Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 2
Vikublað 30. september–2. október 20142 Fréttir
Innbrotahrina
í sumarbústaði
Lögreglunni á Selfossi bárust
þrjár tilkynningar um innbrot í
sumarbústaði skammt frá Kerinu
í Grímsnesi í liðinni viku. Í öllum
tilvikum hafði gluggi eða hurð
verið spennt upp til að komast
inn í húsin.
Mismiklu var stolið úr bústöð-
unum. Aðallega voru það rafmagn-
stæki eins og flatskjáir, verkfæri og
ýmsir smámunir. Þjófavarnarkerfi
fór af stað í einum bústaðanna 22.
september klukkan 09.24. Minnst
var tekið úr þeim bústað svo leiða
má líkur að því að þjófurinn hafi
lagt á flótta því engin var sjáan-
legur nærri þegar lögregla kom á
staðinn skömmu síðar.
Ekki er útilokað að sami
einstaklingur hafi verið að verki í
hinum tveimur bústöðunum, að
því er fram kemur í tilkynningu
frá lögreglunni á Selfossi.
Stórslösuðu hjólreiðamann
Lögregla leitar þeirra sem komu vírnum fyrir
L
ögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu rannsakar nú atvik sem
átti sér stað um klukkan 18 á
laugardag þegar hjólreiðamað-
ur hjólaði á vír sem strengdur hafði
verið yfir göngubrú frá Naustavogi
yfir á Geirsnef.
Lögreglan óskar eftir vitnum eða
upplýsingum um hverjir kunni að
hafa komið vírnum fyrir. Ef einhver
hefur upplýsingar um málið er við-
komandi beðinn um að hafa sam-
band við lögreglu með því að senda
tölvupóst á netfangið einar.asbjorns-
son@lrh.is, eða í gegnum Facebook-
síðu lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu.
DV.is fjallaði um málið um liðna
helgi en hjólreiðamaðurinn varð ekki
var við mannaferðir nálægt brúnni
þegar hann kom þar að. Er talið að sá
sem var að verki hljóti að hafa verið
nýbúinn að koma vírnum fyrir þegar
hjólreiðamaðurinn fór yfir brúna.
Maðurinn er tæplega fimmtugur,
vanur hjólreiðamaður og var vel
búinn. Þegar hann kom á brúna, þá
snarstoppaði hjólið á vírnum. Mað-
urinn tókst á loft og flaug í loftköstum
fram fyrir sig. Vinstri öxl mannsins er
illa farin eftir slysið og þá var hann
mjög lemstraður á andliti. „Hann er
óbrotinn sem betur fer, en það blæddi
mikið úr andlitinu á honum. Hann
lenti líka á höfðinu að hluta til og því
er ekki spurning að hjálmurinn bjarg-
aði því að ekki fór mikið verr,“ sagði
eiginkona mannsins.
Vírinn gæti komið úr nýju göngu-
brúnni en ljóst er að einhver kom
honum svona fyrir. Talsvert átak
þarf til að binda hann fastan. Segja
má að sá sem kom honum fyrir hafi
í raun gert tilraun til að valda stór-
slysi enda hefði getað farið svo miklu
verr til dæmis ef maðurinn hefði ver-
ið á miklum hraða eða ef einhver lág-
vaxnari hefði verið á ferð. n
astasigrun@dv.is, birgir@dv.is
Sat blóðugur eftir Hér sést vírinn og
blóð úr manninum sem sat sár eftir.
Framvísaði
fölsuðu
vegabréfi
Ferðamaður framvísaði um
helgina fölsuðu vegabréfi við
komuna í vegabréfaskoðun í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. Maðurinn
framvísaði ísraelsku vegabréfi í
vegabréfaskoðuninni og töldu
tollverðir að vegabréfið væri fals-
að. Það reyndist vera rétt og var
maðurinn handtekinn. Lögregla
segir málið vera komið í hefð-
bundið ferli og til rannsóknar.
Á batavegi
Konan sem slasaðist alvar-
lega þegar hún féll í sprungu
skammt frá Þríhnúkagíg síðast-
liðinn föstudag er á batavegi.
Konan hlaut alvarlega
höfuðáverka. Hún var flutt á
sjúkrahús þar sem hún gekkst
undir aðgerð. Henni hefur ver-
ið haldið sofandi í öndunarvél,
en er nú laus úr henni en er þó
enn á gjörgæsludeild.
Sigraði Dróma
Björn Steinbekk og eiginkona hans höfðu betur eftir fjögurra ára baráttu
E
ftir fjögurra ára slag við þá
er loksins búið að endur-
reikna lánið eins og við báð-
um alltaf um,“ segir Björn
Steinbekk Kristjánsson
framkvæmdastjóri í samtali við DV.
Hann hefur síðustu fjögur ár stað-
ið í stappi við Dróma hf., hlutafélag
sem innheimtir lán sem voru í eigu
SPRON og Frjálsa fjárfestingabank-
ans, og hefur sagt félagið brjóta gegn
skyldum sínum sem fjármálastofn-
un og lánveitandi. „Arion banki
ákvað að gera það sem Drómi gerði
aldrei, að endurreikna lánið okkar
og afturkalla uppboð á eign okkar
hjóna, sem þýðir jú kannski að eftir
fjögur ár, þá unnum við sigur.“
„Ég skil að fólk sé óttaslegið“
Björn keypti efri hæð húss að
Byggðarenda árið 2004 og fjármagn-
aði það annars vegar með tveim-
ur lánum frá Íbúðalánasjóði og
Íslandsbanka og hins vegar reiðu-
fé sem nam um fimm milljónum
króna. Árið 2007 var lán Íslands-
banka endurfjármagnað með láni
frá Frjálsa fjárfestingabankanum en
eins og fyrr segir innheimti Drómi
lán bankans í kjölfar falls bankans.
