Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Page 16
Helgarblað 18.–21. júlí 201416 Fréttir
Már, Friðrik og ragnar líklegastir
n Hver verður næsti seðlabankastjóri? n Lögreglustjóri og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokks meta fyrir Bjarna Benediktsson n Hæfnisnefndin er formsatriði
M
ár Guðmundsson, Ragnar
Árnason og Friðrik Már
Baldursson eru þeir um-
sækjendur sem þykja lík-
legastir til að verða skip-
aðir í embætti Seðlabankastjóra.
Sjálfstæðismenn horfa helst til
Ragnars Árnasonar, prófessors við
Háskóla Íslands, en viðhorf hans til
efnahags- og peningamála samrým-
ast vel stefnu flokksins. Það sama
verður ekki sagt um Má Guðmunds-
son, núverandi Seðlabankastjóra, en
ýmsir í flokknum hafa hugsað hon-
um þegjandi þörfina allt frá því að
Davíð Oddsson hraktist úr bankan-
um og Már kom í hans stað. Viðmæl-
endur DV benda á að Friðrik Már,
prófessor við Háskólann í Reykja-
vík, gæti orðið heppilegur milliveg-
ur, kandídat sem náðst geti sátt um,
enda sé hann hokinn af reynslu.
Lögreglustjórinn metur
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, skipaði nefnd í
byrjun mánaðarins sem mun meta
hæfni þeirra tíu einstaklinga sem
sóttu um stöðu seðlabankastjóra.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höf-
uðborgarsvæðinu og lögfræðingur,
var skipaður formaður nefndarinn-
ar án tilnefningar, en með honum í
hæfnisnefndinni eru Guðmundur
Magnússon, fyrrverandi rektor Há-
skóla Íslands, tilnefndur af sam-
starfsnefnd háskólastigsins og Ólöf
Nordal, lögfræðingur og fyrrverandi
þingkona Sjálfstæðisflokksins.
Bankaráð Seðlabankans tilnefndi
Ólöfu til starfans, en bæði hún og
Ragnar Árnason, umsækjandi um
stöðuna, sátu bankaráðsfundinn
hinn 22. maí þegar tilnefningin var
tekin fyrir.
Guðmundur er eini hagfræðingur-
inn sem metur hæfni þeirra hag-
fræðinga og viðskiptafræðinga sem
sækja um stöðu seðlabankastjóra.
Til samanburðar má nefna að þegar
hæfnisnefnd um skipan seðla-
bankastjóra var skipuð í fyrsta sinn
árið 2009 sátu tveir hagfræðingar í
nefndinni og einn lögfræðingur.
Umdeild skipan í hæfnisnefnd
Á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa
valið í hæfnisnefndina eru Guðrún
Johnsen, lektor við viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík, og Regína
Bjarnadóttir, yfirmaður greiningar-
deildar Arion banka, en þær óttast
að skipan nefndarinnar geti bein-
línis skaðað sjálfstæði Seðlabankans
sem og starfsanda innan hans.
Jón Steinsson, lektor í hagfræði
við Columbia-háskóla í Bandaríkj-
unum, skrifar á Facebook að hon-
um þyki furðulegt að Stefán hafi
tekið að sér að gegna formennsku
í nefndinni. „Sjálfur myndi ég til
dæmis ekki taka að mér að leggja
faglegt mat á umsækjendur í stöðu
hæstaréttardómara (eða dómara í
héraðsdómi eða lögreglustjóra ef út
í það er farið),“ skrifar Jón.
Ákvörðunin pólitísk
Bjarni Benediktsson hefur blásið á
þessa gagnrýni og sagt í viðtali við
fréttastofu RÚV að umræðan sé öll
á misskilningi byggð, enda sé það
hann sjálfur sem á endanum skipar
í embættið. Af orðum hans má ráða
að fyrst og fremst sé litið á hæfnis-
nefndina sem formsatriði; á end-
anum verði ákvörðunin pólitísk.
Hér ber að hafa í huga að ekki eru
nema nokkrir mánuðir síðan Illugi
Gunnarsson, menntamálaráðherra
og flokksbróðir Bjarna, gerði Hrafn-
hildi Ástu Þorvaldsdóttur, systur
Ólafs Barkar og frænku Davíðs Odds-
sonar, að framkvæmdastjóra LÍN
þrátt fyrir að stjórn sjóðsins hefði
mælt með öðrum umsækjanda.
Nú er talsvert veigameira embætti í
húfi, en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
impraði sérstaklega á því í nýjustu
eftirfylgniskýrslu sinni um Ísland að
miklu skipti að standa vörð um sjálf-
stæði og trúverðugleika Seðlabank-
ans. Eftir því sem DV kemst næst
mun hæfnisnefndin kynna ráðherra
mat sitt á umsækjendum í næstu
viku. n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
F
riðrik Már Baldursson var
efnahagsráðgjafi ríkisstjórn-
arinnar á síðasta kjörtímabili.
