Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 10
10 Fréttir Vikublað 30. september–2. október 2014 Aðförin Að eftirlitinu n Eftirlitsstofnanir sitja undir ýmsum ásökunum á sama tíma og framlög til þeirra eru E mbætti umboðsmanns Al- þingis hefur undanfar- ið mátt sæta atlögu af hálfu þeirra sem það á að hafa eftir lit með lög- um samkvæmt. Þannig hafa þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar gagn- rýnt umboðsmann harðlega fyrir vinnulagið í tengslum við frum- kvæðisathugun embættisins á samskiptum innanríkisráðherra og lögreglustjóra meðan á rannsókn lekamálsins stóð. Þá eru fyrrver- andi hæstaréttardómari og ritstjóri Morgunblaðsins á meðal þeirra sem hafa vegið að embættinu vegna málsins. Starf umboðsmanns Alþingis og annarra stofnana er ekki hafið yfir málefnalega gagnrýni en líkt og rakið verður hér á eftir hefur gagn- rýnin á umboðsmann Alþingis hins vegar ekki verið byggð á málefna- legum rökum. Atlaga stjórnvalda er alvarleg í ljósi þess að embættið er einungis að sinna lögbundnu hlut- verki sínu, sem er að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöld- um. Tilgangurinn virðist sá að grafa undan trúverðugleika eftirlitsstofn- unarinnar á meðan fyrrgreint mál er til umfjöllunar og reyna þannig að draga tennurnar úr embættinu. Málið er ekki síður alvarlegt með hliðsjón af stöðu opinberra emb- ættismanna sem eiga eðli málsins samkvæmt erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér gagnvart gagnrýni stjórnmálamanna eða annarra sem hafa hagsmuna að gæta. Hér á eftir verður atlagan að embætti um- boðsmanns Alþingis rakin. Réttur borgara gagnvart stjórnvöldum Þann 29. júlí greindi DV frá ítrek- uðum afskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra af lögreglurannsókn á lekamálinu, sem beindist að ráðuneyti hennar, henni sjálfri og aðstoðarmönnum sem voru með réttarstöðu grun- aðs í málinu. Þá kom fram að ráð- herra hefði boðað Stefán Eiríksson, þáverandi lögreglustjóra á höfuð- borgarsvæðinu, á sinn fund vegna málsins, og hringt í hann til að ræða rannsóknina. Hanna Birna hafnaði með öllu því sem hún kallaði „stór- yrtar og ósannar fullyrðingar DV“ og sagðist hvorki hafa beitt Stefán Eiríksson þrýstingi né haft óeðlileg afskipti af rannsókninni. Tryggvi Gunnarsson, umboðs- maður Alþingis, tók málið upp og sendi Hönnu Birnu bréf þar sem embættið fór fram á svör varðandi samskipti ráðherra við lögreglu- stjóra. Vert er að hafa í huga að með þessu var embættið að sinna lög- bundinni eftirlitsskyldu sinni en í 2. grein laga um umboðsmanns Al- þingis segir orðrétt: „Hlutverk um- boðsmanns er að hafa í umboði Al- þingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögum þessum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal hann gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti.“ Sakaður um „tilefnislausa aðför“ Svör Hönnu Birnu voru ekki full- nægjandi en hún lét undir höfuð leggjast að svara ýmsum spurn- ingum umboðsmanns. Embættið ítrekaði því kröfu sína í öðru bréfi sem sent var á ráðherrann þann 6. ágúst. Sama dag birtist leiðari eftir Davíð Oddsson, ritstjóra Morgun- blaðsins, þar sem hann reyndi að gera aðkomu umboðsmanns Al- þingis tortryggilega. Þar kom fram að rannsókn lekamálsins væri orðið sjálfstætt rannsóknarefni, og að ekki væri auðvelt að sjá „hvaða erindi“ umboðsmaður ætti inn í málið. Daginn eftir fór Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæsta- réttardómari, hörðum orðum um umboðsmann og vó að starfsheiðri hans, í aðsendri grein í Morgun- blaðinu. Ávirðingar hans – sem voru hvorki studdar með rök- semdum né gögnum – byggðu meðal annars á því að aðkoma embættisins væri „ómálefnaleg“ og „tilefnislaus aðför“ að ráðherr- anum. Jón Steinar sakaði umboðs- mann um að hafa farið offari með því að óska eftir svörum ráðherra. Hann hefði gerst liðsmaður „í flokki ófagnaðarmanna“ sem vildu koma „höggi á ráðherrann.