Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Side 24
Helgarblað 18.–21. júlí 2014 Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttASkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AðAlnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtARSími AUglýSingAR Sandkorn 24 Umræða Þarna gekk allt fyrir sig átakalaust Maður á ekki að búa á þessari eyju alla ævi Rosalega er þetta lélegur leikur! Vigdís Hauksdóttir varði sumarfríinu í Flórens. – DV Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, íhugar að flytja úr landi. – DV Jónína Ben var ekki ánægð með leik Argentínu og Hollands á HM. – Facebook Ráðherrann sem bannaði brennivín Reynir Traustason rt@dv.is Leiðari Ara ýtt út Brotthvarf Ara Edwald af forstjóra- stóli 365 kemur ekki á óvart. Eins og fjallað hefur verið um í DV var búið að ýta honum til hliðar og gera hann valdalítinn innan fyrir- tækisins. Fyrir stuttu var tilkynnt að Sævar Freyr Þráinsson, fyrrver- andi stjórnandi hjá Símanum, yrði aðstoðarframkvæmdastjóri við hlið Ara. Það stóð aðeins í tvær vikur þar til Sævar var með öll völd. Talið er að þetta sé gert að kröfu þeirra sem koma inn með milljarð krónur í fyrirtækið. Ari er einn af dýrari forstjórum landsins með á fimmtu milljón í mánaðarlaun. Veik staða Mikaels Búist er við að Sævar Freyr Þráins- son, forstjóri 365, taki til hendinni innan fyrirtækisins. Freyr Einars- son dagskrárstjóri var látinn fjúka. Staða Mikaels Torfasonar, sem óvænt varð aðal- ritstjóri í tíð Ara Edwald, þykir vera mjög ótrygg. Mikil ólga hefur verið í kringum Mik- ael, sem hefur plantað inn sínu fólki. Það kann því að styttast í að Ólafur Stephensen, ritstjóri Frétta- blaðsins, nái aftur vopnum sínum og losni undan oki Mikaels. Gæsalappir Hannesar Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor þótti býsna orðhepp- inn á dögunum þegar hann brást við fréttaflutningi DV á Facebook. „Gæti ég gengið á vatni, þá myndi DV birta frétt: Hannes kann ekki að synda!“ skrif- aði prófessorinn og uppskar aðdá- un viðhlæjenda sem létu sér vel líka. Ljóminn fór dálítið af orðum hans þegar í ljós kom að enn og aftur hafði Hann- es gert orð annarra að sínum og gleymt að nota gæsalappir. Að þessu sinni var það ekki nóbels- skáldið heldur Margaret Thatcher sem mun hafa sagt: „If my critics saw me walking over the Thames they would say it was because I couldn't swim.“ Vantraust á ráðherra Innan stjórnarandstöðunnar eru uppi hugmyndir um að bera upp vantraust á Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur innan ríkisráðherra vegna lekamáls- ins þar sem tve- ir aðstoðarmenn hennar hafa stöðu grunaðra. Menn eru þó hikandi því víst þykir að ef vantrauststillagan komi fram neyðist Bjarni Bene- diktsson formaður og samherjar hans til að taka slaginn til varnar ráðherranum sem hefur orð á sér fyrir að hafa ítrekað með undir- málum reynt að fella formanninn. Þar með yrði slegin um Hönnu skjaldborg í stað þess að láta hana standa á berangri eins og nú ger- ist. „Vilhjálmur var með hreint hjartaV ilhjálmur Hjálmarsson, fyrr- verandi ráðherra og bóndi á Brekku í Mjóafirði, féll frá í vikunni, 99 ára að aldri. Með láti hans er genginn mikill héraðs- höfðingi og stjórnmálamaður sem ekki mátti vamm sitt vita. Vilhjálmur var alla tíð framsóknarmaður. Hann komst til þeirra áhrifa að verða þing- maður og síðan menntamálaráð- herra og markaði