Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Side 17
Helgarblað 18.–21. júlí 2014 Fréttir 17
Már, Friðrik og ragnar líklegastir
n Hver verður næsti seðlabankastjóri? n Lögreglustjóri og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokks meta fyrir Bjarna Benediktsson n Hæfnisnefndin er formsatriði
M
ár Guðmundsson hefur
gegnt starfi seðla-
bankastjóra frá árinu
2009 og var ráðinn eftir að
hæfnisnefnd mat hann „mjög vel
hæfan“. Hann átti langan náms- og
starfsferil að baki á sviði peninga-
og gengismála og hafði meðal
annars starfað hjá Alþjóðagreiðslu-
bankanum í Sviss.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, hefur gagnrýnt Seðlabankann
og Má fyrir að hafa kannað efna-
hagsleg áhrif skuldaniðurfellinga
óumbeðinn og virðist ekki sérlega
spenntur fyrir því að Már gegni
embættinu áfram. Sjálfstæðisflokk-
urinn og Framsóknarflokkurinn
gagnrýndu stefnu Seðlabankans
harðlega á síðasta kjörtímabili. Þá
bakaði Már sér talsverðar óvin-
sældir meðal valdamikilla aðila í
viðskiptalífinu með rannsókninni
á meintum gjaldeyrislagabrotum
Samherja.
Morgunblaðið, sem er að hluta
til í eigu dótturfélaga Samherja,
hefur ítrekað fjallað um launa-
mál Más, sérstaklega undanfarna
mánuði eftir að fram kom að bank-
inn hefði greitt málskostnað hans
í máli á hendur bankanum árið
2010. Ríkisendurskoðun kannaði
málið og komst að þeirri niður-
stöðu að ekki hefði verið heimild
fyrir ákvörðun formanns banka-
ráðs um að greiða málskostnaðinn.
Hins vegar benti ekkert til þess að
Már hefði sjálfur átt þátt í að það
var gert.
Margir efuðust um að Már
myndi sækjast eftir því að gegna
áfram hlutverki seðlabankastjóra,
en hann tilkynnti í viðtali hinn 15.
júní að hann hygðist sækja aftur
um stöðuna. „Ef allt er skoðað er
það niðurstaða mín að ég ætla að
sækja um,“ sagði hann þá í viðtali
á Stöð 2.
Umdeildur Már
Ekki vinsæll meðal stjórnarliða
Keyptar auglýs-
ingar á Facebook
Lilja á dyggan stuðningsmannahóp
Lilja Mósesdóttir, stofnandi Sam-
stöðu, fyrrverandi þingkona Vinstri
grænna og háskólaprófessor, virð-
ist eiga sér dyggan aðdáendahóp á
Facebook. Þar hefur verið stofnuð
sérstök stuðningssíða undir yfir-
skriftinni „Lilju Mósesdóttur sem
næsta seðlabankastjóra“.
„Þeir sem læka þessa síðu eru á
þeirri skoðun að Lilja Mósesdóttir
sé hæfasti umsækjandinn um stöðu
seðlabankastjóra sem verður skip-
að í 20. ágúst n.k,“ segir í lýsingu á
síðunni.
Athygli vekur að umsjónarmenn
síðunnar hafa greitt fyrir auglýsingar
svo boðskapurinn berist sem flest-
um Facebook-notendum. Um 1.500
manns hafa líkað við síðuna.