Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 18
Vikublað 6.–8. maí 20142 Bestu og verstu Flestir eiga sitt uppáhalds Eurovision-lag. DV leitaði til álitsgjafa í leitinni að besta og versta íslenska Eurovision-laginu. Öll lög sem hafa tekið þátt í undnakeppninni hér heima og svo auðvitað þau sem fóru alla leið í stóru keppnina úti komu til greina. Því fer fjarri að álitsgjafar blaðsins séu á einu máli en þrjú lög lenda í fyrsta sæti yfir besta lagið. Á toppi verstu laganna trónir hins vegar Sjúbídú sem söng- konan Anna Mjöll flutti eftirminnilega árið 1996. indiana@dv.is íslensku eurovision-lögin tell me Flytjendur: Einar Augúst og Telma „Bara eitthvað svo sjarmer- andi.“ Norðurljós Flytjandi: Eyjólfur Krist- jánsson „Mesta klúður íslenskrar Eurovision-sögu að lagið hafi ekki komist áfram árið 1987.“ Hægt og hljótt Flytjandi: Halla Margrét „Hefur elst ótrúlega vel.“ Hvar ertu nú? Flytjandi: Dr. Spock „Sem betur fer er prófessor- inn loksins kominn á Júrópall. Þetta lag er stórkostleg blanda hrárra tilfinninga og mjúkrar angurværðar og hefði örugglega náð mun lengra en lagið sem það laut í lægra haldi fyrir.“ Hugarró Flytjandi: Magni Ásgeirsson „Bara frábært popplag í geðveikum flutningi.“ Núna Flytjandi: Björgvin Hall- dórsson „Glæsilegur fulltrúi íslensku þjóðarinnar. Lagið bæði falleg og grípandi. Man eftir gæsahúðinni og stoltinu sem ég fylltist þegar hann flutti lagið á stóra sviðinu.“ Það sem enginn sér Flytjandi: Daníel Ágúst „Vanmetin perla, frábært lag sem lifir enn góðu lífi þrátt fyrir vont gengi í keppninni úti.“ Látum sönginn hljóma Flytjandi: Stefán Hilmars- son „Vanmetið lag en ofboðslega skemmtilegt. Stebbi i stuði – það klikkar ekki.“ Ho Ho Ho we say hey hey hey Flytjandi: Merzedes Club „Lagið gott, kropparnir enn betri og píano sóló Gillz ein mesta snilld sem sést hefur á Eurovision-skjánum.“ this is My Life Flytjandi: Eurobandið „Fullkomið Eurovision-lag og í fyrsta sinn sem íslenskir listamenn mastera bæði myndavélar og sviðs- framkomu í hörgul.“ open Your eyes Flytjandi: Birgitta Haukdal „Lagið er eitt margra góða íslenskra Eurovision-laga. Það er ekki endilega best, en hvernig Birgitta flutti lagið á sviði gerir það eftirminnilegt. Það skilur eftir sig góða tilfinningu.“ Ég á líf Flytjandi: Eyþór Ingi „Eingöngu vegna þess að ég söng raddirnar í því og það eitt hjálpar.“ Þessi voru líka nefnd sem Bestu lögin 1–3 Draumur um Nínu Flytjendur: Eyfi og Stebbi n „Ég myndi aldrei vilja segja hvað mér finnst versta lagið vera. Það gæti sært einhvern. En besta lagið að mínu mati er NÍNA.“ n „Mesti smellur sem hefur komið i þessa keppni. Allir hafa sungið Ooooohhh-ið i laginu i misjöfnu ástandi sem er skemmtilegt.“ n „Stórkostlegur þjóðsöngur okkar allra.“ 1–3 All out of Luck Flytjandi: Selma Björnsdóttir n „Vel heppnað „feelgood“-lag.“ n „Þetta lag hefur einhvern veginn allt; grípandi laglínu, hressan texta, góðan söng og frábæra sviðsframkomu. Sígilt, ég er alveg sannfærð um að það myndi ná jafngóð- um, ef ekki betri árangri núna en 1992.“ n „Langbesta Eurovision-lagið frá upphafi … enda vann það næstum því … lagið og boðskapurinn á vel við okkur enn í dag.“ 4–5 Is it true? Flytjandi: Jóhanna Guðrún n „Váá, hún stóð sig svo vel og lagið æðislegt. Alger „winner “– enda vann hún næstum því.“ n „Án efa besta framlag okkar hingað til, frábært lag og óaðfinnanlegur flutningur.“ 4–5 gleðibankinn Flytjandi: ICY n „Sama hvað hver segir þá er þetta hittari.“ n „Einfaldlega frábært lag í alla staði, ég er á því að það hafi ekki farið betra lag út síðan 1986.“ 1–3 eitt lag enn Flytjandi: Stjórnin n „Hresst og skemmtilegt.“ n „Nær fullkomlega stemningunni.“ n „Frábær flutningur í Sagreb á sínum tíma. Þau Sigga og Grétar voru rosalega flott á sviðinu og enduðu í toppsæt- um fyrir – þrátt fyrir að syngja á íslensku. Æðislegt lag.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.