þar spor sín. Fyrst og fremst voru það heilindi og hrein- lyndi sem réðu för í störfum hans. Hann var bindindismaður á áfengi og blöskraði það hve víða var boðið upp á áfengi í veislusölum ríkisins. Ráðherrann frá Brekku bannaði því að áfengi yrði veitt á vegum mennta- málaráðuneytisins. Þetta vakti verð- skuldaða athygli og hann uppskar lof fyrir. Hann var ráðherrann sem út- hýsti og bannaði brennivínið. Vilhjálmur hélt alla tíð fast í ræt- ur sínar í Mjóafirði. Þar bjó hann alla tíð og sinnti þeim störfum sem féllu til. Þá var hann gríðarlega afkasta- mikill rithöfundur og skrifaði með- al annars bækur sem náðu mikilli hylli. Mest skrifaði hann þó um fólk og byggðir í Mjóafirði. Sá menn- ingararfur sem hann skilur eftir sig í þeim efnum er ómetanlegur. Þegar komið er í litla þorpið hans á Brekku svífur andi hans yfir vötnum. Þar er fátt annað til sölu en kaffi, vöfflur og svo bækur Vilhjálms sem eru margar hverjar afar skemmtilegar og fræð- andi. Vilhjálmur var með hreint hjarta. Það er ómetanlegt þegar stjórnmála- maður er annars vegar. Alltof mikið er um lýðskrum og lygar til að smala atkvæðum og komast til áhrifa. Of margir stjórnmálamenn skara eld að sinni köku til þess að hagnast persónulega. Dæmin í nútímanum eru ótal mörg og sum svívirðileg. Gengið er á svig við lög og reglur í frændhygli og vinavæðingu. Heið- ur og æra er fyrir mörgum stjórn- málamanninum einskis virði. Allt er gert fyrir völdin. Svona hefur þetta verið undanfarna áratugi. Bankar eru einkavæddir og allt fer í kaldakol með tilheyrandi tjóni almennings. Lýðræðið er fótum troðið og stjórn- málamenn umgangast eigur ríkis- ins eins og sínar eigin. Hnignunin er augljós öllum þeim sem vilja opna augun. En því ber þó að halda til haga að í garði íslenskra stjórnmála eru þónokkrar fjólur sem hafa lítið að segja innan um illgresið. n H runið, aðdragandi þess og eft- irleikur breyttu Íslandi í hálf- gildings blóðvöll eins og búast mátti við. Úlfúðin tekur á sig ýmsar myndir. Þungar ásakanir eru bornar fram. Einelti og ofsóknir hafa færzt í vöxt á vinnustöðum, einnig málaferli. Þess eru dæmi, að reynt hafi verið að þagga niður í mönn- um með því að hóta þeim lögsókn eða draga þá fyrir dóm. Aðrir hafa misst vinnuna vegna skoðana sinna. Þung orð, sem menn notuðu sjaldan eða ekki áður fyrr svo aðrir heyrðu, eru nú býsna algeng í opinberri um- ræðu. Eitt þeirra er siðblinda, sem t.d. Jónas Kristjánsson ritstjóri not- ar stundum um stjórnmálamenn og aðra. Aukin harka birtist með ýmsu öðru móti. Fv. dómsmálaráðherra hefur lýst þeirri skoðun, að eðlilegt sé, að lögreglustjóri höfuðborgar- svæðisins hafi aðkomu að vali nýs seðlabankastjóra, þar eð „á ábyrgð seðlabankastjóra hafa verið teknar ákvarðanir sem sumir telja brjóta í bága við lög.“ Það virðist ekki skipta ráðherrann fv. máli, ekki frekar en lögreglustjórann sjálfan, að lögreglu- stjórinn er sem stendur umsækj- andi um annað starf hjá ríkinu. Til að girða fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi og vanda til verka er for- seta Íslands falið að skipa formann sjálfstæðrar nefndar til að fjalla um skipun æðstu embættismanna skv. frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár, sem 2/3 hluta kjósenda samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október 2012 og Alþingi heldur nú í gíslingu. Eitt dæmi enn um aukna hörku: Fram er komin annars