Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 19
Helgarblað 18.–21. júlí 2014 Fréttir 19 Fölsk glansmynd af hjáveituaðgerðum þegar ég var búin að vera heima í þrjá daga byrjaði ég að æla stanslaust. Ég gat ekki fengið mér vatnssopa án þess að æla honum.“ Var mjög veik Harpa var þá lögð inn aftur en þá kom í ljós að það hafði myndast Síðkomnir fylgikvillar í Danmörku Gríðarleg þreyta, óbærilegir verkir og alvarlegur skortur á vítamínum D anska ríkissjónvarpið DR1 fjallaði ítarlega um hjáveitu- aðgerðir og langtímaáhrif þeirra í heimildaþáttaröð- inni „Historien bag Historien“, eða „Sagan á bakvið söguna“, í síðasta mánuði. Þar kemur meðal annars fram að hundruð þeirra sem fóru í hjáveituaðgerð í Danmörku í byrjun þessarar aldar glíma nú við alvar- lega fylgikvilla í kjölfar aðgerðar- innar. Læknar og sérfræðingar eru jafnframt gagnrýndir fyrir að fram- kvæma aðgerðirnar á þúsundum sjúklinga án þess að hafa sjálfir nægilega þekkingu á hugsanlegum síðkomnum fylgikvillum. Safna átti upplýsingum um síðkomna fylgi- kvilla í einn gagnagrunn en það var hins vegar ekki gert fyrr en árið 2010, þegar rúmlega 11 þúsund manns höfðu þegar farið í aðgerðina. Með- al síðkominna fylgikvilla eru gríðar- leg þreyta, óbærilegir verkir og alvarlegur skortur á vítamínum og steinefnum. Umfjöllunin kemur í kjölfar skýrslu sem gerð var fyrir stjórn heilbrigðismála í Danmörku um síðkomna fylgikvilla vegna offitu- aðgerða í Danmörku á árunum 2006–2011. Alls voru gerðar 11.498 hjáveituaðgerðir á þessu tímabili í Danmörku og höfðu 7.646 sjúk- lingar farið í aðgerðir aftur. Stór hluti sjúklinga gengst einnig undir valfrjálsar lýtalækningar á þessu tímabili (áætlað um 20 pró- sent sjúklinga) en þeir eru ekki tilgreindir í skýrslunni. Þá vakti athygli að 17 prósent sjúklinga höfðu lagst aftur inn á sjúkrahús að sex mánuðum liðnum, en 81 prósent höfðu þurft á endurinn- lögn að halda fimm árum eftir að- gerð. Aðgerðum fjölgaði hratt Hjáveituaðgerðum fjölgaði mjög hratt á stuttum tíma í Danmörku. Árið 2005 voru 284 aðgerðir fram- kvæmdar þar í landi en árið 2010, fimm árum síðar, voru þær orðn- ar 4.400 talsins. Frá árinu 2010 hef- ur aðgerðum síðan aftur fækkað í Danmörku, en sjúklingar þurfa nú að uppfylla strangari kröfur en áður. Eftirspurnin er eftir sem áður mjög mikil. Svipaða sögu er að segja í Svíþjóð. Þar voru aðgerðirn- ar um fimm þúsund árið 2008 en rúmar átta þúsund aðgerðir voru framkvæmdar árið 2010. Á tíu ára tímabili tífaldaðist fjöldi aðgerða í Svíþjóð. Á Landspítalanum voru fram- kvæmdar 52 hjáveituaðgerðir árið 2010 og árið 2011 hafði þeim fjölg- að upp í 81 aðgerð. Árið 2012 hafði þeim síðan fækkað niður í 42 og á síðasta ári voru einungis fram- kvæmdar 33 aðgerðir hér á landi. Samkvæmt alþjóðlegum rann- sóknum fær einn af hverjum fimm sem fara í hjáveituaðgerð ein- hverja fylgikvilla í kjölfar hennar. Um tíu prósent þessara fylgikvilla eru alvarlegs eðlis. Á Íslandi fara um 80 einstaklingar í hjáveitu- aðgerð á maga á ári hverju og eru um 80 