Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Síða 4
Vikublað 6.–8. maí 20144 Fréttir 50% afsláttur af nammibarnum alla föstudaga og laugardaga Ódýrasti ísinn í hverfinu! Söluturn Ísbúð Vídeóleiga Réttarholtsvegi 1 • 108 Reykjavík • Sími 553 5424 Kúlan KÚLAN KLIKKAR EKKI Sjö milljónir króna hurfu af reikningi Dularfullar millifærslur frá dótturfélagi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi E kki er um það deilt að efni reikningsyfirlitsins gaf til- efni til skoðunar og fer slík skoðun nú fram af hálfu stjórnar SSNV eins og þér hef- ur verið gerð grein fyrir,“ segir í bréfi frá Bjarna Jónssyni, formanni stjórn- ar Sambands sveitarfélaga á Norð- vesturlandi, sem dagsett er þann 16. apríl. Bréfið er stílað á bæjarfulltrúa á Blönduósi, Oddnýju Maríu Gunnars- dóttur, sem barst í hendur reikn- ingsyfirlit frá Atvinnuþróunarfélagi Norðurlands vestra í janúar síðast- liðinn þar sem fram koma millifærsl- ur af reikningi félagsins árið 2013 sem henni þóttu óeðlilegar. Síðastliðna mánuði hefur far- ið fram skoðun á því hjá Sambandi sveitarfélaga á Norðvesturlandi hvernig skýra megi millifærslurnar af reikningum félagsins upp á sam- tals um sjö milljónir króna. Endur- skoðunarfyrirtækið KPMG var beðið að vinna greinargerð um málið. Í bréfi sem Oddný María skrifaði sveit- arstjórn Skagafjarðar þann 15. apríl síðastliðinn óskaði hún eftir ítarlegri greinargerð um málið sem ekki hef- ur verið unnin enn. „Í meginatriðum snýst málið um ráðstöfun tæplega 7 Mkr á árinu 2013 af bankareikning- um Atvinnuþróunarfélags Norður- lands vestra sem var sameinað SSNV árið 2005. Þessir fjármunir eru sagð- ir vera eftirstöðvar tiltekins verkefn- is sem hófst árið 2004 en lauk með fullnaðaruppgjöri við alla þátttak- endur 2009.“ Oddný María vill aðspurð ekki tjá sig um málið. Hún segir að beðið sé eftir niðurstöðu í athugun á því hvað varð um peningana og af hverju. At- vinnuþróunarfélagið er í eigu sveitar- félaga á svæðinu. Millifært á einstaklinga Í reikningsyfirlitinu sem Oddný Mar- ía hafði undir höndum kemur fram að millifært hafði verið af reikningi fé- lagsins inn á einstaklinga sem tengj- ast félaginu, samtals nokkrar milljón- ir króna, auk þess sem millifært er inn á reikninga þar sem ekki er tilgreint hver eigandinn er. Oddný María spurði sérstaklega um slíkar millifær- slur í bréfi sínu til Sambands sveitar- félaga á Norðurlandi vestra: „Hvers vegna er fjárstreymi á kennitölu, þar sem engin er skráður í fyrirsvari og engar upplýsingar er að finna um í ársreikningi SSNV?“ Eftir að reikn- ingurinn var tæmdur var honum eytt. Í svörunum sem KPMG fékk frá stjórnendum Atvinnuþróunarfé- lags Norðurlands og greint er frá í erindi frá KPMG, sem vinnur nú að greinargerð um málið sem ekki hef- ur verið send í endanlegri mynd til Sambands sveitarfélaga á Norð- urlandi vestra, eru ekki veitt skýr svör við þeim spurningum af hverju millifært var af reikningi félagsins og inn á einstaklinga og óþekkta að- ila. Samt var meðal annars talað við þá einstaklinga sem millifært var inn á og vísar KPMG í svör þeirra. Eftirstöðvar af styrkjum Í gögnum málsins kemur fram að peningarnir sem eftir voru í reikn- ingi félagsins hafi verið síðustu milljónirnar af styrkjum sem félag- ið fékk vegna þátttöku í verkefni, svokölluðu NORCE-verkefni, á ár- unum 2005 til 2009. Í einum tölvu- póstinum sem DV hefur undir höndum bendir Oddný María hins vegar á að því verkefni hafi lokið með fullnaðaruppgjöri árið 2009. Þar af leiðandi geti millifærslurn- ar sem um ræðir út af reikningi At- vinnuþróunarfélags Norðurlands vestra ekki verið vegna kostnað- ar við það verkefni, líkt og kemur fram í máli forsvarsmanna félagsins í þeim niðurstöðum sem KPMG er búið að viða að sér. Enn fremur kemur fram í gögnun- um að svo virðist sem Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Sambands sveitar- félaga, telji ekki að þau svör sem nú þegar liggja fyrir um ástæðurnar fyr- ir útgreiðslu fjármunanna séu full- nægjandi. Í tölvupósti frá Oddnýju Maríu spyr hún Bjarna hvort hann líti svo á að það sé trúverðugt að pen- ingarnir hafi farið í að greiða kostn- að vegna verkefnis sem lokið var við að gera upp árið 2009 en Bjarni svar- ar fyrirspurn hennar hvorki játandi né neitandi og bendir þess í stað á að KPMG vinni greinargerð um mál- ið. Sú niðurstaða er enn ekki komin. Í samtali við DV vill Bjarni ekki tjá sig efnislega um málið heldur vísar hann fyrirspurnum blaðamanns til Lög- manna Höfðabakka sem sér um mál- ið fyrir hönds Sambands sveitarfé- laga á Norðvesturlandi á þessu stigi. „Stjórnin setti málið bara í eðlilegan farveg hjá endurskoðanda og þessari virktu lögmannsstofu.