Hann hefur umtalsverða
náms- og starfsreynslu, hefur gegnt
prófessorsstöðu við þrjá háskóla
og starfað sem forstjóri Þjóðhags-
stofnunar og stjórnarformaður
Landsnets og Hafrannsóknastofn-
unar. Ólíklegt er að framsóknar-
menn renni hýru auga til Friðriks,
enda hefur hann verið ósmeykur
við að gagnrýna skuldaniðurfell-
ingar ríkisstjórnarinnar.
Friðrik hvatti til einhliða upp-
töku nýs gjaldmiðils fyrir hrun. Í
viðtali við Viðskiptablaðið árið 2012
sagði hann að ef til einhliða upp-
töku kæmi væri Bandaríkjadalur
heppilegasti kosturinn. „Hvað sem
má segja um evruna
og evrusvæðið, þá
geta menn samt reitt
sig á evrópska seðla-
bankann þegar til
myntsamstarfs kæmi
milli hans og Íslands.
Það er því ein mögu-
leg leið til að aflétta
gjaldeyrishöftum
áfallalaust. En þar
gildir það sama, þró-
unin þar er á þann veg að ríkisfjár-
málum verður í auknum mæli mið-
stýrt af sambandinu sjálfu,“ sagði
hann í sama viðtali. Á síðasta árs-
fundi Samtaka atvinnulífsins benti
hann á að krónan yrði alltaf þránd-
ur í götu erlendra fjárfesta og í raun
yrði Ísland að velja á milli sjálf-
stæðrar peninga-
stefnu og frjáls flæð-
is fjármagns. Þá gæti
íslenska krónan orðið
viðráðanleg með
bættri hagstjórn og
aga.
Þegar breski há-
skólaprófessorinn
Robert Wade skrif-
aði pistil í Financial
Times um óraðsíu
og óstjórn íslensku bankanna,
gegndarlausa skuldasöfnun og
slælegt eftirlit var Friðrik Már einn
þeirra sem svöruðu honum af
hörku. Í pistli þeirra Richard Portes
var staðhæft að bankakerfið stæði á
traustum grunni, en aðeins örfáum
mánuðum síðar kom annað í ljós.
R
agnar Árnason, hagfræði-
prófessor við Háskóla Ís-
lands, hefur sérhæft sig í
rekstrar- og umhverfishag-
fræði og starfað við hagrannsókn-
ir bæði á Íslandi og erlendis. Hann
er einn ötulasti talsmaður kvóta-
kerfisins og hefur lagst eindregið
gegn hækkun veiðigjalda. Því þarf
engan að undra að Ragnar nýtur
velþóknunar innan Sjálfstæðis-
flokksins.
Í aðdraganda síðustu þing-
kosninga kom hann fram í viðtöl-
um og gagnrýndi efnahagsstefnu
fyrri ríkisstjórnar harðlega. Ragn-
ar hefur setið í bankaráði Seðla-
bankans undanfarin ár, en strax í
nóvember árið 2010 var hann far-
inn að senda stjórnendum bank-
ans og vinstristjórninni tóninn.
Í viðtali við Morgunblaðið hvatti
Ragnar til þess að gjaldeyrishöftin
yrðu afnumin með hraði og sagði
gengi krónunnar óeðlilega sterkt.
„Við viljum auðvitað að lífskjör
séu sem best og það þýðir að inn-
fluttar vörur séu sem ódýrastar.
Það gerist hins vegar ekki með
sjálfbærum hætti nema ef útflutn-
ingsgeirarnir eru sterkir. Stefna
ríkisstjórnarinnar hefur hins
vegar þau áhrif að draga allan
mátt úr útflutningsfyrirtækjum,“
sagði Ragnar. Fræðimaðurinn er,
ásamt þeim Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni og Birgi Þór Run-
ólfssyni, í rannsóknarráði Rann-
sóknarseturs um nýsköpun og
hagvöxt, hugveitu sem boðað hef-
ur frjálshyggju af miklum móð í
Háskóla Íslands undanfarin ár.
Vinsæll meðal
sjálfstæðismanna
Vill sterkan útflutningsgeira og afnám hafta strax
Heppileg millilending?
Friðrik Már er líklegur
Formaður hæfnisnefndar Stefán
Eiríksson lögreglustjóri gegnir lykilhlutverki.
Tilnefnd af bankaráði Ólöf Nordal, fyrr-
verandi þingkona er einnig í hæfnisnefndinni.
Hvað gerist? Bjarni
Benediktsson skipar
seðlabankastjóra.