Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1978, Blaðsíða 284
Hagstofa Islands
gcfur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Yersl-
unarskýrslur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Dómsmálaskýrslur o. tt.). í I. útgáfuttokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951 hafa komið
út 67 rit.— Áskrifendum Ilagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
rit koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru
rit send þeim í pósti.
2. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar
skýrslur um utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu
og aðrar vísitölur, og árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka
að birta í sérstöku liefti af Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda
er 1200 kr.
3. Statistical Bullctin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). Statistical Bulletin svipar til Hag-
tíðinda að því er varðar birtingarefni, en er yfirgripsminna. Erlendir áskrif-
endur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskriftargjald þess
700 kr.
4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru alhr íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún
hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1977 var
1300 bls., og verð 17000 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að hún seljist upp.
5. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju
heildarskrár Hagstofunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur,
útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar-
skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og félags-
samtökum er skipt í 165 starfsgreinar. — Rit þetta kostar 1600 kr. í bandi.
Viðaukar við rit þetta voru gefnir út. í júní 1976 kom út skrá yfir alla
aðila, sem hafa sérstakt auðkennisnúmer í fyrirtækjaskrá Hagstofunnar, þ. e.
annað númer en nafnnúmer samkvæmt þjóðskrá. Er hér um að ræða tæp-
lega 13.000 atvinnufyrirtæki, stofnanir og félagssamtök. Ný, framfærð útgáfa
af þessari skrá er væntanleg síðla sumars 1978.
6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimih og fleiri upplýsingum
um dáua, koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yfir dána eftirtalin ár kosta
sem hér segir: 1965—67 (eitt hefti) 500 kr., 1968—74 7 hefti hvert á 300 kr.,
1975 350 kr., 1976 450 kr.
7. Bifrciðaskýrsla kemur út árlega í fjölrituðu hefti. í því eru um 20 töflur
með fjölþættum upplýsingum um hifreiðaeign landsmanna. Hagstofan tók við
þessu verkefni af Vegagerð ríkisins frá og með Bifreiðaskýrslu 1. janúar 1972.
— Bifreiðaskýrsla 1. jan. 1972—75 kostar 350 kr. hver um sig, Bifreiðaskýrsla
1. jan. 1976 450 kr., 1 jan. 1977 650 kr.
8. í ritinu Skrá um stofnanaheiti, sem kom út, fjölritað, á árinu 1972, er dönsk og
ensk þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Upp-
sláttaratriði í riti þessu er um 1500 að tölu. Venjulegar orðabækur eru hald-
htlar í þessu efni, og er þessu riti ætlað að bæta úr þeirri vöntun. Verðið er
400 kr.
Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10
(3. hæð), Reykjavík. Simi 26699. Póstgiróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646.
Rit eru send gegn póstkröfú, sé þess óskað, þó ekki rit það, er um ræðir i hð 4.