Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 6
Helgarblað 18.–21. júlí 20146 Fréttir Dularfullt flug- atvik á Tröllaskaga n Flugmaður neitar að tjá sig n Í rannsókn hjá nefnd samgönguslysa H inn 22. maí síðastliðinn flaug eins manns flugvélin TF – KAJ í skafl á Tröllaskaga. Mikil dulúð hvílir yfir atvik- inu en enginn þeirra sem koma að málinu er reiðubúinn til að skýra það en DV hefur þó heimildir fyrir því hvað átti sér stað. Þorkell Ágústsson, rannsakandi hjá rann- sóknarnefnd samgönguslysa, stað- festir í samtali við DV að málið sé í rannsókn. Samkvæmt heimildum DV lendir flugmaður vélarinnar TF – KAJ í svokölluðu „wipeouti“ – þegar reynt er að skríða yfir fjöll þegar lág- skýjað er og lent er í snjónum. „Ég er því miður ekki til umræðu um það,“ svarar flugmaður vélarinnar, Snæ- björn Jónsson, spurður um hvað hafi átt sér stað á Tröllaskaga. Snæ- björn er prófdómari hjá Flugmála- stjórn og flugstjóri hjá Icelandair. Ekkert óljóst Snæbjörn harðneitaði að tjá sig um hvers eðlis atvikið, eða slysið, var er DV hafði samband við hann. „Það er bara minn standard að tjá mig ekki um þetta. Þetta var allt tilkynnt, bara eftir bókinni. Ég hef ekki tíma né áhuga á að tjá mig um þetta. Ég er búinn að ræða þetta við yfirvöld og allt er frágengið,“ segir hann. Snæ- björn segir enn fremur að ekkert sé óljóst við atvikið. „Litli-Geysir á Bárðarbungu“ Heimildarmaður DV innan flug- geirans segir að hæglega hefði getað farið verr en raun varð. „Menn inn- an geirans eru farnir að tala um það sín á milli að þetta hafi getað ver- ið Litli-Geysir á Bárðarbungu,“ segir hann og vísar í frægt flugslys frá ár- inu 1951. „Hún fer á fullu afli í fjall- ið en hann er heppinn að dekkin eru stór og mikil þannig að hann hoppar upp á eftir höggið og lendir síðan á nefinu. Kannski færni flugmannsins að þakka að hægt var að bjarga því sem hægt var að bjarga,“ segir heim- ildarmaðurinn. Að hans sögn flýgur félagi Snæbjörns á vettvang og hjálp- ar honum við að rétta við vélina og flogið er á vélinni, sem þó er nokk- uð skemmd, til Akureyrar. „Þarna er bara flogið af vettvangi. Þetta er svip- að og að stinga af eftir árekstur. Allt í lagi að sýna sjálfsbjargarviðleitni en það þarf að gera það í réttu ferli,“ seg- ir flugmaðurinn. Í rannsókn Í samtali við DV staðfestir Þorkell Ágústsson, rannsakandi hjá rann- sóknarnefnd samgönguslysa, í megindráttum frásögn heimildar- manns DV. „Ég veit ekki hvort við köllum þetta slys eða atvik. Hann lendir í þannig skilyrðum að hann þarf að lenda í snjónum. Það eina sem ég get sagt er að hann lend- ir þarna og við erum að rannsaka af hverju. Ég veit ekki hvers vegna þetta spyrst ekki út. Þetta var tilkynnt strax til okkar,“ segir Þorkell Ágústsson. Stjórnarmenn neita að tjá sig Flugvélin er í eigu flugklúbbsins Þyts. Þegar DV ræddi við stjórnarmenn klúbbsins kom fát á þá er spurt var um vélina. „Ég tala ekki við blaða- menn,“ sagði Reidar Kolsöe, með- stjórnandi klúbbsins, þegar afdrif TF – KAJ bar á góma. „Ég held að það sé best að ég tjái mig ekkert um það. Það er minn réttur að tjá mig ekki,“ svarar formaður klúbbsins, Þorsteinn Jóns- son, spurður um hvort vélin hafi lent í einhvers konar slysi. Ekki fyrsta slysið Ekki er um að ræða fyrsta skipti sem flugvélin lendir í einhvers konar slysi eða atviki. Árið 2004 varð flug- slys þegar vélin fór fram yfir sig og á bakið við lendingu nærri Hjálpar- fossi. Flugmann sakaði ekki en vélin skemmdist. Árið 2008 nauðlenti vél- in við Stíflisdalsvatn eftir að hreyfill flugvélarinnar stöðvaðist. Flugvélin var smíðuð árið 1975 en kom til Ís- lands árið 1991. n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Flugstjóri