Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 14
Vikublað 30. september–2. október 201414 Fréttir
Vilja Jónínu Ben
út úr húsi Skúla
n Hefur búið þar síðan 2003 n Deila um fjármuni Skúla sem á eignir upp á um 1,5 milljarða
J
ónína Benediktsdóttir athafna-
kona, sem er einn af forvígis-
mönnum detox-meðferðarinn-
ar á Íslandi, hefur síðastliðin
11 ár búið án endurgjalds í
tæplega 300 fermetra einbýlishúsi í
Stigahlíð í Reykjavík. Húsið er í eigu
byggingameistarans Skúla Magnús-
sonar, sem fæddur er árið 1931, en
hann á fjölmargar fasteignir á höfuð-
borgarsvæðinu. Síðastliðin ár hefur
Jónína búið í húsinu ásamt núver-
andi eiginmanni sínum, Gunnari
Þorsteinssyni, sem kenndur er við
sértrúarsöfnuðinn Krossinn.
Enginn þinglýstur leigusamning-
ur er til hjá ríkisskattstjóra um bú-
setu Jónínu og Gunnars í húsinu
og DV hefur heimildir fyrir því að
engir fjármunir hafi skipt um hendur
vegna veru þeirra þar.
Hefur sagt samninginn til
Jónína hefur hins vegar haldið því
fram að hún hafi sinnt Skúla, sem er
tæpur til heilsunnar og hefur meðal
annars greinst með Alzheimers, í
gegnum árin og að hún hafi sannar-
lega gert leigusamning við Skúla sem
hann hafi ekki viljað þinglýsa. Sam-
kvæmt því sem DV kemst næst hef-
ur Jónína því haldið því fram að hún
hafi greitt leigu skilmerkilega fyrir að
vera í húsinu. Mun Jónína hins vegar
telja að um einkamál á milli hennar
og Skúla sé að ræða.
Þau Skúli hafa umgengist talsvert
á liðnum árum og hefur Jónína kall-
að hann vin sinn og jafnvel haldið
því fram að hún hafi gengið honum í
dótturstað. Meðal þess sem þau hafa
gert saman oft og tíðum er að fara í
sund.
Fasteignamat hússins er tæpar
102 milljónir króna en það var byggt
árið 1989. Leiguverð á slíku húsi gæti
numið um 350 til 400 þúsunda á
mánuði á frjálsum leigumarkaði.
Sviptur sjálfræðinu
Skúli var sviptur sjálfræðinu í mars
síðastliðnum og tók lögmaðurinn
Hilmar Magnússon við utanumhaldi
um eignir hans sem lögráðamað-
ur hans. Þetta kemur fram í yfirliti
um sjálfræðissviptinguna sem að-
gengileg er hjá ríkisskattstjóra, með-
al annars í gegnum Lánstraust. DV
hefur heimildir fyrir því að ættingj-
um Skúla hafi ekki þótt treystandi að
hann færi áfram með yfirráð yfir eig-
in eignum þar sem heilsu hans hefur
hrakað nokkuð.
Í yfirlitinu yfir eignir Skúla sem
Hilmar skal hafa lagaleg yfirráð yfir
sem fjárhaldsmaður kemur meðal
annars fram umrætt hús við Stiga-
hlíð 70 auk 11 annarra fasteigna,
allt frá íbúðum til einbýlishúsa, víðs
vegar á höfuðborgarsvæðinu.
Skúli er barnlaus og því eru það
systkini hans og börn þeirra sem
hafa hlutast til um málefni hans sem
erfingjar hans að lögum. Munu það
hafa verið þau sem fóru fram á sjálf-
ræðissviptingu Skúla, meðal annars
í ljósi þess hvernig utanumhaldi um
eignir hans var háttað.
Einn af ættingjum Skúla, Ingi-
björg Svava Ásgeirsdóttir, neitar í
samtali við DV að tjá sig um málið
þegar eftir því er leitað.
Sagðist hafa „lánað“ Jónínu húsið
Í samtali við vefmiðilinn Pressuna
árið 2011 sagði Skúli Magnússon
að hann hefði lánað Jónínu húsið í
Stigahlíðinni eftir að hún lenti í erfið-
leikum skömmu eftir síðustu alda-
mót. „Ég er maðurinn sem lánaði
henni húsið (…) Jónína var á þessum
tíma í vandræðum og stóð á götunni
með börnin. Við vorum málkunnug
og hún hringdi í mig og spurði um
húsið sem hún vissi að ég átti í Stiga-
hlíð. Mér fannst ekki annað en sjálf-
sagt að hjálpa henni því ég átti meira
en nóg fyrir mig.“
Sú umfjöllun var í tengslum við
brúðkaup Jónínu og Gunnars en
Skúli leiddi hana inn í kirkjugólfið í
athöfninni og héldust þau í hendur
líkt og faðir og dóttir.
Í frétt Pressunnar kom fram að
ekkert fararsnið væri á Jónínu og
Gunnari úr húsinu. Skúli sagðist
hins vegar ekki líta á sig sem bjarg-
vætt Jónínu Benediktsdóttir: „Ég lít
nú ekki á mig sem bjargvætt Jónínu
því hún hefur bjargað sér sjálf. Þetta
er alveg einstök manneskja.“
Jónína þarf að fara 1. desember
Eftir að sérstakur fjárhaldsmaður
tók við eignaumsýslu fyrir hönd
Skúla var Jónínu sagt upp leigu-
samningnum. Fyrst var um að ræða
þriggja mánaða uppsagnarfrest
en hann var svo lengdur upp í sex
mánuði. Samkvæmt nýja samn-
ingnum þurfa Jónína og Gunnar
að vera flutt út úr húsinu í Stigahlíð
þann 1. desember næstkomandi.