pró- sent þeirra konur. Í DV hinn 24. júní síðastliðinn var sögð saga Jóhönnu Hallbergsdóttur en hún lá á sjúkrahúsi í tæpa tutt- ugu mánuði eftir að hafa farið í hjáveituaðgerð. Saumaskapur á maga gaf sig og fékk Jóhanna þrálátar sýkingar í kviðarhol. Hún gekkst alls undir fimmtán aðgerðir á þessu tímabili og var lengst af höfð í einangrun. Að endingu var maginn í henni fjar- lægður, ásamt hluta af kviðvegg sem var í raun ónýtur eftir allan þennan tíma. Í viðtalinu sagð- ist Jóhanna þrátt fyrir allt skilja fólk sem velur að leggjast undir hnífinn og heimila jafn stórt inn- grip í líkamann í von um betra líf. Þráin eftir því að verða mjór sé svo sterk. „Ég sá allt mjóa fólkið í sjónvarpinu sem var búið að fara í þessar aðgerðir og þannig langaði mig til að vera. Ég sá þeirra líf í hillingum,“ segir hún. „Ég hef alltaf verið rosalega hraust. Það var ekki heilsuleysi eða þunglyndi sem hrjáði mig. Það var bara „lúkkið“ sem þurfti að vera öðruvísi. Mér fannst ég vera annars flokks manneskja í þessari þyngd.“ önnur garnaflækja rétt fyrir neðan tenginguna þar sem hjáveitan var gerð. „Allur matur sem ég borðaði fór inn í gamla magann. Það á ekki að vera hægt,“ útskýrir Harpa. „En af því að flækjan var þar beint fyrir neðan þá bara tróðst allt þangað inn. Gamli maginn var því orðinn eins og blaðra sem var við það að springa.“ Hún var því svæfð og tengd við magastóma til þess að tappa af gamla maganum. „Út frá þeirri aðgerð fékk ég sýkingu í brjósthol. Þá var sett dren í brjóstholið til þess að reyna að drena burt sýkinguna. Ég var komin með langt yfir fjörutíu stiga hita og orðin mjög veik. Þegar ég var búin að jafna mig á sýkingunni var mér síðan rúllað í enn aðra aðgerð og seinni garnaflækj- an löguð. Alls lá ég inni í níu vikur.“ Fría sig allir ábyrgð „Ég hef aldrei fengið það staðfest að þessi garnaflækja sé tilkomin út frá hjáveituaðgerðinni,“ segir Harpa. Hún segir lækna alltaf tala undir rós þegar umræðuefnið kemur upp. Harpa kvartaði til landlæknisembættisins en þar fékk hún einnig sömu svör, að ekki væri hægt að færa sönnur fyrir því að garnaflækjan hafi verið fylgi- kvilli hjáveituaðgerðarinnar. Þá seg- ist hún hafa reynt að leita réttar síns vegna þeirra mistaka sem gerð voru á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Sel- fossi þegar hún var send heim með hægðalosandi lyf en var í raun með alvarlega garnaflækju. „Þegar skurð- læknirinn tók utan um garnirnar þá nánast bráðnuðu þær í höndunum á honum,“ segir Harpa. „Ef ég hefði tek- ið hægðalosandi og haldið mig heima þá væri ekkert spurt að því, ég væri bara ekkert hér í dag. Allavega hefðu veikindin orðið mikið alvarlegri. En það er hægara sagt en gert að leita réttar síns. Ég er búin að tala við tvo lögfræðinga en þeir komust báðir að sömu niðurstöðu. Það er ekki hægt fara með málið lengra því það fría sig allir ábyrgð.