Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 15
Vikublað 6.–8. maí 2014 Fréttir Stjórnmál 15 „Við getum ekki treyst ókunnugum“ Stjórnmálafræðingurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson lýsir, á Facebook-síðu sinni, yfir stuðn- ingi við Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur í klúðurslegu lekamáli hennar. Hvetur hann hana til að hlusta ekki á „netdverga“. „Hún hefur ekkert gert rangt og hef- ur staðið sig vel í sinni stöðu, enda afburðastjórnmálamaður,“ skrifar Hannes. Líkir prófessor- inn því næst flóttamönnum við innbrotsþjófa. „Til hvers höfum við útlendingaeftirlit? Af hverju læsum við dyrunum, áður en við förum eitthvað? Það er, af því að við getum ekki treyst ókunnug- um,“ skrifar hann. Kvartaði yfir skrifum fræðimanns Þjóðfræðingur segist ekki hafa geðheilsu til að tjá sig um málið É g hef ekki geðheilsu í að standa í einhverju svona því ég veit að svona umræða hefur afleiðingar. Ég sagði að ég ætlaði ekki að tjá mig meira um þetta þess vegna,“ segir Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðing- ur í samtali við DV. Hún skrifað færslu á Facebook á dögunum þar sem hún sagði að „valdakall“ hefði hringt í yf- irmann hennar við Háskóla Íslands árið 2010 og kvartað yfir grein sem hún skrifaði í Fréttablaðið. „Það varð til þess að ákveðinn valdakall hringdi upp í Háskóla, yfirmann minn, til að „kvarta“ undan mér, athuga hvað svona stelpuskjáta væri að gera sem stundakennari við HÍ. Ég ræði þetta mál ekki frekar en það olli mér að sjálfsögðu vanlíðan og ótta – fyrst og fremst kannski vonbrigðum með að svona væri raunverulega í pottum búið [sic] í þessu samfélagi. Mér finnst þessi reynsla enn þá svolítið heftandi og leiðinleg í dag,“ skrifar Bryndís. Hún vildi ekki tjá sig um hvaða „valdakall“ hefði kvartað yfir skrifum hennar. „Það er nefnilega jússí stöffið en ég ætla ekki að segja frá því núna. Ég meika það ekki núna,“ segir Bryndís. Af orðum hennar að dæma virðist þó vera um að ræða þjóðþekktan stjórnmálamann. Grein Bryndísar fjallaði um mál níumenninganna svokölluðu sem voru ákærðir árið 2008 fyrir hafa ráðist á Alþingi meðan búsáhaldabyltingin stóð sem hæst. Valdimar Tryggvi Haf- stein, þáverandi yfirmaður Bryndísar, harðneitaði að tjá sig um málið er DV spurði hann um málið. „Ég verð að ræða þetta við hana Bryndísi. Þú verður bara að tala við hana,“ segir hann. Kjarninn fjallaði um á dögun- um að sjötti hver háskólamaður þori ekki að tjá sig við fjölmiðla af ótta við viðbrögð valdafólks. n hjalmar@dv.is Þorir ekki að tjá sig Bryndís segir í samtali við DV ekki hafa geðheilsu til að tjá sig meira um kvörtun valda- mannsins umrædda. „Pólitískir jólasveinar“ Brynjar Níelsson segist á Face- book-síðu sinni fá hroll í hvert skipti sem stjórnmálamenn segj- ast boða metnaðarfulla pólitík. „Slíkur boðskapur er því algengari sem lengra er horft til vinstri. Nú boða Vg liðar í Reykjavík gjald- frjálsan leikskóla fyrir öll börn. Auðvelt er að boða metnaðarfulla pólitík og senda skattgreiðend- um reikninginn. Reykjavíkurbúar þurfa ekki á pólitískum jólasvein- um að halda,“ skrifar þingmaður- inn. Biðlar hann til borgarbúa um að átta sig á því að hærri skattur þýði ekki betri þjónustu. Sleggjudómar um Eurovision Félags- og húsnæðismálaráð- herra, Eygló Harðardóttir, var gestur Markúsar Þorhallssonar á Útvarpi Sögu á mánudags- morgun. Þar var hún var stödd til að ræða eina helstu birtingar- mynd evrópskrar samvinnu, Eurovision. Með henni í för var aðstoðarmaður forsætisráðherra, Jóhannes Þór Skúlason. Sagði Eygló að serbneska lagið Molitva í flutningi Marija Šerifovic frá árinu 2008 væri í miklu uppá- haldi hjá sér. „Nördarnir Eygló Harðardóttir og Jóhannes Þór munu reyta af sér besserwiss og sleggjudóma um tónlistarsmekk Evrópubúa,“ skrifaði Jóhannes Þór á Facebook-síðu sína. S óley Björk Stefánsdóttir, eig- andi Vefmiðilsins akv.is, neit- ar að borga Sveini Arnars- syni blaðamanni laun fyrir tvær vikur sem hann vann við miðilinn í apríl. Sveinn var ritstjóri akv.is til 14. apríl síðastliðinn en þá hóf hann störf hjá fréttamiðlinum Vísi. Að hans sögn var viðskilnaður í upphafi