Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 25
Helgarblað 18.–21. júlí 2014 Umræða 25 Við þurfum að hætta að vera meðvirk með veðrinu Þeir ætla sér örugg- lega ekkert að gera Ég held að framsóknarmenn séu almennt hógværir Jónína Ben var ekki ánægð með leik Argentínu og Hollands á HM. – Facebook Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur ræðir um áhrif veðurs á andlega líðan. – DV Jóhanna Bergmann geitabóndi ræðir um framtíð íslenska geitastofnsins. – DV Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er ánægður með árangur ríkisstjórnar sinnar. – DV V íst má fullyrða, að vonin sé vítamín sálarinnar og eins má okkur ljóst vera að bið- lundin sé birta hjartans. Maður þarf reyndar ekki mikið hug- myndaflug til að sjá þessar líkingar verða að veruleika. En einn var sá maður sem hafði miklar væntingar til lífsins og eins þóttist hann sjá í fari sínu eitthvað sem líktist bið- lund. Væntingarnar reisti hann þó á öllu öðru en sinni eigin atorku og biðlundina fékk hann að láni hjá samferðafólki sínu. Maður sá, sem hér kemur við sögu, var borinn og barnfæddur Ís- lendingur. Hann var einn af þessum mönnum sem mála skrattann á þann vegg sem þeir tilbiðja og hafa mestar mætur á. Hann var svona eðalsál sem treystir ekki þeim sem fletta ofan af spillingunni. Og hann var helst í liði með þeim sem þykja lausir við allt sem kallast siðvit eða siðfágun. Það var eitt í fari þessa manns sem var afar áberandi; hann ætlaði sér að verða ríkur. Hann hafði sagt við sjálfan sig oftar en hann gat talið, að einn góð- an veðurdag, ætlaði hann að verða auðugur, að hann ætlaði að vera sáttur við alla menn. Hann ætlaði að láta drauma sína rætast, hann ætlaði að leyfa von sinni að vaxa og dafna og það eina sem hann lagði í púkkið, var von og veðsett biðlund. Ósjaldan átti hann það til að segja sem svo: -Þegar ég verð ríkur, þá ætla ég að gefa henni frænku minni nýjan bíl, svona til að bæta fyrir þann sem ég klessti. Þegar ég verð ríkur, ætla ég að greiða allar mínar skuldir og ég ætla meira að segja að bæta öllu fólki allt það tjón sem ég hef unnið. Hann tók svona til orða, þar eð hann var síður en svo fingrastuttur og eins var um hann sagt að hann færi sparlega með sannleika og góðvild. En von í dulbúningi lof- orða átti hann á gnægtaborði drau- manna. Og þessi von feykti hon- um yfir farveg daganna. Örlátur á ósannindi og gjafmildur á loforð einsetti hann sér það eitt að verða ríkur. Og loforð hans voru svo ná- kvæmlega skipulögð, að hann hafði vissa dagsetningu í huga fyr- ir hið væntanlega ríkidæmi. Hann vissi sem sagt nákvæma dagsetn- ingu þessa merka viðburðar. Hann sá daginn í hillingum, hann sá fyrir sér þær breytingar sem peningarn- ir myndu hafa til batnaðar; hvern- ig sjálfsmynd hans myndi taka á sig nýjan og ferskan blæ vellystinga og ríkidæmis, hvernig fasið yrði fullt af öryggi og hvernig hann gæti látið gusta af sér þegar hann strunsaði um bæinn. Hann myndi verða laus við sjálfsblekkingu og aumingjaleik. Hann yrði öryggið uppmálað. Þann dag ætlaði hann sjálfur að dæma. Hann ætlaði að sýna sitt rétta andlit. Hann beið og hann beið. Svo gerðist það að hin tiltekna dagsetn- ing varð að veruleika. En sjálfur dagurinn kom þó ekki. Flestir dagar færa ást því fólki sem ég þekki, aðrir vart í sorta sjást og sumir koma ekki. Dagurinn sem aldrei kom Kristján Hreinsson Skáldið skrifar E ins ógeðfelldir og mér fundust fyrirhugaðir hreppaflutningar sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis á fólki á milli