Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Síða 4
Helgarblað 18.–21. júlí 20144 Fréttir
Enn í láni hjá Sigmundi
M
argrét Gísladóttir, sem upp-
haflega var ráðin sem að-
stoðarmaður Gunnars
Braga Sveinssonar utan-
ríkisráðherra, starfar enn í forsætis-
ráðuneytinu. DV greindi frá því í
apríl að hún hefði verið færð þang-
að til að sinna sérverkefnum á sviði
upplýsingamála.
Upphaflega virðist hafa staðið
til að hún ynni aðeins í tvo mánuði
í ráðuneyti Sigmundar en þegar DV
náði tali af henni í vikunni var Mar-
grét þar enn að störfum. „Þetta var
framlengt, en það er ekki komið á
hreint hvernig framhaldið verður,“
segir hún.
Aðstoðarmenn ráðherra eru póli-
tískt skipaðir ólíkt hefðbundnum
starfsmönnum stjórnarráðsins sem
stundum eru færðir milli ráðuneyta
og verkefna. Sá háttur sem hafður er
á í tilviki Margrétar er afar óvenju-
legur. Hún hefur aðsetur í forsætis-
ráðuneytinu þar sem hún sinn-
ir tímabundnum verkefnum, en er
þrátt fyrir það enn þá aðstoðarmað-
ur Gunnars Braga að nafninu til og
skráð sem slík á vef utanríkisráðu-
neytisins.
Margrét tekur skýrt fram að
starfstilhöguninni hafi ekki verið
breytt vegna samskiptaörðugleika.
„Mér finnst mjög leiðinlegt að slíkar
sögur hafi farið af stað og ég get full-
yrt að þannig er þetta alls ekki.“
Svo virðist sem þörf sé fyrir tals-
verðan mannafla í ráðuneyti Sig-
mundar Davíðs, en Margrét er
fimmti pólitískt skipaði starfsmað-
urinn sem vinnur þar. Aðrir eru að-
stoðarmennirnir tveir, Jóhannes Þór
Skúlason og Ásmundur Einar Daða-
son, Sigurður Már Jónsson upplýs-
ingafulltrúi og Benedikt Árnason
efnahagsráðgjafi. n
johannp@dv.is
„Þetta var framlengt“
Í láni Margrét Gísladóttir, aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra, vinnur hjá forsætisráðuneytinu.
Kaupa vændi á
FacEbooK
n Íslenskar konur selja sig á samskiptamiðlinum n „Fáránlega auðvelt“
d
æmi eru um að íslenskar
og erlendar konur noti
samskiptamiðla á borð við
Facebook til að selja vændi
hér á landi. Samskipti
fara öll í gegnum einkaskilaboð og
þeir sem skrifa opinber skilaboð
til kvennanna og falast eftir vændi
eru umsvifalaust fjarlægðir og sett-
ir í bann. Heimildarmenn DV segja
auðvelt að finna slíkar síður á sam-
félagsmiðlinum og gátu bent á slík-
ar. „Mig langaði að gá að þessu um
daginn og það tók enga stund,“ segir
annar þeirra. „Mér fannst þetta eig-
inlega fáránlega auðvelt.“
Nota dulnefni og krefjast þess
frá kúnnanum
Facebook-reikningarnir eru iðulega
undir dulnefnum, en eiga það flestir
sammerkt að viðkomandi er skrifað-
ur búsettur hér á landi. Oftar en ekki
fylgja erótískar myndir af konun-
um, en þess oftast gætt að þær brjóti
ekki notendaskilmála Facebook þótt
sumar myndirnar séu á gráu svæði.
Á einni myndinni er til dæmis að-
eins afturendi konu, þá eru margar
á nærfötunum einum klæða og aðr-
ar myndir eru á svipuðum nótum.
Heimildarmaður DV setti sig í sam-
band við nokkrar kvennanna. Þær
kröfðust þess yfirleitt að hann sendi
þeim fullt nafn og símanúmer. Svo
virðist sem það sé nokkurs konar
öryggistæki fyrir konurnar. Annar
heimildarmaður DV segir þetta hafa
verið næsta skref. „Mér finnst skrítið
að fólk hafi ekki kveikt á þessu fyrr.
Þetta hefur verið svona lengi,“ segir
hann.
DV komst í símasamband við
eina kvennanna sem brást hin versta
við þegar blaðamaður, kona, hafði
samband og vildi fá frekari upplýs-
ingar. Það væri „tímasóun“, að mati
konunnar sem er íslensk. Þegar haft
var samband við sömu konu í gegn-
um Facebook í nafni karlmanns
benti konan viðkomandi á að stofna
leynireikning og bæta sér við vina-
listann. „Hæ ekki nota þitt Facebook.
