Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 3
Vikublað 30. september–2. október 2014 Fréttir 3
Íslenskt tal leiðbeinir
notanda um allar aðgerðir
Nú þegar eru fjöldi Íslendinga í fullu
fjöri sem startað hefur verið í gang
með hjartastuðtækjum frá Donnu.
Samaritan PAD
hjartastuðtæki
kosta aðeins frá
kr. 199.600 m/vsk.
Mikilvægast er að
hlúa að börnunuM
n Mariusz Brozio neitar að hafa valdið dauða eiginkonu sinnar n Glímdi við andleg veikindi
M
aðurinn sem úrskurðað
ur var í gæsluvarðhald á
sunnudag, grunaður um
að hafa verið valdur að
dauða eiginkonu sinnar,
heitir Mariusz Brozio. Hann neitar
sök í málinu.
Í tilkynningu frá lögreglu segir
að Mariusz hafi ekki komið áður
við sögu lögreglu vegna sakamála.
Hann hefur hins vegar komið við
sögu lögreglu vegna annarra mála
og þá hefur hann verið vistaður á
geðdeild vegna andlegra veikinda.
Heimildir DV herma að veikindin
séu nýtilkomin.
Hlúa að börnunum
Konan sem lést á heimili sínu að
Stelkshólum 4 í Reykjavík síðast
liðinn laugardag var 26 ára. Eigin
maður hennar, Mariusz Brozio
28 ára, hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 17. október grun
aður um að hafa verið valdur að
dauða hennar. Talið er að þrengt
hafi verið að öndunarvegi hennar
þannig að hún kafnaði.
Börn hjónanna, tveggja og fimm
ára, voru á heimilinu er móðir
þeirra lést. Þeim hefur verið kom
ið í viðeigandi umönnun hjá barna
verndaryfirvöldum. Unnið er að því
að koma börnunum fyrir hjá vina
fólki hjónanna hér á landi og þá er
bróðir konunnar kominn til lands
ins. „Þetta er algjör harmleikur.
Maður er alveg í öngum sínum yfir
þessu, sérstaklega varðandi börnin.
Það er númer eitt, tvö og þrjú núna
að hlúa að þeim,“ segir aðstandandi
mannsins í samtali við DV.
Neitar sök
Samkvæmt heimildum DV hringdi
Mariusz í vin sinn skömmu fyrir
miðnætti á laugardag og sagði hon
um að kona sín væri látin. Vinur
inn hringdi í kjölfarið í lögreglu. Við
komu á vettvang vaknaði strax grun
ur um að andlát konunnar hefði
borið að með saknæmum hætti.
Mariusz neitar staðfastlega sök.
Engu að síður ákvað hann að kæra
ekki gæsluvarðhaldsúrskurð hér
aðsdóms. Samkvæmt heimildum
DV vill hann sýna lögreglu sam
vinnu, auðvelda henni rannsóknina
og vill að málið upplýsist sem fyrst.
Mariusz hefur verið fluttur á Litla
Hraun þar sem hann situr í einangr
un. Frekari yfirheyrslur yfir honum
munu fara fram á næstu dögum.
Aðstandendur í áfalli
Hjónin kynntust á Íslandi en koma
bæði frá Póllandi. Þau giftu sig úti í
Póllandi árið 2012 og höfðu búið í
íbúðinni að Stelkshólum í um það
bil ár. Konan starfaði við ræstingar
á hóteli en Mariusz starfar við að
leggja ljósleiðara. Aðstandendur
fjölskyldunnar eru harmi slegnir
vegna málsins. Konunni er lýst sem
fyrirmyndarmóður og góðri mann
eskju af vinum. Þá sé Mariusz ekki
þekktur fyrir ofbeldi. Jacques War
ren Loxton, nágranni ungu hjón
anna, segir þau hafa verið gott fólk,
vinalegt og hjálplegt. „Þau voru glöð
og góð. Börnin þeirra eru yndis
leg,“ sagði hann í samtali við DV.
„Þetta er mikið áfall. Við erum alveg
í sjokki.“ n
„Þau voru
glöð og góð.
Börnin þeirra eru
yndisleg.
Nágrannar í áfalli Við komu á vettvang vaknaði hjá lögreglu strax grunur um að andlát
konunnar hefði borið að með saknæmum hætti. MyNd Sigtryggur Ari
Áslaug Karen Jóhannsdóttir/
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
aslaug@dv.is / astasigrun@dv.is
Neitar sök Mariusz
Brozio leiddur fyrir hér-
aðsdóm á sunnudag.
MyNd Sigtryggur Ari