Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Blaðsíða 32
32 Menning Vikublað 30. september–2. október 2014 Semur við eina virtustu plötu- útgáfu heims Önnur plata tónskáldsins Önnu Þorvaldsdóttur verður gefin út af einu virtasta útgáfufyrirtæki heims, Deutsche Grammophon. Þetta fornfræga útgáfufyrirtæki einbeitir sér fyrst og fremst að útgáfu á klassískum tónverkum og þykir það því mikill heiður að fá inni með nýja tónlist hjá fyrir- tækinu. „Almennt séð hafa þau verið mjög varkár í vali á slíkri útgáfu,“ segir Anna. Samningur- inn hljóðar upp á útgáfu þessar- ar tilteknu plötu, sem áætlað er að komi út í nóvember, en Anna segir að þegar séu uppi áform um næstu útgáfu. Anna hlaut mik- ið lof gagnrýnenda fyrir plötuna Rhizoma sem kom út árið 2011 og fékk í kjölfarið tónlistarverð- laun Norðurlandaráðs fyrir verk- ið Dreymi af þeirri plötu. Sjálfshjálparbók sem skurðarbretti n Gaukar í Borgarleikhúsinu n Ferskt og frumlegt verk eftir Huldar Breiðfjörð T veir menn hittast á hótel- herbergi á ótilgreindum stað sem hvorki er Reykja- vík (Hilmar Guðjónsson) né landsbyggðin (Jóhann Sig- urðarson) heldur eitthvað alveg mitt á milli. Þar hafa þeir mælt sér mót, fulltrúar hvor síns helmings af þessu andstæðupari, ekki í neinum ískyggi- legum erindagjörðum heldur vegna páfagauks. Mennirnir tveir reynast svo gerólíkir að upplagi að þeir hrein- lega skilja ekki hvor annan. En þegar viðskiptin ætla að fara út um þúfur skakkar vetrarveðráttan leikinn og þeir verða fangnir á hótelinu, tveir saman auk fugls í búri, og þegar allt kemur til alls reynast þeir eiga tölu- vert sameiginlegt. Gaukar — titillinn er meira lýsandi fyrir verkið en áhorfandinn hyggur í fyrstu. Það hvarflar að áhorf- anda að ef til vill sé það ekki fuglinn sem er fanginn í búrinu heldur þeir. Hótelherbergið sem þeir þurfa að gera sér að góðu verður táknmynd fyrir líf þeirra sem hefur farið á ann- an veg en þeir hefðu óskað sér og þurft að deila með maka sem ekki skildi þá. Fyrr en varir eru þeir farnir að kýta eins og gömul hjón sem eiga ekki lengur saman á meðan búr páfa- gauksins, sem verður að algeru auka- atriði, varpar skugga sínum yfir her- bergið. Þannig verður búrið umgjörð verksins. Páfagaukurinn Pálfríður verður fyrir persónu Jóhanns Sigurðarsonar eins konar staðgengill konunnar sem yfirgaf hann og það eina sem veitir lífi hans gildi; gaukurinn hermir ein- göngu eftir henni og það sem hann áður hafði ekki áhuga á að gera með konu sinni er hann í eftirsjá sinni nú farinn að gera með páfagauknum. Hann brýnir fyrir persónu Hilmars Guðjónssonar að hann þurfi nú stundum að flauta fyrir gaukinn, enda þótt hún Pálfríður kunni eitt og eitt orð í íslensku þá tali hún ekki málið, og þá þurfi hún stundum að fá að heyra sitt eigið. Það er einmitt þetta sem þeir gaukar veita hvor öðr- um með viðkynningu sinni: í fyrsta sinn í langa hríð hafa þeir fundið ein- hvern sem talar sama mál og þeir. Þeir eru tilfinningaheftir karlar sem skilja ekki þær aðstæður sem þeir eru lentir í, skilja ekki hvað gerðist í sam- böndum þeirra og hvernig fyrrver- andi mökum þeirra getur liðið betur í nýja lífinu án þeirra eins illa og þeim sjálfum líður, og áhorfandinn fær á tilfinninguna að það sé margt ósagt í þeirri útgáfu af atburðunum sem þeir ræða sín á milli. „Karlar eru róman- tískari, sögðu félagarnir við mig. Þeir eru lengur að jafna sig.“ Gaukar er frábærlega skrifað verk og vel unnið í alla staði; frá sviðsmynd til lýsingar, hljóð- og myndvinnslu, tónlist Úlfs Eldjárns til frábærs leiks allra og ekki síst páfagauksins Juri í hlutverki Pálfríðar. Samspilið milli Hilmars og Jóhanns er tilfinninga- þrungið og fallegt og rýnandi komst við oftar en þrisvar. Gaukar er ekki létt verk, það fjall- ar um tímann sem alltaf vill renna út í sandinn, feigð, skilningsleysi og missi, en áhorfandinn er leidd- ur í gegnum það með góðu hlutfalli af kímni sem afhjúpar persónurnar á þægilegan hátt fremur en að hún virki á áhorfanda sem uppfylling- arefni. Rýnandi er ekki vanur því að skella upp úr en að sjá sveitamann- inn nota