Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2014, Side 38
Vikublað 27.–29. maí 201438 Fólk
Á röltinu með bumbuna
Christian Bale og Sibi Blazic fóru í göngutúr
L
jósmyndarar náðu mynd-
um af leikaranum skapstóra
Christian Bale á dögunum
þar sem hann var á göngu
ásamt eiginkonu sinni, fyrrverandi
módelinu Sibi Blazic, en þau eiga
von á barni.
Parið sást hamingjusamt í
göngutúr í Santa Monica-hverfi Los
Angeles á dögunum og Blazic var
sæt og sælleg með stærðar bumbu.
Tímaritið People staðfesti í mars
að hjónin ættu von á öðru barni
sínu saman, en fyrir eiga þau dóttur,
hina níu ára gömlu Emmeline.
Bale er mikill fjölskyldumaður.
Árið 2009 sagði hann til að mynda
í viðtali að hann gengi ávallt með
mynd af dóttur sinni og eigin-
konu í veskinu. „Þetta snýst allt um
stelpurnar mínar,“ sagði leikarinn.
Bale er með nokkur verkefni á
prjónunum um þessar mundir en
hann lék nýlega í mynd Ridleys
Scott, Exodus, sem fjallar um þegar
Móses frelsaði gyðinga úr ánauð í
Egyptalandi. n
Í göngutúr að viðra bumbuna Bale og
Blazic eiga von á sínu öðru barni saman.
Mynd www.SplaShnewS.CoM
Quentin Tarantino
Myndir leikstjórans Quentin Tarantino eru af
mörgum talin algjör meistaraverk og hefur
hann til að mynda tvisvar unnið óskarsverð-
laun fyrir myndir sínar.
Það kemur því kannski ekki á óvart að
leikarinn er bráðgáfaður en hann er meðlim-
ur MENSA-samtakanna og greindarvísitala
hans mældist 160 stig.
Sem barn var leikstjórinn að eigin sögn
ofvirkur og sáu margir sem stóðu honum
nærri að hann hefði gáfurnar með sér. Hann
hætti námi 16 ára gamall þar sem hann
þoldi ekki skólann.
Mörgum vegnar vel á fleiri sviðum en bara skemmtibransanum
Þekktir sem hafa
gáfurnar með sér
M
argar stjörnur eiga sér
bakgrunn í öðru en því
sem þær vinna við í dag og
eru margar þeirra bráð-
gáfaðar og hámenntaðar.
Hér eru nokkrar stjörnur sem hafa
gáfurnar með sér. n
James Woods
Leikarinn James Woods er vel gefinn maður, en hann
uppljóstraði því eitt sinn í þættinum Inside The Actors
Studio að hann væri með greindarvísitöluna 184.
Woods fékk næstum því hæstu mögulegu einkunn á
bandaríska skólaþroskaprófinu, svokölluðu SAT-prófi.
Hann gekk í MIT, þar sem hann fékk námsstyrk og nam þar
stjórnmálafræði. Woods hætti þó námi áður en hann
útskrifaðist til að einbeita sér að leiklistarferli sínum.
Masi Oka
Masi Oka er hvað
þekktastur fyrir hlutverk
sitt í sjónvarpsþáttunum
Heroes og Hawaii Five-O.
Oka er bráðgáfaður og er
greindarvísitala hans yfir
180. Oka fæddist í Japan
og var alinn upp af
einstæðri móður sinni, en
hann hefur aldrei hitt
föður sinn.
Oka útskrifaðist frá
Brown-háskóla árið 1997
með gráðu í tölvunarfræði
og starfaði stuttlega hjá
tæknibrellufyrirtæki
George Lucas, ILM.
Lisa Kudrow
Leikkonuna Lisu Kudrow þekkja
flestir sem hina léttgeggjuðu og
heldur einföldu Phoebe úr
sjónvarpsþáttunum Friends. En
Kudrow sjálf er allt annað en
einföld en hún á sér fortíð úr
vísindaheiminum.