DV hefur heyrt að til standi að
þau Jónína og Gunnar flytji í hús
sem þau eiga í Kópavogi.
Líkt og Ingibjörg Svava vill Jón-
ína Benediktsdóttir ekki ræða málið
opinberlega og getur því ekki svar-
að spurningum DV um það. „Nei,
ekki neitt. Þetta er ekki fjölmiðla-
mál.“
Krafa Jónínu
Fleiri angar eru hins vegar á málinu
þar sem Jónína telur að hún eigi rétt á
fjármunum úr búi Skúla vegna þeirr-
ar aðstoðar sem hún hefur veitt hon-
um í gegnum árin. Meðal annars mun
vera um að ræða aðstoð við að kaupa
í matinn og eins að elda og því um líkt
auk þess sem ágreiningur mun vera
um eignarhald á sumarhúsi sem Skúli
lét byggja. Heimildir DV herma að
Jónína hafi reynt að sækja þá fjármuni
sem hún telur sig eiga inni hjá Skúla
með því að beina sérstöku erindi til
sýslumannsins i Reykjavík. Sú upp-
hæð sem Jónína krefst hleypur á tug-
um milljóna króna. Hingað til hefur
kröfugerð Jónínu ekki borið árangur.
DV hefur heimildir fyrir því að
samanlagðar eignir Skúla Magnús-
sonar gætu numið um 1,5 milljörð-
um króna.
Óljóst hvað verður
Eins og er þá er óljóst hvernig sam-
skiptum Jónínu Benediktsdóttur og
ættingja Skúla Magnússonar mun
ljúka. Ljóst er að Jónína og Gunnar
munu flytja úr húsinu á næstu
mánuðum þar sem þau geta ekki
búið þar áfram nema með sam-
þykki fjárhaldsmanns Skúla. Húsið
er þinglýst eign Skúla og hefur verið í
meira en 25 ár.
Eftir stendur hins vegar kröfu-
gerð Jónínu gegn búi Skúla. Að sama
skapi munu ættingjarnir vera að
athuga með hvaða hætti samskipti
þeirra Skúla og Jónínu voru ná-
kvæmlega, til dæmis hvort þau hafi
átt í viðskiptum með frekari efnisleg
gæði sem Skúli á en hann er fjár-
sterkur maður líkt og áður segir.
Sem stendur vilja deiluaðilarnir
hins vegar ekki ræða málið við DV. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is Storma-
söm ár
Jónína Benediktsdóttir er fyrir löngu
orðin þjóðþekkt kona. Þó að hún hafi
verið þekkt fyrir síðustu aldamót eftir
að hafa verið líkamsræktarfrömuður
þá var það í tengslum við sakamál
sem nafn hennar varð flestum
kunnugt.
Hún var nefnilega í sérstakri stöðu
í miðju Baugsmálinu sem eins konar
brú á milli á þeirra tveggja fylkinga
sem höfðu verið stríðandi í því máli.
Jónína var ástkona Jóhannesar Jóns-
sonar í Bónus um skeið en svo þegar
sambandi þeirra lauk hófust deilur á
milli þeirra. Jónína tók svo virkan þátt
í því fjölmiðlaati sem Baugsmálið var
þar sem aðilar úr innsta kjarna Sjálf-
stæðisflokksins og helstu forsvars-
menn Baugs og viðhengi þeirra deildu
svo árum skipti. Baugsmálið sjálft
var auðvitað langvinnt sakamál sem
fór fram fyrir dómi en á meðan fór
fram PR-stríð sem ekki var síður hart
og langt.
Tölvupóstur á milli Jónínu Bene-
diktsdóttur og Styrmis Gunnarssonar,
ritstjóra Morgunblaðsins, rataði á
síður Fréttablaðsins eftir að hafa
að sögn verið stolið úr tölvu Jónínu.
Pósturinn var æsilegur á köflum og
gaf samsæriskenningum um vonda
trú Morgunblaðsmanna og harða
kjarnans í kringum Davíð Oddsson byr
undir báða vængi. Jónínupósturinn
átti stóran þátt í því að snúa almenn-
ingsálitinu á Íslandi nokkuð á sveif
með forsvarsmönnum Baugs.
Síðan þá má segja að Jónína
hafi verið nær stöðugt í fjölmiðlum.
Bæði vegna detoxmeðferða og svo
síðar vegna hjónabands hennar og
predikarans Gunnars Þorsteinssonar
í Krossinum en ýmislegt hefur gengið
á í þeim sértrúarsöfnuði á liðnum
árum og hefur Gunnar meðal annars
verið vændur um meinta óeðlilega
kynferðislega háttsemi gagnvart
konum í Krossinum.
Þannig varð eróbikk- og
detoxfrömuðurinn Jónína Benedikts-
dóttir að leikmanni og þátttakanda í
einu stærsta fjölmiðla- og sakamáli
Íslandssögunnar. Jónína er ennþá
í kastljósi fjölmiðla og verður það
líklega áfram.
„Ég er
maður-
inn sem lánaði
henni húsið
Velgjörðarmaður
Skúli Magnússon er vel-
gjörðarmaður Jónínu. Hann
leiddi hana upp að altarinu í
brúðkaupi hennar og Gunnars
Þorsteinssonar árið 2011.
MyndIr SIgtryggur ArI
Á að flytja Jónínu hefur verið gert að flytja úr Stigahlíðinni. Hún hyggst flytja í Kópavog.