bókina Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus sem skurðar- bretti fyrir súrsaða selshreifa er að öðru ólöstuðu sennilega það eftir- minnilegasta og fyndnasta sem hann hefur séð á íslensku leiksviði. Gaukar er ferskt verk og frumlegt og óhætt er að mæla með sýningunni við alla nema yngstu leikhúsunn- endur. Rétt er að óska Huldari Breið- fjörð til hamingju með fyrsta leikrit sitt og öllum þeim sem komu að sýn- ingunni. n Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus Gagnrýnandi segir atriðið þar sem selshreifar eru skornir á sjálfshjálparbók sé eitt fyndnasta og eftirminnilegasta atriði sem hann hefur séð í íslensku leikhúsi. Mynd GríMur Bjarnason Tilfinningaheftir karlar Hilmar Guðjónsson og Jóhann Sigurðarson í hlutverkum sínum í Gaukum. Mynd GríMur Bjarnason Gaukar Höfundur og leikstjórn: Huldar Breiðfjörð Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson Leikendur: Hilmar Guðjónsson, Jóhann Sigurðarson, Juri. Sýnt í Borgarleikhúsinu arngrímur Vídalín ritstjorn@dv.is Dómur Sage Francis rappar á Húrra Bandaríski rapparinn Sage Francis kemur fram á tónleik- um á skemmtistaðnum Húrra laugardaginn 4. október klukk- an 22.00. Francis er þekkt nafn í jaðarrapptónlistarheiminum og hefur ítrekað hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir plötur sínar, tilraunakenndan hljóðheim og persónulega texta. Tónleikarnir verða þeir fyrstu á tónleikaferða- lagi um Evrópu þar sem hann fylgir eftir fimmtu hljóðversskífu sinni, Copper Gone, sem kom út á árinu. Sage Francis á nokk- uð stóran hóp aðdáenda hér á landi enda hefur hann leikið hér nokkrum sinnum áður. Það eru Lordpusswhip og Vrong sem munu sjá um upphitun. Miða- sala er hafin á á midi.is. Japönsk ástarhreiður og geðþekkir nasistar Love Hotel og Der Anständige á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík K vikmyndir sem gefa innsýn inn í dulda menningarkima annarra þjóða hafa löngum verið ofarlega á forgangs- lista mínum yfir skylduáhorf og Ástarhreiðrið (e. Love Hotel) er því mikill hvalreki. Þar fylgjumst við með hinum japönsku ástarhótelum; földum griðastöðum sem enginn talar um en allir vita af og langflest- ir þurfa að nota sér einhvern tíma á ævinni. Japanska þjóðin býr þétt og einkalíf er því oft af skornum skammti. Fólk er aldrei einsamalt þegar það deilir svefnrými, vinnu- rými og notast við almenningssam- göngur og býr í stórborg. Fjöldinn yfirtekur prívatið og sumir nota því ástarhótelin hreinlega til að fá frí frá heiminum. Við fylgjumst með kúnn- um og vertum hótelanna og áttum okkur kannski smám saman á því að þótt sumir sæki sér vissulega næði til iðkunar kynlífsathafna þá sækir fólk ekki síður frelsi á ástarhótelin: frelsi frá reglum, boðum og bönnum jap- ansks þjóðfélags. Satt að segja er þetta ekki svo slæm hugmynd fyrir íslenskt þjóðfélag. Sá geðþekki (þ. Der Anständige) fjallar um Heinrich Himmler sem var hugmyndasmiður útrýmingar- búða nasista með gasklefum og öllu því sem fylgdi. Myndin á að varpa ljósi á hvers kyns maður Himmler var í raun og veru og opinbera bak- grunn hans. Farið er yfir áður óþekkt einka- bréf, myndir og dagbækur sem saman eiga að fylla upp í göt og birta okkur áður óþekktan sannleika um hinn vægðarlausa Himmler. Vanda- málið er samt eiginlega að formsins vegna erum við mjög oft að horfa á ljósmyndir og sögumaður les texta upp úr bréfi eða dagbók og fyrir vik- ið fer maður hálfpartinn að óska þess að maður sé bara að lesa bók, eða skoða heimasíðu með sömu upplýsingum. Ég kom fróðari út en kvikmyndaformið er ekki nýtt sem skyldi, og maður fær á tilfinninguna að þessi mynd hefði getað verið miklu áhrifaríkari. n Love Hotel Leikstjórn: Philip Cox, Hikaru Toda Der Anständige. Der Anständige Leikstjórn: Vanessa Lapa ragnheiður Eiríksdóttir Dómur Ástarhreiður Á ástarhótelum í Japan fær fólk frelsi frá reglum, boðum og bönnum japansks þjóðfélags. Geðþekki nasistinn Heimildamyndin Sá geðþekki á að varpa ljósi á hvers kyns maður Heinrich Himmler var í raun og veru. „Gaukar er frábærlega skrifað verk og vel unnið í alla staði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.