Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 38
Helgarblað 18.–21. júlí 201438 Lífsstíll Jón Gnarr skemmtileGastur n Álitsgjafar DV völdu skemmtilegasta Íslendinginn n Töldu marga koma til greina Skemmtilegheit – gamansemi – afþreying. Öll þurfum við á þessu að halda. DV leitaði til markverðra álitsgjafa í leit að skemmtilegasta núlif- andi Íslendingnum. Hinn sívinsæli Jón Gnarr varð ótvíræður sigurvegari. Fáir komust með tærnar þar sem hann hafði hælana en mjóu munaði þó á þeim sem eftir hann komu. Skemmst er að minnast að Jón Gnarr varð í síðustu viku í öðru sæti yfir þá sem flestir vilja sjá sem næsta forseta Íslands. Vinsældir Jóns virðast þannig engan enda taka. salka@dv.is 1 Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri og grínisti n „Ótrúlega skrítinn og skemmtilegur karakter, kemur alltaf hlutunum frá sér á skemmtilegan hátt og fær mann alltaf til að brosa þó að skoðanir hans höfði ekki til allra.“ n „Jón Gnarr er fyndnasti núlifandi Íslendingurinn. Tvíhöfði, Fóstbræður, Vaktaseríurnar og síðast en ekki sýst Gnarrenburg eru allt tímamótaþættir sem hafa mótað íslenskt grín til frambúðar. Honum tókst líka að gera borgarpólitíkina örlítið skemmti- lega sem hlýtur að teljast kraftaverk.“ n „Hann er fyndinn og ævintýragjarn án þess að vera yfirborðskenndur. Hann leiðir þjóðina í póli- tískri og samfélagslegri ævintýramennsku sinni. Maður getur varla slitið sig frá umfjöllunum um uppátæki hans.“ n „Hann kemur endalaust á óvart og er mjög frjór í hugsun.“ Bragi Valdimar Skúlason tónlistarmaður „Bragi hefur betra vald á íslenskri tungu en flestir og textarnir hans eru án undan- tekningar hnyttnir og skemmti- legir. Á vefsíðu þeirra Baggalútsmanna tekst honum oft að fanga fáránleika íslensks samfélags með einni mynd og stuttum texta. Hann er auk þess mjög spaugilega vaxinn.“ Sigríður Klingenberg spákona „Sigga Kling án efa, skemmtileg og hress, kemur til dyranna eins og hún er klædd og ótrúleg viska sem leynist í hausnum á henni sem hún hefur náð að skila frá sér á skemmti- legan hátt í bókunum sínum.“ Saga Garðars- dóttir uppistandari „Mér finnst hún fyndin en líka beitt. Hún er ein af þeim fáu konum sem ná að vera uppi- standarar og lifa það af. Hún er líka góð fyrirmynd.“ Katrín Oddsdóttir lögmaður „Katrín Oddsdóttir lög- maður er skemmti- legasti Íslendingur- inn sem ég þekki. Þar fer saman afar ríkulegt ímyndunar- afl og miklar gáfur." Pétur Jóhann Sigfússon sjónvarpsmaður „Hann er gargandi snilld. Allt sem hann gerir gleður mann.“ Þorsteinn Guðmundsson leikari „Nú þekki ég ekki Þorstein persónulega en miðað við það hvað hann er ótrúlega fyndinn þá hlýtur hann að vera skemmtilegur.“ Egill Einarsson einkaþjálfari „Gillz er bara hann sjálfur og það virkar. Allir apa eftir honum allt sem hann segir, verður heims- frægur, það er bara svoleiðis.“ Bergur Ebbi Benediktsson uppistandari „Gáfumannagrín hans er næst- um því óþolandi því það er alltaf svo „spot on“.“ Snorri Helgason tónlistarmaður „Manni líður alltaf eins og maður sé staddur í góðri buddy-grínmynd þegar maður er í kringum Snorra.“ Hildur Eir Bolladóttir prestur „Hildur Eir Bolladóttir, sóknar- prestur í Akureyrarkirkju og „skemmtikraftur“, er mjög skemmtileg kona en hún er mjög næm á umhverfið og sér oft spaugilegu hliðarnar á mannlífinu og sjálfri sér.“ Þessi voru einnig nefnd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.