Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 16
Vikublað 30. september–2. október 201416 Fréttir Erlent Glæpagengi stela olíu fyrir milljarða n Eiturlyfjaklíkur í Mexíkó snúa sér að olíunni n Stálu fyrir 140 milljarða í fyrra M exíkósk eiturlyfjasamtök hala inn hundruð millj- arða króna á hverju ári vegna smygls og sölu á fíkniefnum. Þetta er ekki eina tekjulind þessara alræmdu samtaka því undanfarin miss- eri hafa þau í auknum mæli beint spjótum sínum að olíuiðnaðinum í Mexíkó og stolið olíu fyrir ótrúlegar fjárhæðir. 7,5 milljónum tunna stolið Fréttastofa AP fjallaði um málið fyrir skemmstu og þar var meðal annars vitnað í gögn frá ríkisrekna olíufyrirtækinu Pemex sem sýndu að aðferðir glæpagengja við að stela olíu væru sífellt að verða þróaðri. Það sem af er þessu ári hafa þjófar í Mexíkó borað að minnsta kosti 2.481 gat á olíuleiðslur víðs vegar um Mexíkó sem er talsverð fjölgun frá sama tímabili árið 2013 þegar um 1.600 göt voru boruð. Pemex áætlar að samtals hafi um 7,5 millj- ónum tunna af olíu verið stolið allt árið í fyrra en verðmæti þessa magns er talið nema um 1.150 milljónum Bandaríkjadala, tæpum 140 milljörðum íslenskra króna. Miklir fjármunir í húfi Forsvarsmenn Pemex eru skiljan- lega áhyggjufullir vegna þessarar þróunar og það ekki að ástæðu- lausu – gríðarlegir fjármunir eru í húfi. Hvað sem því líður hefur enn sem komið er reynst erfitt að hafa hendur í hári þeirra sem skipu- leggja og framkvæma þjófnaðinn. Glæpagengin hafa að mestu beint spjótum sínum að Tamaulipas- héraði í norðausturhluta Mexíkó en miklar olíuauðlindir eru undan ströndum héraðsins í Mexíkóflóa. Talið er að tuttugu prósent allra þjófnaða á olíu með þessum hætti eigi sér stað í Tamaulipas-héraði. Viðamiklar áætlanir Mexíkósk yfirvöld eru stórhuga varðandi vinnslu á jarðefnaelds- neyti – olíu og gasi – á næstu árum, en talið er að aðeins fimm þjóðir í heiminum eigi meiri birgðir af jarð- gasi en Mexíkó. Þá er talið að Mexík- óar geti unnið 60 milljarða tunna af hráolíu, eða tvisvar sinnum meira magn en Mexíkóar hafa unnið á síðustu 100 árum. Breytingar voru gerðar á lögum í Mexíkó í desem- ber síðastliðnum en þau gerðu Pemex meðal annars kleift að leita að erlendum fjárfestum til að taka þátt í mexíkóska olíuævintýrinu. Vonast þau til þess að erlend fyrir- tæki muni fjárfesta fyrir um 10 til 15 milljarða dala, allt að 1.800 millj- örðum króna, á ári hverju næstu árin. Til að það gangi eftir þarf þó að koma böndum á gegndarlausan olíuþjófnað sem eiturlyfjasamtök- in bera að stærstum hluta ábyrgð á. Selt til bensínstöðva David Penchyna sem fer fyrir orkumálanefnd mexíkóska þings- ins segir að lagaumbæturnar sem gerðar voru í fyrra skili ekki tilætl- uðum árangri ef ekki verður hægt að skrúfa fyrir lekann á olíuleiðsl- unum, ef svo má segja. „Stærsta áskorun okkar er Tamaulipas – og ég segi það án þess að skammast mín,“ hefur AP eftir honum. Sam- kvæmt AP eru það einkum tvö glæpasamtök sem bera ábyrgð á þjófnaðinum, Zetas og Gulf Cartel. Gengin hafa notað héraðið sem smyglleið fyrir fíkniefni til Banda- ríkjanna. Til að auka fjölbreytni – og hagnað – hafa klíkurnar í auknum mæli stolið olíu sem þær svo selja, annaðhvort til hreinsunarstöðva í Mexíkó eða jafnvel til bensínstöðva beggja vegna landamæranna. Vitorðsmenn hjá Pemex Mexíkóski herinn hefur haft því hlutverki að