Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 18
Vikublað 30. september–2. október 201418 Fréttir Erlent
Þessir eiga dýrustu
snekkjur veraldar
n Ólígarkar og olíufurstar fjölmennastir í hópi þeirra sem eiga heimsins flottustu snekkjur
1 EclipseEigandi: Roman Abramovich
Verðmat: 1 billjón dollarar
Abramovich lætur ekki sitt eftir liggja og á þessa ótrúlegu snekkju, sem fram til ársins árið
2010 var sú stærsta í heimi. Hún er um 160 metrar að lengd og í henni er að finna veitinga-
stað, skemmtistað, hárgreiðslustofu og tvo þyrlupalla. Sagan segir að snekkjan sé búin
einhvers konar leysigeisla sem varnar því að hægt sé að taka skarpar myndir af áhöfninni
með aðdráttarlinsum.
2 AzzamEigandi: Sheikh Khalifa bin Zayed al-Nahyan
Verðmat: 600 milljónir dollara
Þessi snekkja er 180 metrar að lengd, lengri en mörg stór skemmtiferðaskip. Eigandinn
er forseti Sameinuðu arabísku furstadæmanna, og hefur sjálfsagt unnið baki brotnu frá
barnsaldri. Fjögur ár tók að smíða snekkjuna. Í henni eru sögð 50 lúxusherbergi. Skipið
kostaði 627 milljónir fullbúið, en það er aðeins 3,5 prósent af auðæfum sjeiksins.
10 Al MirqabEigandi: Hamad bin Jassim bin Jaber bin
Muhammad Al Thani
Verðmat: 250 milljónir dollara
Al Thani er fyrrverandi forsætisráðherra olíuríkisins
Katar. Snekkjan er 133 metrar að lengd en smíði hennar
lauk árið 2008. Tólf tveggja manna smáíbúðir eru í
snekkjunni og hvert og eitt er búið svefn- og baðher-
bergi. Í snekkjunni er einnig að finna bíósal, sundlaug,
þyrlupall og 55 manna starfslið.
8-9 Al SaidEigandi: Qaboos bin Said Al Said
Verðmat: 300 milljónir dollara
Soldáninn af Óman á þessa rosalegu snekkju. Hún
er heilir 155 metrar að lengd, eins og einn og hálfur
knattspyrnuvöllur af stærstu gerð, og hefur pláss fyrir
70 gesti. Í áhöfninni eru 154, hvorki meira né minna. Í
skipinu er meðal annars lyfta, þyrlupallur og tónleika-
salur. Þar gæti rúmast 50 manna stórhljómsveit.
8-9 PelorusEigandi: David Geffen
Verðmat: 300 milljónir dollara
Snekkjan var upphaflega smíðuð fyrir auðmenn í Sádi-
Arabíu en Íslandsvinurinn Roman Abramovich keypti
hana árið 2004. Þegar hann skildi við eiginkonuna fékk
hún snekkjuna en síðar keypti kvikmyndaframleið-
andinn Geffen bátinn. Snekkjan er 115 metrar að lengd
og er búin tveimur þyrlupöllum og fullri lest af ýmiss
konar rándýrum leiktækjum, svo sem sjóköttum.
Í síðustu viku fór fram
árleg sýning, já eða
hátíð, snekkjueigenda
í Mónakó. Þar safnast
árlega saman margir af
auðugustu auðjöfrum
heims og bera saman
bækur sínar og snekkjur.
Samkeppnin þeirra á
milli er mikil enda er auði
heimssins stórlega mis-
skipt. Nokkrir útvaldir
vita beinlínis ekki aura
sinna tal á meðan
aðrir jarðarbúar hafa
hvorki í sig né á. Þeir
hinir fyrrnefndu eiga
snekkjurnar sem hér er
fjallað um. Þetta eru dýr-
ustu snekkjur veraldar.
7 DúbaíEigandi: Prince Jefri Bolkiah
Verðmat: 300 milljónir dollara
Þessi risasnekkja er heilir 162 metrar að stærð. Jefri
Bolkiah, frá Brúnei, hrinti verkefninu úr vör en smíðin
dróst á langinn – um heilan áratug. Það var svo Sheikh
Mohammed Rashid al-Maktoum, emírinn af Dúbaí sem
lét ljúka við smíðina. Snekkjan getur hýst 115 manns og
hefur sjö þilför. Í snekkjunni er sundlaug, skvasssalur,
þyrlupallur (auðvitað) og lítill kafbátur.
6 RadiantEigandi: Abdulla Al Futtaim
Verðmat: 320 milljónir dollara
Ólígarkinn Boris Berezovsky lét byggja þessa risasmíð
á sínum tíma en seldi hana síðan núverandi eiganda,
bílasala í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Sá sem
er nógu ríkur til að eiga svona snekkju hlýtur að eiga óvini
líka. Hún er búin byssum sem geta skotið afar öflugum
hljóðbylgjum að hverjum þeim sem nálgast skipið; sem
sprengir hljóðhimnur þeirra. Þá býr hún líka yfir fallbyss-
um sem geta sökkt skipum í allt að 90 fjarlægð. Hraðbát-
ur er á meðal búnaðar í skipinu, auk alls kyns leikfanga.
4 AEigandi: Andrey Melinchenko.
Verðmat: 390 milljónir dollara
Þessi óvenjulega en fallega snekkja var hönnuð af
Philippe Stark. Hún tilheyrir rússneska ólígarkanum
Andrey Melinchenko. Blöndunrtækin eru ekki keypt í
BYKO. Þau kosta ein og sér um fimm milljónir króna. Í
snekkjunni, með þetta sérkennilega nafn, er auðvitað
ýmiss konar lúxus. Til dæmis er hægt er að snúa
rúmunum með einum takka, til að hægt sé njóta
sólarlagsins sem best.
5 SereneEigandi: Yuri Scheffler
Verðmat: 330 milljónir
Þessi snekkja er búin neonljósum úr túrkís, sem gera
það að verkum að hún lýsist upp í myrkri. Eigandinn er
stórtækur framleiðandi rússnesks vodka. Gólfpláss
snekkjunnar er samtals tæpir 4.500 fermetrar og
þilförin eru sjö. Í snekkjunni er að finna bæði inni- og
útisundlaug. Í henni eru tólf svítur, bíósalur og þyrlu-
pallur.
3 TopazEigandi: Mansour Bin Zayed Al Nahyan
Verðmat: 520 milljónir dollara
Þessi bátur er 147 metrar að lengd og er spánnýr, eða
því sem næst, byggður árið 2012 af Lurssen Yachts.
Í snekkjunni er þyrlupallur, kvikmyndasalur, líkams-
ræktarstöð auk alls kyns þæginda. Eigandinn er fulltrúi
forsætisráðherra Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna. Hann er með allra ríkustu mönnum, eins og
gefur að skilja.