landshluta þá hugn- ast mér ekki frekar sú aðferðafræði stjórnvalda að flytja stofnanir eins og Fiskistofu fyrirvaralaust með manni og mús á milli landshluta. Hvort tveggja eru þetta ruddaleg vinnu- brögð sem ekki eiga að viðgangast og lýsa vanvirðingu gagnvart starfsfólki og fjölskyldum þeirra. Aðkoma Alþingis var engin að málinu og engar fjárheimildir lágu fyrir vegna kostnaðar af fyrirhuguð- um flutningi. Þetta er óvönduð stjórn- sýsla og setur svartan blett á það að- kallandi verkefni að fjölga opinberum störfum utan höfuðborgarsvæðisins í réttlátara hlutfalli en nú er. Ég tel það vera mjög brýnt verk- efni að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni, ekki bara á þéttbýl- ustu stöðunum heldur ekki síður í fá- mennari byggðum þar sem því verður við komið að vinna verkefni. Reynslan af staðsetningu opinberra starfa út um land hefur fyrir löngu sýnt fram á það að standast kröfur sem gerðar eru til faglegra vinnubragða. Gott vinnu- umhverfi og traust vinnuafl er þar líka til staðar. Umfang hins opinbera hefur vax- ið mjög á undanförnum 20 til 30 árum og fjölgun opinberra starfa hefur fyrst og fremst orðið á höfuðborgarsvæð- inu þótt tekist hafi að staðsetja nokkr- ar opinberar stofnanir úti á landi á liðnum árum. Þrátt fyrir það er það eilíf barátta að halda þeim störfum áfram í heimabyggð. Það þekkja all- ir landsbyggðarþingmenn í gegn- um tíðina þá baráttu sem er við hver fjárlög að verja starfsemi á lands- byggðinni þar sem um er að ræða fá stöðugildi sem mega ekki við neinum niðurskurði. Það hefur verið sýnt fram á það í rannsóknum að mikið misræmi er í opinberum útgjöldum og skatt- heimtu eftir landsvæðum. Það hefur eflaust ekki verið markmið í sjálfu sér en landsbyggðin hefur beðið skaða af því en höfuðborgarsvæðið hefur not- ið þess. Færð hafa verið rök fyrir því að við- skipti landsbyggðarinnar á höfuð- borgarsvæðinu séu hlutfallslega meiri en viðskipti höfuðborgarsvæðisins á landsbyggðinni. Í þessu samhengi er eðlilegt að líta til frekari flutnings opin berra starfa út á land til að jafna það efnahagslega misræmi sem er staðreynd og hið opinbera ber líka ábyrgð á með stjórnvaldsákvörðun- um sínum í gegnum tíðina. Stjórnvöld verða að vinna eftir skýrt markaðri stefnu í flutningi opin- berra starfa út á land og að þar sam- ræmi ráðuneyti og opinberar stofn- anir vinnu sína og gangi í takt. Kynna verður með eðlilegum fyrirvara flutn- ing á starfsemi ríkisins á milli land- svæða og gæta vel að mannlega þættinum og réttindum þeirra starfs- manna sem hlut eiga að máli og líta sérstaklega til nýrra verkefna og starfa sem verða til hjá hinu opinbera. Að sjálfsögðu á að tryggja aðkomu Al- þingis að þeirri stefnumótunarvinnu og að fjárlögin endurspegli þann vilja. Allur undirbúningur þarf að vera vandaður og landið kortlagt hvar störfum, verkefnum og starfsemi er best fyrir komið og þá tel ég að ekki síst eigi að horfa til þeirra svæða sem átt hafa undir högg að sækja undan- farin ár og þurfa virkilega á fjölbreytni að halda og þar eru góðar háhraða- tengingar lykilatriði. Það má nefna verkefni sem flust hafa til landsbyggðarinnar í gegn- um árin og vel hefur tekist til með eins og Byggðastofnun á Sauðárkróki, Skógræktina á Héraði, Greiðslu- stofu Atvinnuleysistryggingasjóðs á Skagaströnd og Skrifstofu Fæðingar- orlofssjóðs á Hvammstanga. En ég get líka nefnt dæmi um verkefni hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga sem sett var niður á Flateyri en gekk ekki upp vegna lélegra háhraðatenginga