stjórn trúfélagsins og hef- ur að undanförnu kallað eftir því að aðal fundur verði haldinn svo hægt verði að kjósa um nýja stjórn. n Jónína Benediktsdóttir „Málið er auðvitað flóknara því við erum að tala um dóttur okkar og þegar börnin okkar lenda í slæmum félagsskap þá reynum við að koma vitinu fyrir þau og það hef ég gert,“ segir Jónína. Mynd Sigtryggur Ari rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is Sigurbjörg gunnarsdóttir Bréfið sem Jónína fékk, þar sem henni var vísað úr Krossinum, var undirritað af Sigurbjörgu. Hún segir að Jónína hafi sent töluvert magn skilaboða. Mynd Sigtryggur Ari „Safnaðar­ meðlimir voru margir farnir að veigra sér við að mæta Er ekki harkalegt að stefna mönnum fyrir dóm? spyr Kári sem kirkjan stefndi Gefur ekki upp nafn þess hótaði Ingvar Þórðarson, annar af framleiðendum kvikmyndar- innar Vonarstræti, segist ekki ætla að gefa upp nafn útrásarvíkingsins sem hótaði að fá lögbann sett á myndina. Ingvar segir að um sé að ræða leiðindaatvik og að hann vilji ekki ræða það frekar. Nafn mannsins mun því að öllum líkindum aldrei koma fram. Vefmiðilinn Pressan greindi frá því á mánu- daginn að lög- banninu hefði verið hótað fyrir síðustu helgi. Þar var haft eftir Ingvari: „Hót- anir virka aldrei hvort eð er í líf- inu. Menn mega reyna að setja lögbann en það er ekkert hlaup- ið að því. Þá þyrftu menn að reiða fram ansi háa tryggingu. Menn eiga kannski fyrir því. Það getur verið að margir kannist við sjálfan sig þarna en hótanir eru bara lélegar yfir höfuð.“ Í myndinni er meðal annars fjallað um fyrrverandi atvinnu- mann í knattspyrnu sem starfar í íslenskum banka. Maðurinn er leikinn af Þorvaldi Davíð Kristjánssyni. Samkvæmt frétt Pressunnar hafði einn ónafn- greindur kaupsýslumaður sam- band við Ingvar símleiðis og hótaði því að setja lögbann á myndina á þeim forsendum að ein persónan í myndinni væri augljóslega byggð á honum. Meðframleiðandi Ingvars að myndinni er Júlíus Kemp. Þorvaldur davíð Kristjánsson „Hótanir virka aldrei hvort eð er í lífinu. Menn mega reyna að setja lögbann en það er ekkert hlaupið að því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.