Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Page 34
Helgarblað 18.–21. júlí 201434 Neytendur Brauðið kemur frosið frá Belgíu n 1.800 tonn af frosnu brauðmeti flutt inn á rúmu ári n Bakarameistari hefur áhyggjur af þróuninni V axandi hluti brauðs og bakkelsis, sem meðal annars er selt í lágvöru­ verðsverslunum og bensín­ stöðvum hér á landi, er framleitt í útlöndum. Jón Albert Kristinsson, formaður Landssam­ bands bakarameistara, segir þessa þróun ala á einsleitni í stað fjöl­ breytni. Stórir hveitiframleiðendur í Austur­ og Vestur­Evrópulöndum hafi sett upp verksmiðjubakarí sam­ hliða hveitiframleiðslunni og selja svo bakarísvörurnar um allan heim. „Hvort sem þú kemur inn á hótel í Jóhannesarborg eða í Reykjavík – þú færð alls staðar „sama“ rúnnstykkið með morgunmatnum,“ segir Jón Al­ bert. Fækkun í faginu Í frétt sem birtist í Bændablaðinu í byrjun mánaðar kom fram að 1.800 tonn af frosnu deigi og brauði hafi verið flutt inn til landsins á 14 mánaða tímabili, frá mars árið 2013 til loka apríl á þessu ári. Það gerir meira en hundrað tonn á mánuði. Jón Albert segir bakarameistara ekki geta keppt við þennan innflutning, að minnsta kosti ekki á jafnræðisgrund­ velli. Fækkun hafi orðið í faginu, enda þurfi ekki faglærðan bakara til þess að skella hálfbökuðum, frosnum brauð­ um inn í ofn. „Þetta horfir við okk­ ur sem alveg gífurleg samkeppni að utan. Að sjálfsögðu erum við hlynnt­ ir því að samkeppni ríki á þessum markaði en það hallar svolítið á okk­ ur, sérstaklega hvað varðar markaðs­ verð sem er hærra hjá okkur en hjá þessum stóru fyrirtækjum. Við reyn­ um bara að gera okkar besta, vanda handverkið og búa til góða vöru. Það er okkar mottó.“ Krónubrauðið frá Belgíu Krónan er meðal verslana sem selja nýbakað brauð og bakkelsi sem keypt er hálfbakað og frosið. Sig­ urður Gunnar Markússon, fram­ kvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Krónunni, segist sjálfur flytja inn stóran hluta þess hingað til lands, aðallega frá Belgíu. Þá sé hluti brauðmetis, sem bakað er í Krón­ unni, keyptur frá Myllunni. „Eitt­ hvað af því sem kemur frá Myllunni er innflutt en eitthvað búa þeir til sjálfir,“ segir Sigurður Gunnar en get­ ur ekki gefið upp nákvæmlega hvaða vörutegundir eru innfluttar og hverj­ ar eru framleiddar hér á landi. Þess má geta að um þrjátíu mismunandi vörutegundir fást nýbakaðar í versl­ unum Krónunnar. Sigurður segist ekki merkja aukn­ ingu í innflutningi á frosnu brauð­ meti hjá Krónunni síðustu ár en sem hlutfall af heildarbrauðsölu í Krónunni sé þetta tiltölulega létt­ vægt. „Ég sel miklu meira af annarri vöru sem kemur beint frá íslenskum bakar íum. Þá er ég að tala um heim­ ilisbrauð, kökur, flatkökur og margt annað,“ segir Sigurður. Neytendur afgreiða sig sjálfir Eitt af því sem Jón Albert gagnrýnir er aðgengi neytenda að brauði og bakkelsi í stórmörkuðum. Viðskipta­ vinir afgreiði sig gjarnan sjálfir og geti gengið að vörunni óáreittir. „Við­ skiptavinir tína vöruna sjálfir í poka úr opnum rekkum og henda jafn­ vel til baka. Enginn er til staðar til að fylgjast með hvort fólk fari með hendurnar í brauðið eða til að fræða neytendur um innihald eða uppruna vörunnar. Í bakaríunum höfum við afgreiðslufólk sem þekkir innihald vörunnar og getur frætt neytendur um það,“ segir Jón Albert. Varðandi aðgengi neytenda að vörunum segir Sigurður Gunnar það ekki einskorðast við brauðmeti, heldur megi segja það sama um ávexti og ýmsar aðrar vörur. „Þetta er allt í lokuðum boxum hjá okkur, nema baguette­brauðin sem eru í sér poka sem er opinn að ofan. Þarna er unnið í samráði við heilbrigðiseftirlit sem er meira að segja strangara hér á landi en víða í Evrópu,“ segir hann. Hvað varðar innihaldslýsingar segir Sigurður Gunnar þær að sjálfsögðu vera til staðar. „Þær eru ekki á vör­ unni sjálfri því hún er í lausu,“ segir hann. „En þar sem þetta er verð­ merkt er á miðanum tegundarheiti, verð og innihaldslýsing.“ Engar upprunamerkingar Töluvert hefur verið rætt um upp­ runamerkingar á vörum hér á landi að undanförnu, sér í lagi í tengslum við innflutt nautakjöt. Í reglugerð frá árinu 2005 um merkingu mat­ væla segir meðal annars um vör­ ur í lausasölu að skylt sé að merkja matvæli með upplýsingum um upp­ runa eða framleiðsluland ef skortur á slíkum upplýsingum gæti villt um fyrir neytendum hvað varðar réttan uppruna matvælanna. Aðspurður hvort nýbakað brauð í Krónunni sé merkt upprunalandi segir Sigurður Gunnar að svo sé ekki. „Við höfum unnið með heilbrigðiseftirliti við að finna út hvernig hentugast sé að selja og merkja þessar vörur og höf­ um ekki fengið ábendingu um upp­ runa, en að sjálfsögðu í framhaldi af þessari umræðu munum við einfald­ lega taka það upp að hafa merkingar um upprunaland,“ segir Sigurður Gunnar. Innfluttar vörur í bakaríum Eftirminnilegt er þegar Fréttablaðið vakti athygli á því árið 2008 að hluti af því bakkelsi sem selt er í bakarí­ um Bakarameistarans væri erlend vara. Kleinuhringir, pekan­vínar­ brauð, Berlínarbollur og smjörhorn (croissant) væru innflutt frosin og síðan þídd og bökuð í bakaríun­ um. Jón Albert segir þetta þó sáralít­ inn hluta af þeim vörum sem seld­ ar eru í bakaríum. „Sölumennirnir sem selja innfluttar frosnar vörur til verslananna koma auðvitað í bak­ aríin líka og reyna að selja þær þar. Einn og einn freistast kannski til að prufa,“ segir Jón Albert. Sjálfur seg­ ist hann aðeins selja innflutta frosna kleinuhringi (donuts) í sínu bakaríi en hann á og rekur Björnsbakarí. „Mín skoðun er sú að bakarar eigi ekki að grípa til þess að selja fleiri innfluttar vörur í von um að ráða betur við samkeppnina. Við eig­ um að vera betri en þeir. Kúnnarnir munu kunna að meta það og koma þá frekar til okkar.“ n Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is Hefur áhyggjur af þróuninni Jón Albert Kristinsson, formaður Landssambands bak- arameistara, segir þróunina valda einsleitni á markaði. MyNd Hörður SvEINSSoN Keypt hálfbakað og frosið að utan „Í framhaldi af þessari umræðu munum við einfaldlega taka það upp að hafa merkingar um upprunaland,“ segir Sigurður Gunnar Markússon, framkvæmdastjóri inn- kaupasviðs hjá Krónunni. MyNd Hörður SvEINSSoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.