Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 6
Vikublað 30. september–2. október 20146 Fréttir
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
L
eiga á einkabílum getur verið
varasöm, eins og DV hefur að
undanförnu fjallað um. Passa
þarf að öll tilskilin leyfi séu til
staðar og bílar rétt tryggðir en
vilji einstaklingar leigja bílana sína
út verða þeir að hafa bílaleiguleyfi ef
þeir skrifa sjálfir undir samninginn.
Séu þeir hins vegar að leigja bílinn
sinn til bílaleigu sem síðan leigir bíl-
inn áfram til viðskiptavinar síns þarf
eigandi bílsins ekki að vera með leyfi,
enda mega bílaleigur áframleigja bíla
hafi þær til þess leyfi.
Viðgerð upp á milljón
Ársæll Guðmundsson lenti í því í
sumar að jeppi sem hann á og leigði
út, varð fyrir slæmu tjóni. Bílinn hafði
hann leigt út í gegnum fyrirtækið Car-
renters, þar sem hann auglýsti bílinn
til leigu og það voru tveir bandarískir
menn sem vildu fá hann leigðan. „Það
fór vatn inn á vélina og nú bíð ég eft-
ir því að bíllinn komist á verkstæði.
Þessir menn ætla að borga viðgerðina,
en ég myndi giska á að viðgerðin kosti
eina milljón,“ segir Ársæll.
Hann segist ekki hafa kynnt sér
skilmálana hjá Carrenters almenni-
lega áður en hann auglýsti bílinn
sinn til leigu, en viðurkennir að hans
skilningur hafi verið sá að tryggingar
myndu ná yfir tjón á bílnum. Hann
tryggði bílinn sem bílaleigubíl, en í
þessu tilfelli varð tjónið hins vegar
með þeim hætti að bíllinn festist í
á. Tryggingafélög greiða almennt
ekki fyrir tjón á borð við þetta, þegar
vatn flæðir yfir vél vegna aksturs yfir
óbrúaða á.
Ábyrgðin er ferðamannanna
Ársæll segir að Carrenters hafi að-
stoðað hann vegna málsins, en segir
að þeir geri hins vegar ekki mjög
mikið. „Þeir eru bara að sjá um sam-
skiptin við þessa útlendinga, en það
er bæði og, ég er í því sjálfur líka. Car-
renters hefur ekki komið til móts við
mig með peninga og segja að ábyrgð-
in sé ferðamannanna. Ég á að sjá sjálf-
ur um að kalla eftir þessum peningum
frá ferðamönnunum og Carrenters er
bara að að hjálpa mér við það,“ segir
Ársæll.
Telur Carrenters
aðeins vera miðlun
Eins og áður segir þurfa þeir sem ætla
að leigja bílinn sinn í atvinnuskyni að
vera með bílaleiguleyfi. Í þessu tilviki
verður bílaleigan í atvinnuskyni þegar
þriðji aðili hagnast á henni, en sá að-
ili er Carrenters sem innheimtir gjald
fyrir að auglýsa bílinn. Á heimasíðu
Carrenters kemur að vísu mjög skil-
merkilega fram að tryggingar bæti
ekki vatnstjón af þessu tagi og þá lítur
fyrirtækið aðeins á sig sem miðlun
sem ekki þurfi bílaleiguleyfi. Því nái
lög um bílaleigu ekki til þeirra. Ársæll
segir að enginn frá Carrenters hafi
bent honum á að hann þyrfti að vera
með bílaleiguleyfi, sem rímar vel við
það sem eigandi Carrenters, Guðmar
Valþór Kjartansson, sagði við DV fyrir
skemmstu um leigu á einkabíl. Hann
telur að þessi leiga sé aðeins í eigin
þágu og sé því undanþegin lögum.
„Það stendur bara í fyrstu grein-
inni. Við erum bara bókunarþjón-
usta, eins og Airbnb er til dæmis. Þeir
eru ekki með hótelrekstrarleyfi, held-
ur eru bara bókunarþjónusta. Sjálf-
ir erum við ekki með bílaleiguleyfi,“
sagði Guðmar. Hann segir það fara
eftir viðskiptavininum hvort fyrirtæk-
ið ráðleggi viðkomandi að verða sér
úti um bílaleiguleyfi. „Við erum með
bílaleigur sem viðskiptavini sem auð-
vitað hafa leyfi og svo eru einstak-
lingar sem hafa sótt um leyfi líka. Að
mínu mati kemur það skýrt fram í
fyrstu greininni að leiga í eigin þágu sé
undanþegin,“ sagði Guðmar. n
n Ferðamenn festu bílinn og vélin skemmdist n Tjónið fæst ekki bætt
Tjón upp á milljón Ársæll
Guðmundsson þarf að treysta
á að leigutakarnir vilji borga
viðgerðina. Myndin er úr safni.