vegar kæra og hins vegar opinber ásökun um lögbrot á hendur tveim sitjandi hæstaréttardómurum og sérstökum saksóknara. Morgunblaðið birti 25. júní 2006 eftirminnilegt Reykjavíkur- bréf um „andrúmsloft dauðans“ – það var áhrifarík aldarfarslýsing – og felldi síðan talið. Siðblinda, siðleysi, þvættingur, lygar Siðblinda er ungt orð. Elzta dæmið í Orðabók Háskólans er að finna í rit- gerð eftir Halldór Laxness, sem hann endurbirti í Sjálfsagðir hlutir 1946. Þá eins og nú var hiti í mönnum. Siðleysi er hundrað árum eldra orð og kom stundum fyrir í fjölmiðlum löngu fyrir hrun. Munurinn á sið- blindu og siðleysi er sá, að siðleys- inginn þekkir muninn á góðum og vondum siðum og veit því, hvenær hann fer út fyrir velsæmismörk. Sið- blindinginn þekkir ekki muninn á góðum siðum og siðleysi og hefur því ekki hugmynd um, hvenær hann fer yfir strikið. Hvor er ámæl- isverðari? Kannski siðleysinginn eftir kenningu Krists: „Fyrirgef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra“. Þessi merkingarmunur er hliðstæð- ur muninum á lygum og þvættingi eins og Harry G. Frankfurt, heim- spekiprófessor í Princeton-há- skóla, hefur lýst í bók sinni On Bullshit (2005; Um þvætting). Lyg- arinn þekkir muninn á sannindum og ósannindum og hallar réttu máli vitandi vits. Bullarinn hefur ekki fyr- ir því að kynna sér staðreyndir og fer áhyggjulaust með staðlausa stafi. Hvor er skaðlegri? Siðrof slítur sundur friðinn Heimska var bróðurpartinn af öldinni sem leið nánast bannorð í bandarískri stjórnmálaumræðu. Stíflan brast árið 2001, eftir að Hæsti- réttur Bandaríkjanna skipaði George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, með fimm atkvæðum gegn fjórum eftir flokkslínum. John Paul Stevens, einn reyndasti hæstaréttardómari Banda- ríkjanna fyrr og síðar, sagði, að með þessu hefði Hæstiréttur fyrirgert því trausti, sem fólkið í landinu gæti bor- ið til réttarins. Alan M. Dershowitz, lagaprófessor í Harvard-háskóla, tek- ur í sama streng í bók sinni Supreme Injustice: How the High Court Hi- jacked Election 2000. Eftir þetta var heimska ekki lengur bannorð í bandarískri stjórnmálaumræðu. Demókratar og repúblikanar á Bandaríkjaþingi talast varla við, svo mikil er úlfúðin. Bandaríkin njóta ekki lengur sömu virðingar og sama trausts og áður. Þessir atburðir vestra ríma við reynsluna hér heima. Jónas Kristjánsson birti 7. júlí s.l. örleiðara á vefsetri sínu undir yfirskriftinni Siðrof Hæstaréttar. Þar segir: „Hæsti- réttur framdi siðrof, þegar hann ógilti kosningar til stjórnlagaþings á tæknilegum forsendum. Hann gat ávítað Landskjörstjórn eða beitt við- eigandi viðurlögum fyrir losaralega túlkun á reglum um fyrirkomulag á kjörstöðum. En Hæstiréttur gat ekki látið þetta koma niður á þjóðinni og mátti ekki. Engar vísbendingar höfðu komið um kosningasvik. Hæstiréttur var bara að skemmta sér á kostnað saklausra. Við þetta brast trú margra á kerfið. Bankar, ríkisstjórn og al- þingi höfðu brugðizt og þarna brást dómsvaldið líka.“ Sundruð þjóð í hrundu landi Kannski er vandinn ekki sá, að orð- ræðan er nú harðari og aðgangshark- an meiri en áður. Kannski er vandinn sá, að ærin tilefni gefast í hrundu landi til vægðarleysis til orðs og æðis. Veldur hver á heldur. n Um siðblindu „Aðrir hafa misst vinnuna vegna skoðana sinna Þorvaldur Gylfason skrifar Kjallari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.