á góðum nótum en þegar kom að mánaðamótum fékk hann ekki greidd laun. Sóley Björk er odd- viti Vinstri grænna á Akureyri fyr- ir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún hefur lagt áherslu á bætta sam- vinnu og samskipti sem og opið lýð- ræði í stjórnmálabaráttu sinni. Fékk ekkert greitt fyrir tvær vikur „Ég held að hún vilji bara ekki greiða mér laun, punktur. Hún hefur svo sem látið mig fá einhverjar skringi- legar skýringar eins og greiðslur fyrir einhverjar auglýsingar hafi ekki borist þannig að hún skuldi mér ekki neitt,“ segir Sveinn í samtali við DV. Hann segir að munnlegt samkomulag hafi verið á milli hans og Sóleyjar þess eðlis að hann fengi ákveðið hlutfall af auglýsingatekjum sem verktakalaun. Þau laun hafi ekki borist fyrir fyrstu tvær vikur aprílmánaðar. „Ég skrifa mína seinustu frétt þar sunnudaginn 13. apríl,“ segir Sveinn. „Mér finnst bara sorglegt að hafa treyst fólki og fá það svona í hausinn. Samkomulagið var munnlegt, byggt á trausti. Ég verð launþegi hjá öðrum miðli en ég er ekki með því að afsala mér launum.“ Segist hafa ofgreitt í mars Í samtali við DV ber Sóley fyrir sig að hún hafi ofgreitt Sveini fyrr á ár- inu og skuldi honum því engin laun fyrir fyrstu tvær vikur aprílmánaðar. Hún segir að ákveðnar auglýsinga- tekjur hafi ekki fengist innheimtar í marsmánuði en Sveinn hafi þrátt fyrir það fengið full laun greidd fyrir þann mánuð. „Það var í raun og veru þannig að hann var ráðinn á prósentu og ég greiddi honum full laun. Við höfðum talað um að þetta færi eft- ir innheimtu, þannig að ef að reikn- ingur innheimtist ekki þá drægist það af launum. Ég geri samt upp við hann strax með þeim fyrirvara að allt innheimtist. Maður sendir út reikn- inga og maður vonast bara eftir að þeir fáist allir greiddir þannig að ég greiddi honum bara út,“ segir Sóley. Að hennar sögn voru ekki allir reikn- ingar greiddir í upphafi mars og því geri hún kröfu um að þau geri upp sín á milli. Telur hún að það sem hún hafi ofgreitt kom á móti vangoldnum launum fyrir aprílmánuð. „Miðað við okkar samkomulag held ég að hann skuldi mér frekar. Það verður bara að viðurkennast að seldar auglýsingar á hans tíma eru ekki mjög margar. Ég leyfi mér að efast að það kæmi út í plús.“ Skýtur skökku við Sveinn segir það hárrétt að hann hafi einungis átt að fá hlutfall af auglýs- ingatekjum. Það að hann hafi feng- ið ofgreitt segir hann hins vegar eft- iráskýringu. „Ég get ekki séð það að ég hafi fengið of mikið í laun. Það er bara af og frá, einfaldlega ekki rétt. Ef ég hef fengið of mikið þá hefur hlýt- ur einhver annar að hafa fengið of lítið því öllum tekjum var skipt,“ segir hann. Sveinn segist ætla að skoða hvaða leiðir séu honum færar til að innheimta launin. Segir hann skjóta skökku við að hún segist vera fylgj- andi því að launamenn skuli berj- ast fyrir réttindum sínum en vilji ekki greiða honum. „Ég vann réttilega sem ritstjóri vefjarins í tvær vikur.“ Segist ekki koma nálægt ritstjórn Segir Sóley ekkert óeðlilegt við það að á sama tíma og hún stýri einum stærsta fréttamiðli bæjarfélagsins sé hún í stjórnmálabaráttu. „Ef ég væri ritstýra þá væri það óeðlilegt en hins vegar er það nú bara þannig að ég lagði miðilinn niður um tíma eftir að ég ákvað að fara í pólitík. Það komu margir að mér og sögðu þetta mik- ilvægan miðil. Ég leysti það þannig að ég réð ritstjóra og ég kem bara að framkvæmdastjórn,“ segir Sóley. Að hennar sögn hefur hún engin áhrif á ritstjórn fréttamiðlins í dag. „Ég skrifa og sendi reikning og borga laun. Ég réð Svein á ákveðnum forsendum um hvernig ritstjórnar- stefnan ætti að vera.“ n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Ég réð Svein á ákveðnum forsendum um hvernig ritstjórnarstefnan ætti að vera. Oddviti VG neitar að borga blaðamanni n Eigandi vefmiðils í stjórnmálabaráttu n Segir blaðamanninn skulda sér Eigandi og oddviti Sveinn Arnarsson blaða- maður segir oddvita Vinstri grænna á Akureyri, Sóleyju Björk Stefánsdóttur, neita að borga honum laun fyrir tveggja vikna vinnu. Hún er eigandi vefmiðilsins akv.is. Mynd FacEbook

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.