gegna að reyna að hafa hendur í hári þjófanna. Þar sem olíuleiðslurnar liggja víða um óbyggðir héraðsins grípa hermenn oftar en ekki í tómt þegar upp kemst um þjófnað. Flest bendir til þess að þjófarnir hafi vitorðsmenn hjá Pemex enda þarf kunnáttu til að bora í gegnum leiðslurnar. „Það er ómögulegt að framkvæma þetta án þess að hafa innanbúðar- upplýsingar,“ segir Marco Anton- io Bernal, þingmaður í héraðinu, sem hefur lagt fram frumvarp um að viðurlög við olíuþjófnaði verði hert. Vísar hann meðal annars til þess að ekki sé alltaf flæði í leiðsl- unum og því hljóti þjófarnir að hafa upplýsingar um tímasetn- ingar og annað. n Olíuvinnsla Mexíkóar búa yfir miklum birgðum af jarðefnaeldsneyti. Þjófar vilja fá sína sneið af kökunni. „Stærsta áskor- un okkar er Tamaulipas – og ég segi það án þess að skamm- ast mín. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Áhyggjufullir Forsvarsmenn Pemex eru skiljanlega áhyggjufullir. Gegndarlaus þjófnaður gæti fælt fjárfesta frá að taka þátt í olíuævintýrinu í Mexíkó. Krabbamein plagar slökkvi- liðsmenn Þrír fyrrverandi slökkviliðs- menn í New York sem létust úr krabbameini í síðustu viku með nokkurra klukkustunda milli- bili áttu það allir sameiginlegt að hafa verið með þeim fyrstu sem komu að Tvíburaturnunum eftir hryðjuverkaárásirnar þann 11. september 2001. Heilsufars- vandamál hafa plagað stóran hluta þessara starfsmanna; slökkviliðsmanna, sjúkraflutn- ingamanna, lögreglumanna og annarra sem tóku þátt í björg- unaraðgerðum. Þremenningarnir, Daniel Heglund, Robert Leaver og Howard Bischoff, létust á mánu- dag í síðustu viku. Allir létu þeir af störfum fljótlega eftir árásirn- ar, eða árið 2003. Því fer fjarri að þeir séu þeir fyrstu úr hópi slökkviliðsmanna sem tóku þátt í aðgerðunum í New York sem hljóta þessi örlög. Talið er að fjöldi slökkviliðsmanna sem dáið hafa úr kvillum sem beinlínis er hægt að tengja við daginn örlagaríka nemi níutíu og tveimur. Þá glíma hundruð slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna við öndunarfærakvilla. Samkvæmt opinberum skýrslum um heilsufarstengdar afleiðingar hryðjuverkaárásanna 2001 voru björgunaraðilar mjög berskjaldaðir gagnvart krabba- meinsvaldandi efnum af ýmsum toga sem dreifðust um loftið eftir að byggingarnar hrundu. „Að missa þrjá slökkviliðsmenn sama daginn úr kvillum tengd- um 11. september er sársauka- full áminning um það að nú, þrettán árum síðar, eru slökkvi- liðsmenn enn að gjalda dýru verði fyrir hetjudáð sína,“ sagði Daniel Nigro, slökkviliðsstjóri New York-borgar í yfirlýsingu. Heglund starfaði sem slökkvi- liðsmaður í 21 ár, Leaver starfaði í 20 ár en Bischoff í 19 ár. Ghani sór embættiseið Ashraf Ghani sór á mánudag embættiseið sem forseti Afganist- ans. Hann fór með sigur af hólmi í forsetakosningum í landinu fyrir hálfu ári, en ásakanir um kosn- ingasvindl og kröfur um endur- talningu töfðu ferlið. Kjörstjórn lýsti Ghani sigurvegara fyrir helgina. Ghani er hagfræðingur og starfaði áður sem slíkur hjá Al- þjóðabankanum. Hann hefur að undanförnu verið rektor við há- skólann í Kabúl en einnig verið fjármálaráðherra Afganistans. Hann segist ætla að leggja áherslu á að vinna að friði, takast á við spillingu í landinu og gera breytingar á stjórnarskrá þess. Hann vill friðarviðræður við tali- bana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.