og var færð yfir á Ísafjörð. Það er ekki neitt einsdæmi að skortur á öflug- um gagnaflutningi á landsbyggðinni hamli atvinnuuppbyggingu. Því miður hafa opinberar stofnanir eins og Fiskistofa t.d. verið að hringla með störf í útibúum sínum úti á landi í skjóli breytinga sem orðið hef- ur til þess að faglært fólk hefur hrak- ist í burtu. Starfstöð Fiskistofu á Ísa- firði hefur verið lokuð frá áramótum en veiðieftirliti stofnunarinnar hafði verið hætt og starfstöð fiskeldis kom- ið í staðinn en henni var lokað um áramótin og engin starfsemi er þar í gangi nú og óvissa um framhaldið. Þetta er dæmi um hve auðvelt er fyrir pólitíkusa og stjórnvöld að skella í lás þegar um litlar starfstöðvar er að ræða og dæmi um óvönduð vinnubrögð. Það á ekki að kynda undir eldum milli landsbyggðar og höfuðborgar- svæðisins með óvönduðum vinnu- brögðum við flutning starfa og starf- semi út á land heldur vanda vel til verka og sýna það líka í fjárlögum að menn vilji efla opinbera starf- semi út um land en síðustu fjárlög báru þess ekki merki þar sem gífur- legur niðurskurður var í mörgum verkefnum á landsbyggðinni eins og Sóknaráætlun landshlutanna er gleggsta dæmið um. Landsbyggðin þarf á fjölbreyttari atvinnutækifærum að halda og það eru sameiginlegir hagsmunir allra landsmanna að vel takist til með flutn- ing opinberra starfa og uppbyggingu atvinnustarfsemi á landsbyggðinni því hún er jú einn stærsti viðskipta- vinur höfuðborgarsvæðisins. n Flutningur fólks eða starfa? Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður VG Kjallari Mest lesið á DV.is 1 „Við viljum bara fá hann heim“ „Það eina sem við erum að hugsa um núna er að koma barninu okkar heim,“ sögðu systkini Andra Freys Sveinssonar, unga piltsins sem lést í skelfilegu slysi í rússíbana í Terra Mítica- skemmtigarðinum á Benidorm á Spáni hinn 7. júlí síðastliðinn 48.975 hafa lesið 2 Selur átján ára dóttur Range Rover Fyrr á þessu ári seldi Steinþór Jónsson, athafnamaður og fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjanesbæ, dóttur sinni, sem er á nítjánda ári, Range Rover-bíl með einkanúmerinu STEINI. Þrátt fyrir það er skráður umráðandi bílsins enn fyrirtæki í eigu Steinþórs, Hótel Keflavík. 40.832 hafa lesið 3 „Hann var einn af þeim flottustu“ „Hann var svo hlýr og ljúfur,“ segir Harpa Bryndís Brynjarsdóttir, móðir Andra Freys Sveinssonar, unga piltsins sem lést í slysi í rússíbana í Terra Mítica-skemmti- garðinum á Benidorm á Spáni hinn 7. júlí síðastliðinn. 33.567 hafa lesið 4 Níu ára stúlka lést eftir að hafa sýkst af heila­ étandi slímdýri Heilbrigðisyfirvöld í Kansas-borg í Bandaríkjunum hafa staðfest að banamein níu ára stúlku sem lést í síðustu viku hafi verið heila- étandi slímdýr, sem komst frá nösum hennar og upp í heila. 30.800 hafa lesið 5 Birtir símtal við þing­mann: „Ætla ekki að sitja undir atvinnurógi“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðis flokksins, fullyrðir í athugasemdakerfi DV að frétt Reykja- víkur Vikublaðs gefi ranga mynd af samtali sem hann átti við blaðamann í síðustu viku. Í kjölfarið hefur blaðamað- urinn, Atli Þór Fanndal, birt hljóðupp- töku af símtalinu á netinu. 30.767 hafa lesið Myndin Framkvæmdir Á Káratorgi í miðbæ Reykjavíkur eru framkvæmdir á vegum verkefnisins Torg í biðstöðu sem gengur út á að lífvæða biðsvæði með tímabundnum lausnum. Biðsvæði er svæði þar sem ríkir óvissa um framtíðarnotkun og möguleikar svæðisins eru vannýttir. MynD HöRðuR SveinSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.