“ Skoða verður skrif Jóns Steinars í ljósi þess að hann var lögfræðiráð- gjafi innanríkisráðherra á þessum tíma og hafði veitt Hönnu Birnu sérstaka ráðgjöf vegna lekamáls- ins. Sjálfur sleppti hann því hins vegar að láta þess getið. Stuttu síðar eða þann 12. ágúst sakaði Morgun- blaðið, í Staksteinum, svo umboðs- mann um ítrekuð lögbrot, þar sem embættið hefði ekki gefið Alþingi árlega skýrslu um starfsemi sína á tilsettum tíma. Dylgjur, dómar og aðdróttanir Í þriðja bréfi umboðsmanns Al- þingis til innanríkisráðherra, sem birt var á vef embættisins, þann 26. ágúst síðastliðinn, kom fram að embættið hefði að eigin frumkvæði ákveðið að taka samskipti ráð- herra og lögreglustjóra til formlegr- ar athugunar. Í bréfinu var að finna afhjúpandi frásögn Stefáns Eiríks- sonar af ítrekuðum afskiptum og þrýstingi sem ráðherra beitti hann vegna lögreglurannsóknarinnar á lekamálinu. Innanríkisráðherra brást við með því að hjóla í umboðs- mann Alþingis í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. Þar sagð- ist Hanna Birna undrast vinnu- brögð umboðsmanns. Ekkert nýtt kæmi fram í bréfi hans og að hún væri „hugsi og sorgmædd“ yfir því hvernig ýmsar stofnanir kæmust upp með að setja fram „eigin dylgj- ur og dóma án rökstuðnings“ í garð hennar. Hún sagði bréfið samanstanda af „aðdróttunum og tengingum“ sem bentu til þess að umboðsmaður hefði þegar mótað sér skoðun í málinu. Þá sakaði hún umboðsmann um að setja trúnað- arsamtöl Stefáns Eiríkssonar við hana og aðra „í óskiljanlegt sam- hengi.“ Mannréttindi ráðherra? „Ég var ekki kosin til að verja hags- muni kerfis sem ég tel að þurfa að bæta og breyta - heldur til að verja hagsmuni almennings,“ sagði Hanna Birna stuttu eftir að sam- skipti hennar við Stefán Eiríksson höfðu verið gerð opinber. Þá gagn- rýndi hún að bréfið hefði verið birt áður en hún hafði svarað því. Taldi hún að með þessu hefði umboðs- maður beitt hana ranglæti og að andmælaréttur hennar hefði ekki verið virtur. Þess má geta að bréf sem umboðsmaður Alþingis send- ir vegna frumkvæðisathugana eru undirorpin upplýsingaskyldu stjórnvalda. Almenningur og fjöl- miðlar eiga rétt á aðgangi að slíkum bréfum samkvæmt upplýsingalög- um. Þá hafði Hanna Birna tvívegis fengið tækifæri til þess að útskýra sína hlið á málinu í opnum bréfum til umboðsmanns. Þannig var ekk- ert athugavert við vinnulag embætt- isins í umræddu máli. Þrátt fyrir það tóku Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra og Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, Situr undir árásum Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, hefur setið undir linnu­ lausum árásum, síðan hann hóf að spyrja innanríkisráðherra út í samskipti hans við lögreglustjóra. Ekki kosin til að verja kerfið „Ég var ekki kosin til að verja hagsmuni kerfis,“ sagði Hanna Birna stuttu eftir að samskipti hennar við Stefán Eiríksson höfðu verið gerð opinber. Björn Bjarnason fyrrverandi dóms­ málaráðherra, sagði umboðsmann Alþingis „leggja lykkju á leið sína til að rökstyðja aðkomu sína að málinu.“ Vill rannsaka rannsókn Davíð Oddsson sagði í leiðara Morgunblaðsins að rannsókn lekamálsins væri orðin sjálfstætt rannsóknar­ efni. Ráðgjafi fram á ritvöllinn Jón Steinar Gunnlaugsson ráðgjafi Hönnu Birnu vó að starfsheiðri umboðsmanns í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Kenning Elliða Bæjarstjórinn í Vesta­ mannaeyjum, kom fram með þá kenningu að umboðsmaður væri með athugun sinni að „styrkja valdastöðu sína.“ Mannréttindi ráðherra Sigmundur og Bjarni gagnrýndu umboðsmann Alþingis fyrir að birta bréf til innanríkisráðherra opinberlega. Jóhann Hauksson Jón Bjarki Magnússon johannh@dv.is / jonbjarki@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.