“ Reglulegir magaverkir Spurð um líðan sína í dag segir Harpa: „Ég myndi alveg vilja vera betri. Það er náttúrlega búið að stytta á mér garnirnar um meira en þrjá metra,“ segir Harpa en til fróðleiks þá eru garnir í heilbrigðum fullorðnum manni um sjö metrar á lengd. Þeir eru styttir um tvo metra í hefðbund- inni hjáveituaðgerð og þegar Harpa fékk garnaflækjurnar var tekinn rúm- ur metri í viðbót. „Vítamínupptakan hjá mér mætti vera betri. Mér helst til dæmis mjög illa á járni. Ég fæ síð- an alveg svakalega í magann inn á milli og leita reglulega upp á bráða- móttöku. Í lok síðasta árs fundust svo- kallaðar smokranir. Þá er eitthvert los í görnunum og þær smokra sér inn í hver aðra. Á endanum myndast mikil bólga, garnirnar festast og þá er kom- in flækja,“ segir Harpa og gerir hlé á máli sínu í stutta stund. „Ég lifi bara við það í dag að það er engan veginn hægt að koma í veg fyrir að þetta komi fyrir aftur. Það getur enginn fullvissað mig um að þessu sé lokið.“ Veit um fleiri dæmi „Það er mjög skrítið að hugsa til „Ég gat ekki fengið mér vatnssopa án þess að æla honum „Annars flokks mann- eskja í þessari þyngd“ 80 prósent hjáveituaðgerða gerðar á konum baka núna. Það eru þarna fjögur ár þar sem ég er alltaf að fá í magann og það er aldrei skoðað ítarlega. Það var ekki fyrr en ég er orðin fárveik, og nær dauða en lífi, sem ég var send í myndatöku,“ segir Harpa um fyrstu árin eftir hjáveituaðgerðina. „Við fáum mjög góða fræðslu um mögulega fylgikvilla svona aðgerðar á Reykjalundi en einhvern veginn hugsar maður alltaf að ekkert slíkt geti komið fyrir mann sjálfan. En þetta eru ekki einhverjar örfáar pró- sentur sem lenda í fylgikvillum, það eru bara mjög margir.“ Harpa seg- ist hafa heyrt um mörg dæmi um erfiða fylgikvilla hér á landi eftir að hún veiktist, sér í lagi tengd görn- unum. „Ég hef til dæmis heyrt mörg dæmi þess að fólk er að fara og láta hengja upp í sér garnirnar. Þá eru garnirnar orðnar lausar og það þarf að hengja þær upp. Það er svona al- gengasta vandamálið sem ég hef heyrt um.“ Svakalegt inngrip Harpa vísar glansmyndinni sem iðu- lega birtist okkur af hjáveituaðgerðum á bug. Raunveruleikinn sé langt frá því að vera töfrandi. „Auðvitað heyr- ir maður dæmi um að allt hafi gengið vel og það er að sjálfsögðu frábært. En þetta er svo svakalegt inngrip. Það er verið að eiga við stærstu líffærin okkar. Líffærin sem halda okkur á lífi,“ segir Harpa. „Auðvitað líður manni betur þegar maður grennist. Maður getur farið að kaupa sér föt og sjálfsmyndin verður sterkari. Ég geri ekki lítið úr því. Það er samt algjört helvíti að lenda síðan í því að verða bara fárveikur.“ Að viðtali loknu sýnir Harpa blaðamanni myndir af sér frá því áður en hún fór í aðgerðina. Konan á myndunum er talsvert ólík konunni sem situr gegnt mér. „Þessi kona var kannski ekki með sterka sjálfsmynd,“ segir Harpa og talar um sjálfa sig á þessum árum í þriðju persónu. „En hún hafði heilsu.“ n „Það er náttúr- lega búið að stytta á mér garnirnar um meira en þrjá metra Orðin mjög veik Harpa var um tíma með dren í brjóstholinu vegna sýkingar og maga- stóma vegna garnaflækjunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.