Mynd SigTryggur Ari
Einkabíllinn eyði-
lagðist í útleigu
rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Carrenters hefur
ekki komið til
móts við mig með pen-
inga og segja að ábyrgðin
sé ferðamannanna.
Fjölskyldan veit ekkert um ferðir Markus
Hlé gert á formlegri leit en rannsókn lögreglu heldur áfram
L
ögreglu og björgunarsveitum
hafa ekki borist nýjar vís-
bendingar varðandi þýska
ferðamanninn Christian
Mathias Markus sem hefur verið leit-
að undanfarna daga. Engin leit fór
fram á sunnudag eða á mánudag, en
víðtæk leit var gerð á laugardaginn
þar sem 50 manns komu að henni.
Leitað var við afar erfiðar aðstæður.
Ákveðið var að gera hlé á leitinni þar
sem hún hefur engu skilað.
Markus hafði ekki upplýst fjöl-
skyldu sína um ferðalagið til Íslands
og vissi hún því lítið sem ekkert um
ferðir hans. Það var engu að síður
fjölskyldan sem hafði samband við
lögregluna. Fjölskyldan fór að ótt-
ast um Markus á laugardaginn fyrir
rúmri viku og hafði því samband við
lögregluna á höfuðborgarsvæðinu
og ríkislögreglustjóraembættið.
Vitað er að Markus fór frá hóteli
í Breiðavík í Vesturbyggð þann 18.
september. Hann var einn á ferð og
ók bílaleigubifreið af tegundinni
Suzuki Grand Vitara. Bíll hans fannst
við Látrabjarg, en vegabréf hans á
Austfjörðum.
Lögreglan á Vestfjörðum heldur
rannsókn sinni áfram og biður þá
sem kunna að hafa upplýsingar um
hvarf Christians að láta vita. Ekki er
talið að hvarfið hafi borið að með
saknæmum hætti. Hafi einhver orðið
var Markus frá 18. september óskar
lögreglan á Vestfjörðum eftir þeim
upplýsingum í síma 450-3730 eða til
neyðarlínunnar. n astasigrun@dv.is
Erfiðar aðstæður Eftirgrennslan lög-
reglu heldur áfram.
Vilja að
einstaklingar
verði sektaðir
Neytendasamtök Íslands hafa
skorað á samkeppnisyfirvöld að
beita refsiákvæðum samkeppnis-
laga gagnvart einstaklingum í
auknum mæli frekar en að fella
háar sektir á brotleg fyrirtæki. Telja
samtökin að háar sektir á fyrir-
tæki í einokunarstöðu, líkt og MS,
verði aðeins til þess að sektun-
um verði velt út í verðlagið. Skaði
vegna slíkra sekta endi því hjá
neytendum en ekki hjá þeim sem
„skömmina eiga,“ eins og segir í
frétt á vefsvæði samtakanna. Þá
krefjast samtökin þess einnig að
allar undanþágur mjólkuriðnað-
arins gagnvart samkeppnislögum
verði afnumdar og hvetja þau jafn-
framt neytendur til að sniðganga
vörur frá MS eins og hægt er.
Göngin lengdust
um 65 metra
Vinna við Vaðlaheiðargöng
gengur vel, en fyrir skömmu var
ákveðið að hefja gangagröft í
Fnjóskadal. Ástæðan var erfiðar
vinnuaðstæður í göngunum Eyja-
fjarðarmegin, en þar var búið
að grafa rúmlega tvo og hálfan
kílómetra inn í Vaðlaheiði. Þar
hefur heitt vatn streymt inn í
göngin allt frá því í febrúar og gert
vinnumönnum erfitt fyrir. Í síð-
ustu viku lengdust göngin um 65
metra austan megin en á sama
tíma var flokkur erlendra sér-
fræðinga að störfum vestan megin
í göngunum. Þeir voru þangað
komnir til að stöðva flæði heita
vatnsins inn í göngin en þeir taka
að sér slík verk um allan heim.