Stofnaðu nýtt. Ekkert ves“, sagði kon-
an og svaraði ekki frekari spurning-
um frá blaðamanni.
Nota netið
Ekki er óalgengt að netið sé notað til
þess að kaupa og selja vændi og er
það sérstaklega vel þekkt sölu aðferð
erlendis og auðvelt að rata á slíkar
síður. Borið hefur á slíkum auglýs-
ingum hér á landi og hefur DV meðal
annars fjallað um konur sem virðast
koma hingað til lands í stuttan tíma
gagngert til þess að selja sig. Þá hefur
vefurinn Einkamál.is oft verið nefnd-
ur sem staður þar sem fólk reyn-
ir að kaupa eða selja vændi. Einka-
mál segjast þó hafa skorið upp herör
gegn slíkum auglýsingum og sölu og
segjast vilja koma í veg fyrir slíkt.
Vændisbrotum fjölgaði
Ólöglegt er að kaupa vændi á Íslandi
eða hafa atvinnu sína eða viðurværi
af vændi annarra. Vændið sjálft er því
ekki ólöglegt. Sektarviðurlög fylgja
þeim sem verður uppvís af því að
kaupa vændi eða allt að árs fangelsi.
Talsvert margir vændisdómar hafa fall-
ið að undanförnu, en slíkir dómar eru
sjaldan gerðir opinberir og nöfn þeirra
sem ákærðir eru fást ekki uppgefin.
Skráðum brotum sem tengjast
vændi fjölgaði umtalsvert á síðasta
ári hjá lögreglunni, eða um 609,5
prósent alls. Þessa miklu fjölgun má
rekja til sérstaks átaks í málaflokkn-
um hjá lögreglunni á Suðurnesjum
og lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu. Nokkur mál komu inn á
borð lögreglunnar þar sem grun-
ur lék á að aðilar væru að hagnast á
vændi annarra, það er, að vera hór-
mangarar eða svokallaðir mellu-
dólgar. Árið 2013 voru hið minnsta
sjö mál þar sem lögregla rannsak-
aði slíka starfsemi. Árið 2013 voru
skráðir vændiskaupendur 175, en í
sama málaflokki voru 25 aðilar sem
tengdust slíkum brotum. Alls 249
vændiskaupamál hafa verið skráð
hjá ríkislögreglustjóra síðan 2010. n
„Hæ ekki
nota þitt
Facebook
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Vændi Undanfarið ár hefur DV fjallað
um einstaklinga sem nota Facebook sem
miðil fyrir dópsölu. Vændi virðist einnig
lifa góðu lífi á samskiptamiðlinum.
Nefnd aðstoðar
við flutninga
Bæjarstjórn Akureyrar mun setja
á laggirnar nefnd á næstu dögum
sem mun aðstoða við fyrirhug-
aðan flutning Fiskistofu til Akur-
eyrar. Vikudagur greinir frá, en
þar kemur fram að Eiríkur Björn
Björgvinsson, bæjarstjóri á Akur-
eyri, muni leiða nefndina.
Bæjaryfirvöld munu gera
og gefa út sérstakt kynningar-
efni sem snýr að bænum fyrir
starfsfólk Fiskistofu. „Þarna
verða til dæmis upplýsingar um
atvinnumöguleika fyrir maka,
hvernig staðan er í húsnæðismál-
um og framboð á leikskólum,“
segir Eiríkur Björn í samtali við
Vikudag.
innan við tíu
árásarmenn
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur fengið upplýsingar
frá vitnum varðandi árás ung-
menna á karlmann í Rimahverfi
um síðustu helgi. Ungmennin
eru sögð hafa beitt manninn of-
beldi með því að slá hann ítrek-
að með golfkylfum. Tala ung-
mennanna er nokkuð á reiki, en
lögregla telur líklegt að þau hafi
verið innan við tíu. Í fyrstu var
talið að allt að tuttugu einstak-
lingar hefðu ráðist á manninn.
Lögregla ræðir nú við vitni til
að fá mynd af því sem gerðist.
Maðurinn þekkti ekki árásar-
mennina. Þeir sem hafa upp-
lýsingar um málið eru beðnir
um að hafa samband við lög-
regluna.
Allt fyrir bæjarhátíðina,
útileguna og verslunar-
mannahelgina
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534