Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2014, Side 14
Vikublað 27.–29. maí 201414 Fréttir Viðskipti
FAGURLISTADEILD - FRJÁLS MYNDLIST
Námið í Fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem
veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá nauðsynlega
þjálfun og tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík
viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni.
Námseiningar: 180
LISTHÖNNUNARDEILD - GRAFÍSK HÖNNUN
Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og frumlega
framsetningu hugmynda. Á þremur árum öðlast nemendur
yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í faginu, sem gerir þá hæfa til að
fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla og
margmiðlun.
Námseiningar: 180
MYNDLIST - HÖNNUN - ARKITEKTÚR
Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum. Listrænn og
tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar,
hönnunar og arkitektúrs. Eins árs hnitmiðað 72ja eininga
heildstætt nám í sjónlistum.
auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið 2014-2015
Umsóknarfrestur til 4. júní. Nánari upplýsingar á www.myndak.is Sími 462 4958
Skóli með sterkan prófíl
1974-2014
Fresta flutningi
Færri starfsmenn Vísis flytja frá Djúpavogi til Grindavíkur
Ú
tgerðarfyrirtækið Vísir hf. hef-
ur ákveðið að fresta flutningi á
fiskvinnslu félagsins frá Djúpa-
vogi til Grindavíkur um allt að
eitt ár. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu sem Vísir sendi frá sér á mánu-
dag. Þar kemur fram að þetta sé þó
gert með þeirri undantekningu að
ein af þremur vinnslulínum félagsins
verði flutt frá Djúpavogi eins og upp-
haflega stóð til. Vegna ákvörðunar-
innar, sem tekin var í samráði við
sveitarstjórn Djúpavogshrepps, flytja
færri starfsmenn Vísis til Grindavík-
ur en ráð var fyrir gert.
Í tilkynningunni segir að þurr-
söltunarlína, ásamt tilheyrandi
tækjabúnaði, verði flutt til Grinda-
víkur en á Djúpavogi verða eftir tæki
og vinnslulínur til ferskfiskvinnslu
og frystingar. Í stað söltunarlínunnar
verður fjárfest í vinnslulínu til slátr-
unar og pökkunar á eldisfiski.
„Vegna frestunarinnar gefst
heimamönnum mun rýmri tími til
að bregðast við boðuðum breyting-
um. Ákvörðunin er í fullu samræmi
við þann vilja og ásetning stjórnenda
Vísis að finna og byggja upp starf-
semi og störf í stað þeirra sem hverfa
og bjóða starfsfólki sínu ný störf á
sama stað eða sömu vinnu á nýjum
stað,“ segir í tilkynningunni.
Starfsmönnum Vísis og sveitar-
stjórnarmönnum á Djúpavogi var
gerð frekari grein fyrir framkvæmd-
inni á fundi sem fram fór á mánu-
dag. Í tilkynningunni segir að stjórn-
endur Vísis muni áfram vinna með
sveitarstjórn Djúpavogshrepps við
að styrkja stoðir nýrra starfa á Djúpa-
vogi. Þá er tekið fram að samstarf
fyrirtækisins og sveitarstjórnarinnar
hafi „verið til fyrirmyndar“ þau 15 ár
sem Vísir hefur verið með starfsemi
á Djúpavogi. n
Grindavík Vegna ákvörðunarinnar flytja
færri starfsmenn til Grindavíkur en upphaf-
lega stóð til.
„Miklu meira en mínar
væntingar voru“
Kári Stefánsson er sáttur við lífsýnasöfnun Íslenskrar erfðagreiningar
K
ári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar,
segir að lífsýnasöfnun fyrir-
tækisins hafi gengið vonum
framar miðað við væntingar
hans sjálfs. Hann segir að í lok vik-
unnar muni liggja fyrir nákvæm-
ar niðurstöður um fjölda þátttak-
enda í söfnuninni. „Okkur finnst
þetta hafa gengið nokkuð vel. Fram-
ar vonum þeirra sem höfðu á þetta
raunsæja sýn frá upphafi. Ég lét
hafa það eftir mér þegar við byrjuð-
um þessa söfnun að við stefndum á
að ná 30 þúsund manns. Miðað við
þær tölur sem liggja fyrir núna þá er
þetta miklu, miklu meira en mínar
væntingar voru.“
Sent til 100 þúsund manns
Líkt og komið hefur fram þá sendi
Íslensk erfðagreining út beiðni um
þátttöku í lífsýnasöfnuninni til 100
þúsund Íslendinga í byrjun mánaðar-
ins. Mikil umræða hefur verið um líf-
sýnasöfnunina í samfélaginu það sem
af er mánuðinum þar sem hún var
tengd við fjáröflun fyrir Landsbjörg.
