Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 8
Helgarblað 18.–21. júlí 20148 Fréttir Maðurinn reyndi að drepa Mig É g er með ör á líkamanum og sál- inni eftir þetta,“ segir Kristinn Kristinsson í samtali við DV en hann varð fyrir fólskulegri árás á Ólafsfirði hinn 27. júní árið 2012. Hann segir að árásarmaður sinn hafi ráðist á sig með golfkylfu og bar- ið ítrekað í höfuðið. Ef hefði ekki ver- ið fyrir skjót viðbrögð félaga hans hefði sennilega farið verr. Málið var eitt ár í rannsókn þrátt fyrir að fjöl- mörg vitni hafi verið að atburðinum. Árásarmaðurinn hefur verið ákærð- ur en ekki hefur tekist að birta hon- um ákæruna og því þurfti að seinka þingfestingu málsins á dögunum. „Maðurinn reyndi að drepa mig. Vinur minn þurfti að hoppa þarna á milli því hann var ekkert að hætta að berja mig,“ segir Kristinn. Gunn- ar Jóhannsson, lögreglufulltrúi á Ak- ureyri, staðfestir í samtali við DV að málið hafi verið flokkað sem líkams- árás. Seldu saman Kristinn segir að rekja megi for- sögu árásarinnar til fíkniefnavið- skipta sem þeir stunduðu í sam- einingu. „Við vorum báðir að selja gras en svo fokkar hann öllu upp í kringum sig og það fer allt í klessu. Hann brýst svo inn hjá mér og stelur meðal annars „laptopi“ og Playsta- tion-tölvu. Ég ákvað nú að hjálpa hon- um samt, því þetta voru allt ranghug- myndir í hausnum á honum. Ég er svo aumingjagóður. Hann var orðinn skít- blankur svo ég ákvað að hjálpa hon- um og gefa honum séns,“ segir Krist- inn. Hann segir að aðstoðin hafi verið í formi tvö hundruð gramma af kanna- bis sem hann hafi lánað honum. „Það var nú bara til að hjálpa honum fjár- hagslega.“ „Byrjar að ybba gogg“ Daginn sem maðurinn réðst á Kristin hafði Kristinn hringt í árásarmanninn og spurt hvort hann gæti ekki greitt sér eitthvað fyrir kannabislánið. „Ég hringdi í hann til að sjá hvort hann ætti ekki einhvern smá aur til að láta mig hafa upp í. Þá byrjar hann bara eitthvað að ybba gogg og ég sagði honum að vera ekki með ein- hverja vitleysu,“ segir Kristinn. Þá hafi árásarmaðurinn sagt honum að koma til sín til að taka við fénu. Kristinn fór þá af stað ásamt tveimur félögum sín- um. „Ég rölti yfir til hans, hann var þá hjá mömmu sinni og pabba. Ég hafði vit á því að labba ekki inn nema vera boðið inn. Ég sat bara fyrir utan og fékk mér sígó,“ segir hann. Þar beið hann þar til árásarmaðurinn kallaði eftir honum og þá fór Kristinn inn í húsið. Tók eitt skref og þá kom kylfan Kristinn lýsir því að þegar hann stíg- ur inn í húsið sjái hann ekkert fyrr en mótar fyrir golfkylfu. „Bara um leið og ég labba eitt skref inn fyrir anddyrið þá kemur golfkylfan á fullu í hausinn á mér. Hann lemur mig tvisvar í haus- inn og ég stóð bara kyrr og spurði hvurn fjandann hann væri að gera. Þá fríkar hann eitthvað út og hélt áfram að berja mig í hausinn. Hann sagði að hann ætlaði að drepa mig,“ lýsir Krist- inn. Hann segir að við þetta hafi fé- lagar hans skorist í leikinn og stöðvað barsmíðarnar. „Varð hálfvankaður“ Kristinn segir að þrátt fyrir hve alvar- leg árásin var hugðist hann hvorki ætla að kæra né fara á spítalann fyrst um sinn. „Ég varð hálfvankaður eftir þetta. Ég fór bara í tætlur þarna í end- ann. Ég fór á spítalann á Siglufirði þar sem þeir tjösluðu mér saman. Ég ætl- aði nú fyrst bara að labba heim og fara að grilla,“ segir Kristinn. Hann segir að lögreglan hafi snúið sér frá þeirri hugmynd. „Það var nú ein löggan á Dalvík sem þekkir mig sem fékk mig til að kæra, þó að þetta sé sjálfkært. Ég ætlaði fyrst að segja að ég hefði labb- að á hurðarkant. Þegar löggan kom sögðu þeir að þetta væri nú alvarlegra en það.“ Löng rannsókn Kristni blöskrar hve langan tíma það hefur tekið að ákæra manninn en er þó ánægður að það sé þó loksins búið að gera það. „Þetta er náttúrlega bara rugl. Ef þetta er að taka tvö, þrjú ár þá er bara hægt að fella þetta niður, þetta er bara orðið of gamalt,“ segir Kristinn. Drukkna í líkamsárásarmálum Gunnar Jóhannsson, lögreglufulltrúi á Akureyri, segir í samtali við DV að rannsókn hafi vissulega verið frekar löng en margar ástæður séu fyrir því. „Þetta er bæði vegna tímaskorts og mannaflaskorts. Svo næst ekki í þessa gauka, þeir sinna ekki boðunum eða kvaðningum. Þeir sem eru í rugli láta ekki ná í sig,“ segir hann. Auk þessa var ein ástæða fyrir því að rannsókn tók langan tíma, að sögn Gunnars, að mál- ið var tengt öðrum málum sem flækti rannsókn. „Svo er það að lögregla og ákæruvald eru að drukkna í svona lík- amsárásarmálum.