Árið 2010 hætti
Björn að greiða af
láninu en honum
var þá orðið ljóst að
hann réði ekki við af-
borganirnar. Ekkert
gekk að semja við
Dróma og Björn
kærði háttsemi fé-
lagsins til Fjármála-
eftirlitsins þar sem
beiðni um 110 pró-
senta leið vegna
lánsins var hafnað
þó Íslandsbanki og
Landsbanki hefðu
afskrifað samanber
samkomulag milli
ríkisins og fjármála-
stofnana um 110
prósenta leiðina. Hann ræddi málið
opinberlega í fjölmiðlum og gerði
alvarlegar athugasemdir við aðferð-
ir Dróma við að verðmeta íbúðina
og sagði félagið brjóta gegn skyld-
um sínum sem fjármálastofnun og
lánveitandi.
Í kjölfar þessa fékk hann bréf
frá Ingólfi Friðjónssyni, fram-
kvæmdastjóra Dróma, þar sem
Ingólfur lagði til að Björn veitti
Dróma heimild til að gera viðskipti
hans opinber. Í samtali við DV í
febrúar 2012 sagðist Björn hafa litið
á þetta sem hreina hótun frá fram-
kvæmdastjóranum: „Ég skil að fólk
sé óttaslegið.“
Hver var tilgangurinn?
„Ég kærði Dróma og vinnubrögð
þeirra til Fjármálaeftirlitsins á sínum
tíma og þaðan var því vísað áfram
til úrskurðarnefndar
um viðskipti við fjár-
málastofnanir, sem tók
í rauninni ekki efnis-
lega afstöðu til málsins
en staðfesti þó að verð-
matið á eigninni hefði
verið of hátt.“ Hins vegar
hafi Drómi alltaf neitað
að gera eitthvað í mál-
inu sem endaði með því
að þeir buðu upp eign-
ina og áttu hæsta boð. Í
framhaldinu var ákveðið
að samþykkisfrestur yrði
til 7. janúar 2014.
Þann 30. desember var lögum
um nauðungarsölur hins vegar
breytt sem þýddi að ekki fór fram
fullnusta á uppboðinu. Á sama
tíma tók Arion banki yfir lánasafn
einstaklinga hjá Dróma. „Þá endur-
reiknaði Arion banki lánið eins og
við höfðum farið fram á, og lækk-
aði það um tæplega átta millj-
ónir, sem hafði alltaf verið okkar
málatilbúnaður. Á endanum aftur-
kölluðu þeir svo uppboðið sem þýð-
ir að við eigum eignina og það eru
engin uppboð í gangi,“ segir Björn
sem bætir við að hann velti því fyrir
sér hver tilgangurinn hafi verið hjá
Dróma öll þessi ár.
Skaðaði hundruð heimila
„Það er komin endanleg niðurstaða
á skuldastöðu á eigninni og Arion
banki gerði rauninni allt það sem
Drómi neitaði að gera og gott betur.“
Aðspurður hvað geti skýrt muninn á
vinnubrögðum Dróma annars vegar
og Arion banka hins vegar segir
Björn: „Drómi var þrotabú Frjálsa
fjárfestingabankans og SPRON.
Samkvæmt lögum um þrotabú
skal skiptastjóri hámarka heimtur
búsins. Það tel ég að hafi haft áhrif
og hindrað stjórnendur Dróma í að
fara þá leið að semja við fólk.“
Þá sitji eftir sú staðreynd að
fyrir bæri eins og Drómi hafi verið
sett upp með ákvörðun Fjármála-
eftirlitsins og í samráði við fjármála-
ráðherra á þeim tíma, Steingrím J.
Sigfússon. „Og hvernig eiga einstak-
lingar, sem hafa ekkert um það að
segja hvar þeirra skuldir liggja, eða
er unnið gegn, að snúa sér til FME
eða annarra yfirvalda? Þetta var frá
fyrstu hendi afleit hugmynd og skað-
aði hundruð heimila. Og enn hefur
engin tekið ábyrgð á henni, sem er
sorglegast.“
Björn segir málið allt hafa tekið
sinn toll. „Varðandi okkur hjónin
hefur þetta skemmt mikið. Að vita
ekki skuldastöðu sína og geta ekki
tekið ákvarðanir fram í tímann hefur
reynt mikið á. Við erum á vanskila-
skrá vegna þessa máls þó svo við telj-
um að á okkur hafi verið brotið. Það
hefur tekið toll og gert okkur erfitt
fyrir að koma undir okkur fótunum
eftir hrun en framtíðin er björt og
fortíðinni breytum við ekki.“ n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
„Arion banki ákvað
að gera það sem
Drómi gerði aldrei, að
endurreikna lánið okkar og
afturkalla uppboð á eign
okkar hjóna, sem þýðir jú
kannski að eftir fjögur ár,
þá unnum við sigur.
Frjálsi og Dróma Drómi hf. er hlutafélag sem innheimtir lán sem voru í eigu SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans.
Hefur reynt
mikið á Björn
Steinbekk segir
málið hafa reynt
mikið á. Þau
hjónin séu á
vanskilaskrá
þrátt fyrir að á
þeim hafi verið
brotið.