Björgunarsveitunum var heitið 2.000
krónum í styrk fyrir hvert lífsýni sem
safnaðist. Þátttakendur í söfnuninni
gátu annaðhvort sent sýnin í pósti til
Íslenskrar erfðagreiningar eða látið
starfsfólk björgunarsveitanna fá sýn-
ið þegar það bankaði upp á.
Hópur fræðimanna í Háskóla Ís-
lands sendi frá sér yfirlýsingu þar sem
lífsýnasöfnunin var gagnrýnd vegna
tengingarinnar við Landsbjörg. Hóp-
ur vísindamanna sendi svo frá sér
yfirlýsingu í kjölfarið þar sem þeir
gagnrýndu fræðimennina. Sú um-
ræða endurspeglaði ágætlega ólíka
póla í umræðunni um söfnunina.
Fræðimennirnir töldu að sú aðferð
að nota Landsbjörg í söfnuninni væri
ekki við hæfi þar sem verið væri að
setja óheppilegan þrýsting á fólk með
því að nota fjárstuðning við gott mál-
efni sem hvata til að fá fólk til að taka
þátt í söfnuninni. Vísindamennirnir
undirstrikuðu hins vegar vísindalegt
mikilvægi söfnunarinnar og rann-
sókna Íslenskrar erfðagreiningar.
Ekki komið niður á söfnuninni
Miðað við orð Kára þá hefur gagn-
rýnin umræða um lífsýnasöfnunina
ekki komið niður á endurheimtum
úr henni. „Það virðist vera sem um-
ræðan um söfnunina, bæði jákvæð
og neikvæð, hafi haft hverfandi áhrif
vegna þess að fólk hefur greinilega
mótaðri skoðanir um þetta en ein-
hver hefði kannski haldið.“
Kári segir að Íslensk erfðagrein-
ing hafi fengið rúmlega 20 þúsund
sýni í pósti. „Við höfum fengið rúm-
lega 20 þúsund sýni úr pósti. Það
gæti bent til að við fáum kannski um
40 þúsund í heildina. En nákvæmar
tölur vitum við ekki fyrr en í lok vik-
unnar,“ segir Kári.
Ná meirihluta þjóðarinnar
Ef endurheimtur Íslenskrar erfða-
greiningar úr lífsýnasöfnuninni
verða á bilinu 30 til 40 þúsund þá
mun lífsýnasafn fyrirtækisins hafa
stækkað um fjórðung til fimmt-
ung. Fyrir átti Íslensk erfðagreining
um 140 þúsund lífsýni. Þetta þýðir
að í kjölfar söfnunarinnar mun Ís-
lensk erfðagreining eiga lífsýni úr
meirihluta íslensku þjóðarinnar, 170
til 180 þúsund í heildina.
Eigandi Íslenskrar erfðagreiningar
er bandaríska lyfjaþróunarfyrirtæk-
ið Amgen sem keypti það fyrir um 50
milljarða króna í lok árs 2012. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Vonum framar
Kári Stefánsson segir
að lífsýnasöfnun
Íslenskrar erfðagrein-
ingar hafi gengið
vonum framar.
MyNd SIGtryGGur ArI
Góð þátttaka Þekktir Íslendingar tóku þátt í lífsýnasöfnuninni, meðal annars Jón Gnarr,
sem hér sést afhenda starfsmanni björgunarsveitanna sitt lífsýni. MyNd SIGtryGGur ArI
„Það virðist
vera sem
umræðan um söfn-
unina, bæði jákvæð
og neikvæð, hafi
haft hverfandi áhrif
Tryggvagata
13 til sölu
Reykjavíkurborg leitar eftir
kauptilboðum í byggingarrétt
fyrir atvinnuhúsnæði og íbúðar-
hús á lóðinni Tryggvagötu 13.
Verður hugmyndasamkeppni
um útlit hússins og borgartorgs
fyrir framan bygginguna.
Lóðin komst í fréttirnar hinn
21. febrúar síðastliðinn þegar
Stefán Pálsson sagnfræðing-
ur birti mynd frá Reykjavíkur-
borg af teikningu húsnæð-
is á umræddu svæði. Spurði
Stefán hvort einhver hugsun
væri á bak við inndregið skot á
byggingunni, önnur en sú að
láta húsaröðina líta út eins og
getnaðarlim.
Lóðin, sem er austan
Tryggvagötu, á milli Grófarhúss
og Hafnarhvols, er um 840 metr-
ar að stærð. Á henni má byggja
sex hæða hús, ásamt kjallara og
heimilar deiliskipulag rúmlega
5.200 fermetra hús. Tilboðum í
lóðina skal skila 25. júní næst-
komandi.