Leikkonan útskrifaðist úr
Vassar-háskóla sem
líffræðingur árið 1985. Eftir
útskriftina hóf Kudrow að vinna
með föður sínum, Lee Kudrow,
sem er læknir og sérfræðingur í
höfuðverkjum. Feðginin unnu
saman að klínískum
rannsóknum á höfuðverkjum.
Dolph Lundgren
Lundgren hefur átt farsælan feril sem stjarna í mörgum
hasarmyndum og hefur leikið margar eftirminnilegar
persónur, til dæmis sovéska boxarann Ivan Drago og
sjálfan He-Man.
Lundgren er sagður vera með greindarvísitöluna 160.
En Lundgren segir þó sjálfur að líkt og með hæð hans sé
talan oft ýkt.
Leikarinn sænski útskrifaðist með gráðu í efnaverk-
fræði frá Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi og
lauk síðar meistaranámi í sömu grein frá háskólanum í
Sidney. Lundgren fékk einnig Fulbright-námsstyrk við MIT.
Natalie
Portman
Leikkonunni Natalie
Portman er ekki fisjað
saman en leikkonan
útskrifaðist með
BA-gráðu í sálfræði frá
Harvard og talar sex
tungumál.
Kennarar Portman
við Harvard sögðu
hana hafa verið
framúrskarandi
námsmann.
Leikkonan plumaði sig
vel í skólanum og
birtist m.a. grein eftir
hana og fleiri árið
2002 í vísindatímariti.
Leikkonan hefur
einnig verið
gestafyrirlesari við
Columbia-háskólann
og talar hún einnig sex
tungumál.
Deilir við
Charlie Sheen
Söngkonan Rihanna og glaum-
gosinn Charlie Sheen hafa átt
í deilum á Twitter undanfarna
daga. Ástæðan er sú að Charlie
Sheen fór um helgina út að borða
ásamt eiginkonu sinni, Brett
Rossi, á staðnum Giorgio Baldi.
Rossi átti afmæli og Rihanna var
einnig á staðnum. Rossi er mik-
ill aðdáandi Rihönnu og sendi
Sheen skilaboð til söngkonunnar
um hvort hún gæti gefið sér tíma
til að sitja fyrir á mynd. Rihanna
afþakkaði vegna þess hve margir
ljósmyndarar væru fyrir utan
staðinn en Sheen tók ekki vel í
það. Leikarinn jós fúkyrðum yfir
Rihönnu á Twitter sem svaraði í
sömu mynt.
Átti ímynd-
aðan vin
„Ég átti ímyndaðan vin sem hét
Strákur,“ segir leikarinn Channing
Tatum í viðtali í nýjasta tímariti
GQ magazine. Tatum segir skort
á vinum ekki hafa verið ástæðu
þess að hann átti einn ímyndað-
an. „Ég held að ég hafi bara lif-
að í hugarheimi að hluta til sem
barn. Ég var alltaf úti í skógi í
stríðsleikjum. Ímyndaði mér að
fólk væri að elta mig. Ég var ekki
að því vegna þess að ég væri ör-
væntingarfullur. Ég átti vini.“ Tat-
um tjáði sig einnig um áfengis-
neyslu sína sem hann segir of
mikla og að jafnvel mætti flokka
hann sem alkóhólista.
Reyndi að flýja
brúðkaupið
TMZ hefur greint frá því að
Rob Kardashian, bróðir raun-
veruleikasjónvarpsstjörnunnar
Kim Kardashian, ætlaði ekki að
vera viðstaddur brúðkaup henn-
ar og Kanye West á dögunum.
Rob flaug til Evrópu nokkrum
dögum fyrir brúðkaupið en sneri
að lokum aftur í tæka tíð. TMZ
segir ástæðuna hafa verið að Rob
kærði sig ekki um myndatökurn-
ar og athyglina sem fylgdu brúð-
kaupinu vegna þess hve mikið
hann hefur bætt á sig undanfarna
mánuði. Mörgum hefur þótt
þetta undarleg skýring enda sé
líf hans myndað nánast alla daga
fyrir sjónvarpsþættina sem fjalla
um líf fjölskyldunnar.