“ n n Ráðist var á Kristin með golfkylfu árið 2012 n Tókst ekki að birta ákæru „ Ég fór bara í tætlur þarna í endann Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Í dag Greina má ör sem Kristinn fékk eftir árásina á nýlegum myndum. Hann segist vera með ör bæði á líkama og sál eftir árásina. Illa lemstraður Sjá má á myndinni að Kristinn var illa farinn eftir golfkylfu- árásina. Myndin var tekin stuttu eftir árásina. Bílar brunnu í Kópavogi Rannsókn á bruna þriggja bíla í Auðbrekku í Kópavogi á miðviku- dagskvöld er á frumstigi. Líkt og greint var frá á DV.is var slökkvi- liðið kallað út rétt eftir klukkan ellefu á miðvikudagskvöld vegna brunans. Mikill eldur logaði í þremur bílum sem lagt hafði ver- ið á bílastæði. Reykjarmökkur lá yfir Hamraborginni, þykkur og mikill. Líklega kviknaði eldur í einum bílanna og barst úr honum yfir í hina tvo, en of snemmt er að slá því föstu. Lögregla rannsakar nú eldsupptök. Líkamsárás í miðborginni Nóttin var nokkuð viðburðarík hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann á þriðja tímanum aðfaranótt fimmtudags vegna lík- amsárásar. Atvikið átti sér stað á Laugaveginum, en maðurinn var undir áhrifum vímuefna. Hann var vistaður í fangageymslu í kjölfar- ið og var tekin af honum skýrsla þegar ástand hans batnaði. Lögreglan hafði einnig í fleiri málum að snúast á miðvikudags- kvöld og aðfaranótt fimmtudags, en þrír ökumenn á götum borg- arinnar voru stöðvaðir vegna gruns um að aka undir áhrifum áfengis. Þá aðstoðaði lögregla leigubíl- stjóra sem var í vandræðum með farþega. Konan sem um ræðir var í mjög annarlegu ástandi og ekki hægt að ræða við hana. Hún gisti fangageymslu þá nótt. Einnig voru tveir handteknir í borginni vegna gruns um fíkni- efnamisferli. Þeir voru látnir laus- ir að lokinni skýrslutöku. Kennslanefnd að störfum Kanna hvort björgunarsveitarmenn hafi fundið Ástu Stefánsdóttur K ennslanefnd kannar nú hvort lík sem fannst í Bleiksárgljúfri á þriðjudagskvöld sé af Ástu Stef- ánsdóttur, 35 ára lögfræðingi frá Reykjavík. Búist er við því að nefndin ljúki störfum á næstu dögum. Í kennslanefnd ríkislögreglustjóra eru tveir rannsóknarlögreglumenn, réttarlæknir og tannlæknir. Nefndin mun bera saman myndir af tönnum og skýrslur tannlækna til þess að fá staðfestingu. Þá verða lífsýni einnig borin saman. Réttarkrufning mun fara fram í kjölfarið og þá verður hægt að greina frá dánarorsök. Þegar þetta hefur verið gert er hægt að staðfesta hvort um Ástu Stefánsdóttur sé að ræða. Leit í Bleiksárgljúfri hófst þann 10. júní og er talið að þær Ásta og sambýlis kona hennar Pino Becerra Bolaños hafi farið frá bústaðnum sem þær dvöldu í í Fljótshlíð á sunnudeg- inum. Pino fannst látin þann 10. júní í hyl í Bleiksárgljúfri. Leitin að Ástu hefur verið ein sú umfangsmesta sem Landsbjörg hefur skipulagt og voru meðal annars árfarvegir Bleiksár stífl- aðir með mikilli fyrirhöfn. Þá komu í ljós göng sem gleyptu vatn sem kom úr fossi í gljúfrinu. Of hættulegt var að leita í göngunum þar sem ekki var hægt að staðfesta hvert þau liggja. Leit var því hætt þann 28. júní síðast- liðinn. Ákveðið var að kanna svæðið með reglulegu millibili og hófst slík leit á þriðjudag. Þá fór fyrsti leitarflokk- urinn á staðinn og fundu þrír fé lag ar úr Flug björg un ar sveit inni á Hellu lík fremst í gilinu í Bleiksárgljúfri. Allar líkur eru taldar á því að um sé að ræða Ástu Stefánsdóttur. n Umfangsmikil leit Björgunarsveitar- menn voru að störfum í gilinu nánast allan júní. Leit var hætt um mánaðarmót en vakta átti svæðið á tveggja til þriggja ára fresti. MynD GUðBranDUr Örn arnarSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.