Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 18.–21. júlí 201428 Fólk Viðtal
K
arl ætlaði sér aldrei að taka
þátt í pólitík. Í nóvember
2012 fékk hann hins vegar
símtal frá gömlum vini, þá-
og núverandi þingmanni
Framsóknarflokksins, sem hvatti
hann til að taka slaginn. Karl sló til og
hlaut skömmu síðar náð fyrir augum
valnefndar; var settur í annað sæti
í Reykjavíkurkjördæmi suður. Það
sæti var ekkert sérstaklega álitlegt
á þeim tíma. Svo svartar voru horf-
ur Framsóknar í Reykjavík að sjálfur
formaður flokksins flúði kjördæmið
og settist að á bóndabæ.
Síðan féll Icesave-dómurinn og
bóndanum á Hrafnabjörgum – Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni – var
fagnað sem þjóðhetju. Fylgi flokks-
ins jókst í skoðanakönnunum og hag-
ur Karls vænkaðist. Samkvæmt þeim
tölum var Karl inni sem varaþing-
maður og undi þeirri stöðu vel að eig-
in sögn. Eftir að flokkurinn lofaði að
skjóta erlenda hrægamma og færa
þjóðinni fjársjóð þeirra fór fylgið aftur
á móti með himinhvolfum og líf Karls
breyttist til frambúðar. Í dag er hann
ekki fréttastjóri og fjölskyldumað-
ur heldur einhleypur alþingismaður
og einstæður faðir. Hann samþykkir
að hitta mig í spánnýrri kjallaraíbúð
sinni í Kópavogi, þar sem hann býr
ásamt syni sínum.
Áður en viðtalið hefst fær ljós-
myndarinn að smella nokkrum
myndum af þingmanninum, sem
er greinilega óvanur módelstörfum.
„Hvernig á ég eiginlega að vera?“ spyr
hann um leið og hann lagar hárið
lítið eitt. Ljósmyndari svarar að það
fari eiginlega eftir því hvað hann segi;
hvort gleði eða harmur búi í brjósti
hans. „Ég hef enga harmsögu að segja
þér,“ segir Karl og kímir. „Brostu þá
bara.
Framsóknargen
Að myndatöku lokinni sest fyrirsætan
í stól gegnt blaðamanni, sem sjálfur
tyllir sér í sófann. Báðir drekka þeir
instant-kaffi. Þetta er pínulítil stofa
sem inniheldur ekkert nema nefnd-
ar mublur, lítið og lágt sófaborð og
flatskjá. Svo steríl er stofan að það
mætti halda að Karl hafi keypt sýn-
ingarherbergi úr Ikea í heilu lagi og
plantað í íbúðina. Hún rímar ágæt-
lega við instant-kaffið sem aftur rím-
ar við þetta nýbyggða blokkahverfi í
heild sinni sem gæti verið geimstöð.
Ég nefni þessar hugleiðingar ekki við
Karl heldur spyr hann frekar hvers
vegna hann sé í Framsóknarflokkn-
um. Hann minnist á nefnt símtal
vinar síns þingmannsins, sem hann
vill ekki nafngreina, og bætir svo við:
„Ég kem af gömlum Framsóknarætt-
um; afabróðir minn var Skúli Guð-
mundsson, ráðherra og þingmað-
ur flokksins. Þannig að ég hef þessi
Framsóknargen. Eftir að hafa fund-
að með helstu ráðamönnum flokks-
ins um helstu stefnumál og framtíð-
ina þá ákvað ég að taka þennan slag.
Ég hafði aldrei verið skráður í flokk
áður, aldrei verið í pólitík áður. Það
var reyndar með vilja gert líka. Ég var
auðvitað blaðamaður í 25 ár; blaða-
menn eiga helst ekki að vera tengd-
ir flokkspólitík enda hafa slík tengsl
óhjákvæmilega áhrif á þeirra skrif. Og
ég held að á ferli mínum sem blaða-
maður hafi ég haft það orð á mér að
vera ópólitískur, fólk vissi almennt
ekki hvar ég stóð í stjórnmálum.“
Skepnur á Bylgjunni
Karl er fæddur og uppalinn í Kópa-
vogi, gekk í menntaskólann þar í bæ,
fór í bókmenntafræði í Háskóla Ís-
lands og lauk loks mastersprófi í fjöl-
miðlafræði frá Minnesota-háskóla,
með áherslu á útvarp og sjónvarp.
Það var einmitt á þeim vettvangi sem
Karl haslaði sér völl að loknu námi.
„Ég kom heim úr námi frá Banda-
ríkjunum 1986 þegar fyrsta frjálsa út-
varpsstöðin var að fara af stað hérna á
Karl Garðarsson hafði verið með sömu
konunni og í sömu vinnunni í rúmlega tuttugu ár. Á
stuttu tímabili missti hann hvort tveggja og þurfti að
hefja nýtt líf. Það fannst honum erfitt, en þegar einar
dyr lokast – jafnvel tvennar – þá opnast gjarnan
aðrar og óvæntar.
Nýtt líf Karls
„Við eigum
að leyfa
þjóðinni að
segja álit sitt
á því hvort við
höldum áfram
með þessar
viðræður
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
„Ég var nú
orðinn
rúmlega
fimmtugur og
ekki seinna
vænna að fara
að byrja nýtt líf