“ Tekið skal fram að Bjarni er ekki einn af þeim einstaklingum sem kom fram í bankayfirlitinu um millifærslur af reikningnum en þar er hins vegar að finna nafn stjórnanda hjá Atvinnu- þróunarfélagi Norðurlands vestra. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Engin svör Engin skýr svör er að finna í fyrirliggj- andi gögnum um af hverju peningar sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra voru millifærðir til einstaklinga. „Hvers vegna er fjárstreymi á kennitölu, þar sem engin er skráður í fyrirsvari. Féð millifært á einstaklinga Bjarni Jónsson stjórnarformaður kom að því að setja KPMG í að rannsaka millifærslurnar. Tekið skal fram að Bjarni er ekki einn af þeim einstaklingum sem millifært var á. „Erfitt að sækja sér hjálp“ Stígamót opna netspjall fyrir skjólstæðinga V ið viljum auka valmögu leika fólks á að nálgast okkur og fá hjálp,“ segir Guðrún Jóns- dóttir, talskona Stígamóta, en á dögunum tóku sam- tökin í notkun netspjall fyrir skjól- stæðinga sína. Netspjallið er liður í því að breyta og útvíkka þjónustu Stígamóta, grasrótarsamtaka sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fólki sem hefur verið beitt kyn- ferðisofbeldi. Guðrún bendir á að það sé oft erfitt að stíga fyrsta skrefið í þessum málum og leita sér aðstoð- ar, en með þessu sé hægt að feta sig áfram í leit að aðstoð hafi viðkomandi orðið fyrir kynferðisofbeldi. „Þetta er fyrir alla,“ segir hún og bendir á að fólk utan höfuðborgar- svæðisins eða í útlöndum geti sér- staklega notið góðs af þessari þjón- ustu. „Fólk sem kannski treystir sér ekki í fyrstu tilraun til þess að hitta einhvern, heldur langar til þess að ræða nafnlaust við ráðgjafa, jafnvel forvitnast.“ Netspjallið er opið á skrifstofu- tíma, en einnig er hægt að senda inn skilaboð utan hans og þá mun ráð- gjafi hafa samband við viðkomandi. Netspjallið er gamall draumur starfs- fólks Stígamóta sem nú hefur orðið að veruleika að sögn Guðrúnar. „Það hefur sýnt sig að það er erfitt að stíga það skref að sækja sér hjálp og þetta er ein leið til þess að lækka þrösk- uldinn,“ segir hún. n astasigrun@dv.is 2.409 viðtöl í fyrra 358 einstaklingar leituðu í fyrsta sinn til sam- takanna í fyrra. Mynd SIgtryggur ArI Faldi sig á verönd Lögreglan á Suðurnesjum veitti kyrrstæðri bifreið athygli um helgina, þegar lögregluþjónar voru við hefðbundið eftirlit. Í bílnum voru farþegar en enginn ökumaður og kannabisþefur mætti lögregluþjónum þegar bíll- inn var opnaður. Við leit í bílnum fundust þrír pokar af kannabis- efni og nokkuð af amfetamíni. Hófst þá leit að ökumanni bíls- ins, sem hafði flúið af vettvangi. Hann fannst í nágrenninu, þar sem hann faldi sig á verönd við fjölbýlishús. Hann viðurkenndi að hann væri eigandi þeirra efna sem fundust í bílnum. Reyndi að tæla ungan dreng Karlmaður á stórum bíl reyndi að tæla dreng í Háteigsskóla upp í bíl sinn síðdegis á föstudag, þann 2. maí síðastliðinn. Drengurinn stundar nám við Háteigsskóla og er á yngsta skólastigi. Maðurinn mun hafa stöðvað bifreiðina við gangstétt í Stakkahlíð. Hann bauð drengnum að koma með sér og lofaði honum sælgæti ef hann hlýddi. Drengurinn brást hár- rétt við. Hann hljóp af stað heim til sín og sagði foreldrum sínum frá þessu. Þá gaf hann þeim góða lýsingu á manninum og bílnum, en vissi þó ekki bílnúmerið. Mál- ið er rannsakað hjá lögreglu sem biður þá sem vita eitthvað um málið að hafa samband. Mikil- vægt sé að brýna fyrir börnum að fara ekki upp í bíl með ókunn- ugum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.