Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 30
Vikublað 6.–8. maí 201422 Lífsstíll
A
ð komast á breytinga-
skeið á ekki vera eitthvað
skömmustulegt held-
ur eitthvað sem ber að
fagna,“ segir Margrét Jóns-
dóttir Njarðvík, varaformaður ný-
stofnaðs Áhugamannafélags um
breytingaskeið kvenna en félag-
ið stendur fyrir ráðstefnu í Hörpu í
dag, þriðjudag, milli 13 og 17.
Rjúfa þagnarmúrinn
Margrét segir þöggun einkenna
breytingaskeið kvenna. „Það viður-
kennir enginn að vera á breytinga-
skeiði og afar fáar konur tala um
eigin upplifun heldur upplifun
annarra kvenna. Nú er kominn
tími til að rjúfa þagnarmúrinn. Við
höfum hugsað okkur að tala þetta
orð upp og sýna fram á hversu
skemmtilegt breytingaskeiðið getur
verið.“
Margrét og tvær vinkonur henn-
ar, Edda Arinbjarnar og Eyrún Inga-
dóttir, stofnuðu Facebook-hóp fyrir
ári sem einfaldlega heitir Breytinga-
skeiðið. „Grúppan var hugsuð fyr-
ir vinkonur okkar en áður en við
vissum af voru meðlimir hópsins
orðnir 100, svo 200, 400 og eru núna
yfir 2.000. Við finnum því til gríðar-
legrar ábyrgðar og munum opna
vefsíðuna breytingaskeid.is í dag.
Inni á Facebook-síðunni hafa
skapast margvíslegar umræður.
Margar eru að tala um kynlíf og
það er ótrúlega gaman að sjá hvað
margar eru opinskáar. Sumar tjá
sig en aðrar lesa bara. Það er líka
allt í lagi.
Konur eru svo fjölbreyttar. Það er
ekkert eitt sem hentar öllum,“ segir
hún og bætir við að æ fleiri konur
geri sér grein fyrir að sú þekking um
breytingaskeið sem var í boði fyrir
örfáum árum sé nú orðin úrelt.
Geðheilsan best eftir tíðahvörf
„Nýjar rannsóknir sýna að konur
þurfa að taka sérstaklega upplýsta
ákvörðun um notkun hormóna
og annarra lyfja þegar þær ná
breytingaskeiðinu. Svo er kom-
in fram kynslóð kvenna sem lítur
vinnumarkaðinn öðrum augum
því þær gera kröfur um að störf
þeirra passi við gildi þeirra. Þessi
kynslóð er upptekin af því að
vera höfundur í lífi sínu á seinni
helmingi þess. Þess vegna hætta
mjög margar þeirra, jafnvel kon-
ur í stjórnendastöðum, í vinnunni
og fá sér nýja vinnu og ákveða að
héðan í frá ætli þær algjörlega að
lifa í takt og sátt við gildin sín.
Rannsóknir hafa líka sýnt að
geðheilsa kvenna er aldrei betri en
eftir tíðahvörf. Þetta tímabil í lífinu
er miklum breytingum háð, bæði
hjá körlum og konum, ef litið er til
líkamsstarfseminnar. Meginþorri
kvenna á þessum aldri er einnig
að upplifa að börnin eru að fara að
heiman og þar opnast tækifæri til
„Breytingaskeið á ekki
að vera feimnismál“
n Þöggun einkennir breytingaskeið kvenna n Nýstofnað Áhugamannafélag um breytingaskeið kvenna heldur ráðstefnu
1 Þú verður að vita hvar peningarnir þínir eru. Í hverju hefur þú fjárfest?
Hvar fjárfestir þú?
2 Þú verður að vita hversu mikil ávöxtun er á fénu þínu og hversu
miklar tekjur það færir þér. Ekki gleyma
sköttum og vertu viss um að reikna með
tekjum eftir skatta.
3 Ef þú finnur afbragðs fjármálaráð-gjafa sem þú treystir þá er hann
hverrar krónu virði. Vertu viss um að skilja
hvernig ráðgjafi þinn er launaður. Fær
hann til dæmis prósentur af því sem hann
selur þér? Taktu 2 eða 3 í viðtal.
4 Hversu mikið kostar að reka heimili þitt mánaðarlega? Það skiptir sköp-
um fyrir framtíð þína. Reiknaðu út hverjar
mánaðartekjur þínar
verða þegar þú ferð
á eftirlaun. Finndu
út hver forgangs-
röðun þín er, hvað
er nauðsynlegur
kostnaður og í hvað
þú vilt geta eytt – eitt-
hvað sem skiptir þig máli.
5 Ekki gleyma að meðalævilengd lengist sífellt. Bættu við um það bil
tíu árum þegar þú reiknar út lífsstandard
þinn á eftirlaunum.
6 Ekki stunda áhættufjárfestingar með pening sem þú hefur ekki efni á
að tapa. Ef þú hefur efni á því þá er betra
að gefa pening til einhvers samfélags-
legs málefnis. Þá ertu viss um að njóta
gleðinnar við að styrkja samtök eða góð
málefni og losnar við vonbrigðin sem
fylgja því að léleg fjárfesting gufi upp.
7 Fyrir utan fjárfestingu í heimili þínu – ekki vera með öll eggin í sömu
körfu. Dreifðu fjárfestingum þínum.
8 Eyddu tíma í að semja um betri kjör á tryggingum, síma og öðrum fasta-
kostnaði. Það getur margborgað sig.
9 Ef þú hefur efni á að borga niður húsnæðislánin – gerðu það!
10 Borgaðu alltaf upp kreditkortin þín í hverjum mánuði. Það er alltaf hægt
að fá hagstæðari lán en með kreditkorti.
Heimild: Bókin The Second Half of Your Life
eftir Jill Shaw Ruthers
10 ráð: Peningar og breytingaskeið
Margrét Jónsdóttir Njarðvík
Margrét stofnaði Facebook-grúppu um
breytingaskeið fyrir ári. Í dag hafa hún og
vinkonur hennar stofnað félag áhugamanna
um breytingaskeið kvenna.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Við höfum
hugsað okkur
að tala þetta orð upp
og sýna fram á hversu
skemmtilegt breytinga-
skeiðið getur verið.