Snæbjörn Jónsson flaug vélinni er hún fór niður á Tröllaskaga. Hann harðneit- aði að tjá sig um atvikið í samtali við DV. Í eigu Þyts Flugvélin TF – KAJ er í eigu flugklúbbsins Þyts. Stjórnarmenn klúbbsins neituðu að tjá sig um í hvaða ásigkomulagi vélin væri nú. Mynd BaLdur SvEinSSon Upptaka meðal sönnunargagna Lögreglan rannsakar alvarlega líkamsárás á Grundarfirði M ennirnir tveir sem réðust á mann á Grundarfirði að- faranótt miðvikudags eru í áhöfn skipsins Baldvins NC 100. Skipið er í eigu dóttur- félags Samherja, Deutsche Fischfang Union. Árásarmennirnir tveir eru í haldi lögreglunnar, skipið lagði úr höfn frá Grundarfirði á fimmtudags- morgun. Samkvæmt heimildum DV fóru mennirnir þrír saman um borð í bátinn eftir að hafa verið saman á veitingahúsi í bænum og voru þeir undir áhrifum áfengis þegar árásin átti sér stað. Samkvæmt sömu heim- ildum réðust tvímenningarnir á manninn á hafnarsvæðinu þegar hann var á leið frá höfninni. Í árásinni hlaut maðurinn alvar- lega höfuðáverka. Hann var fyrst fluttur á heilsugæslustöðina í bænum, þar sem hlúð var að hon- um. Í kjölfarið var ákveðið að fá þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja hann, vegna þess hve alvar- legir áverkar hans voru taldir. Mað- urinn var meðvitundarlaus þegar komið var með hann á gjörgæslu- deild og var honum haldið sofandi í öndunarvél á fimmtudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru sjónarvottar að árásinni í sama hópi og mennirnir. Lögreglan staðfestir einnig að mennirnir hafi sést saman í bænum áður en árásin átti sér stað. Hún seg- ir enn fremur að atvikið hafi að ein- hverju leyti náðst á myndbandsupp- töku í öryggismyndavélum sem eru á hafnarsvæðinu. Þegar DV ræddi við lögreglu á fimmtudag var ekki búið að yfir- heyra mennina. Áður en það var gert vann lögregla að því að glöggva sig á atburðarás næturinnar. „Það er bara verið að púsla kvöldinu saman,“ sagði lögreglumaðurinn í samtali við DV. n jonsteinar@dv.is Grundarfjörður Mennirnir voru úr áhöfn Baldvins sem lagði úr höfn á fimmtudags- morgun. Sautján milljónir glataðar Dýr varð dótakassinn allur Engar eignir fengust upp í 17 milljóna kröfur sem lýst var í bú J-EinnÁtta ehf., einkahlutafélag Jóns Þórs Sigurðssonar. Félag- ið var tekið til gjaldþrotaskipta þann 16. apríl síðastliðinn og er skiptum nú lokið. Þetta kom fram í Lögbirtingablaðinu á fimmtudag. J-EinnÁtta gegndi mikil- vægu hlutverki fyrir FL Group á útrásarárunum og geymdi með- al annars lúxusbifreiðar, snjó- sleða og fjórhjól fyrir Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóra FL Group, og fleiri útrásarvík- inga. Félagið var með aðsetur í Faxafeni og leigði húsnæði af félagi Hannesar, en í bílakjall- aranum var meðal annars að finna sjaldgæfa Jagúar-bifreið frá árinu 1965 auk lúxusjeppa á borð við Range Rover og Lincoln Navigator. Vísað var til bílakjallarans sem „dótakassa Hannesar“ í umfjöllun sem DV birti árið 2009 þegar blaðinu áskotnaðist myndir úr kjallaran- um. Vakti málið talsverða athygli og þótti „dótakassinn“ vera til merkis um bruðlið sem var ein- kennandi fyrir hrun. Útseld vinna Jóns Þórs nam 140 milljónum króna á árun- um 2006 og 2007 sem þýðir að mánaðartekjur hans voru að jafnaði um 5,8 milljónir króna. Síðar kom í ljós að á þess- um árum framdi hann stór- felld skattsvik, en Jón Þór var dæmdur fyrir þau í Héraðs- dómi Reykjavíkur í fyrra. Höfðu rekstrartekjur verið vantaldar og rekstrargjöld oftalin auk þess sem arður hafði verið greidd- ur út úr félaginu með ólög- legum hætti. Nú heyrir félag- ið fræga sögunni til, félagið er orðið gjaldþrota og er skiptum nú lokið. Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.