Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 30. september–2. október 2014
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.
A
lþjóðasamfélagið lýsti yfir
hryllingi sínum og and-
styggð á aðgerðum hryðju-
verkasamtakanna Boko
Haram í apríl síðastliðnum.
Þá rændu nígerísku samtökin um 276
ungum stúlkum um miðja nótt. Mikil
áhersla var lögð á að koma böndum
yfir vígamennina og frelsa stúlkurnar.
Myllumerkið „#bringbackourgirls“
var sent út á samfélagsmiðlum til að
vekja athygli á voðaverkunum. Það
átti að veita þjóðarleiðtogum aðhald
og minna á kröfuna um að stúlkurn-
ar yrðu frelsaðar. Nú fimm mánuðum
síðar hefur lítið breyst og hafa Boko
Haram-samtökin haldið áfram árás-
um sínum á þorp í Nígeríu.
Má ekki gleymast
Meðvitund einstaklinga á samfélags-
miðlunum er þó enn mikil og daglega
tísta um 3.000 notendur á Twitter um
málið og í heildina hefur því verið tíst
um fimm milljón sinnum. Banda-
ríska öldungadeildarþingkonan
Frederica Wilson er í hópi þeirra sem
tísta. Hún segist hafa heitið því að
vekja daglega athygli á voðaverkun-
um þar til stúlkurnar finnast. „Þetta
má ekki gleymast,“ segir Wilson.
Eina sem þær gerðu
var að mæta í skólann
Newsweek fjallaði á dögunum um
erindi eftir Florence Ozor, nígeríska
athafnakonu, sem segir mannránið
mikinn harmleik. Ozor flutti erindið
fyrst á ráðstefnunni Women‘s
Leadership Retreat. „Það eina sem
stúlkurnar gerðu var að fara í skól-
ann,“ segir hún.
„Í fyrstu var ég hissa. Ekkert var
sagt eða gert til að bjarga stúlkun-
um okkar. Umræðan um málið var
engin í Nígeríu. En um allan heim
var krafan um að frelsa stúlkurnar
(#BringBackOurGirls) mikil og fór
eins og eldur í sinu bæði meðal al-
mennra borgara, frægra einstaklinga
og stjórnmálamanna sem neituðu
að taka þátt í þögguninni,“ segir hún
og bendir á konu að nafni Hadiza
Bala Usman sem tók málin í sínar
hendur og blés til mótmæla í Nígeríu
þar sem hún krafðist aðgerða stjórn-
valda. „Það þurfti að krefjast þess
að stjórnvöld björguðu stúlkunum
okkar,“ segir Ozor. Hópur kvenna hef-
ur síðan staðið vaktina, alla daga frá
30. apríl. Þær hafa mótmælt kröftug-
lega og fyrir vikið sætt hótunum,
áreitni auk þess sem stjórnvöld hafa
reynt að banna þeim með lögum að
mótmæla. „En þeir þagga ekki nið-
ur í okkur,“ segir Ozor. „Stúlkurnar
okkar eru ekki komnar heim. Þetta er
harmleikur sem við neitum að sam-
þykkja. Ef aðeins helmingurinn af
þeim úrræðum sem notuð voru við
leitina að malasísku flugvélinni hefði
verið nýttur til að bjarga þeim væru
stúlkurnar nú í öruggri höfn,“ segir
hún. „Við höfum fengið heiminn til
að hugsa um þetta, en nú er tími að-
gerða.“
Færa sig upp á skaftið.
Ozor bendir á að ef eitthvað hafi
Boko Haram fært sig upp á skaftið að
undanförnu. Liðsmenn samtakanna
hafa nú hertekið bæi við landamæri
Nígeríu og Kamerún. Þá hafa sam-
tökin, sem upp til hópa hafa aðeins
notað karlmenn í bardögum sínum,
beitt ungum konum undanfarið. „Ég
óttast að þær séu þvingaðar til þess
að sprengja sig í loft upp,“ segir hún.
„Við megum ekki gleyma þeim. Við
megum ekki bregðast þeim. Komið
stúlkunum okkar heim – núna og á
lífi.“
Í síðasta mánuði herjuðu Boko
Haram á karlmenn og pilta í Borno
í norðausturhluta Nígeríu. Þá myrtu
þeir 28 og rændu 97 karlmönnum
og drengjum. 25 menn særðust í
árásinni þar sem Boko Haram fóru
með ofbeldi um og kveiktu í heimil-
um. Liðsmenn hryðjuverkasamtak-
anna voru klæddir einkennisklæðn-
aði hermanna og lögreglumanna
og skutu á hópinn. „Þeir hrintu
mönnunum okkar og drengjunum
inn í bílana sína og hótuðu að skjóta
hvern þann sem óhlýðnaðist þeim.
Allir voru hræddir,“ segir einn þeirra
sem lifði árásina af. n
„Komið stúlkunum
okkar heim núna“
n Boko Haram herja enn í Nígeríu og ekkert hefur spurst til 297 skólastúlkna sem var rænt
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is Boko Haram
Nígerísku Boko Haram-samtökin
hafa undanfarið valdið miklum usla í
þéttbýlasta ríki Afríku, Nígeríu. Um er
að ræða hryðjuverkasamtök herskárra
múslima sem vilja stofna íslamskt
Nígeríuríki. Það hafa meðlimir sam-
takanna gert með því að skipuleggja
aftökur, sprengjuárásir og nú mannrán.
Þúsundir hafa fallið í aðgerðum
þessara hryðjuverkasamtaka. Ætlun
samtakanna er að steypa núverandi
stjórnvöldum í Nígeríu af stóli og koma á
íslömskum bókstafslögum og reglum.
Hvar eru þær?
Boko Haram birtu
meðal annars mynd-
bönd af stúlkunum.
P
eter Nunn hefur verið fang-
elsaður fyrir að senda bresku
þingkonunni Stellu Creasy hót-
anir á Twitter. Maðurinn hót-
aði meðal annars að nauðga þingkon-
unni vegna skoðana hennar á því að
mynd af rithöfundinum Jane Austen
ætti að vera sett á nýja 10 punda
peningaseðla. Nunn hótaði einnig
Caroline Criado-Perez, sem setti af
stað herferð til að auglýsa Austen sem
spennandi kost á seðlana.
Málið þykir sérstaklega eftirtekta-
vert, enda er það eitt hið fyrsta sinn-
ar tegundar þar sem ofbeldi á netinu
kemur við sögu. „Þetta er fyrsta skref-
ið í því að takast á við netofbeldi og
viðurkenna afleiðingar þess,“ segir
þingkonan. „Við þurfum að senda skýr
skilaboð um að svona verði ekki liðið,
hvaðan sem það kemur. Þetta er gam-
all glæpur sem tekur á sig nýja mynd.“
Maðurinn var ákærður og kröfðust
báðar konurnar þess að fá nálgunar-
bann á hann. Meðal þeirra skilaboða
sem hann sendi á netið voru: „Ef þú
mátt ekki hóta því að nauðga frægu
fólki, til hvers er þetta fólk þá,“ og þá
lýsti hann því hvernig hann teldi best
að beita „nornir,“ eins og hann kallaði
Creasy og Criado-Perez, kynferðis-
legu ofbeldi og nauðga þeim. n
astasigrun@dv.is
Hótaði að nauðga þingkonu
Vildi ekki rithöfundinn Jane Austen á 10 punda seðil
Kynferðislegar hótanir Báðar konurnar
óttuðust manninn mikið.