Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Qupperneq 38
Helgarblað 18.–21. júlí 201438 Lífsstíll
Jón Gnarr skemmtileGastur
n Álitsgjafar DV völdu skemmtilegasta Íslendinginn n Töldu marga koma til greina
Skemmtilegheit –
gamansemi – afþreying.
Öll þurfum við á þessu
að halda. DV leitaði til
markverðra álitsgjafa í leit
að skemmtilegasta núlif-
andi Íslendingnum. Hinn
sívinsæli Jón Gnarr varð
ótvíræður sigurvegari. Fáir
komust með tærnar þar
sem hann hafði hælana
en mjóu munaði þó á þeim
sem eftir hann komu.
Skemmst er að minnast
að Jón Gnarr varð í síðustu
viku í öðru sæti yfir þá sem
flestir vilja sjá sem næsta
forseta Íslands. Vinsældir
Jóns virðast þannig engan
enda taka. salka@dv.is
1 Jón Gnarr
fyrrverandi borgarstjóri og grínisti
n „Ótrúlega skrítinn og skemmtilegur karakter,
kemur alltaf hlutunum frá sér á skemmtilegan hátt
og fær mann alltaf til að brosa þó að skoðanir hans
höfði ekki til allra.“
n „Jón Gnarr er fyndnasti núlifandi Íslendingurinn.
Tvíhöfði, Fóstbræður, Vaktaseríurnar og síðast en
ekki sýst Gnarrenburg eru allt tímamótaþættir sem
hafa mótað íslenskt grín til frambúðar. Honum
tókst líka að gera borgarpólitíkina örlítið skemmti-
lega sem hlýtur að teljast kraftaverk.“
n „Hann er fyndinn og ævintýragjarn án þess að
vera yfirborðskenndur. Hann leiðir þjóðina í póli-
tískri og samfélagslegri ævintýramennsku sinni.
Maður getur varla slitið sig frá umfjöllunum um
uppátæki hans.“
n „Hann kemur endalaust á óvart og er mjög frjór
í hugsun.“
Bragi Valdimar
Skúlason
tónlistarmaður
„Bragi hefur betra vald á
íslenskri tungu en flestir og
textarnir hans eru án undan-
tekningar hnyttnir og skemmti-
legir. Á vefsíðu þeirra Baggalútsmanna
tekst honum oft að fanga fáránleika
íslensks samfélags með einni mynd og stuttum texta.
Hann er auk þess mjög spaugilega vaxinn.“
Sigríður Klingenberg
spákona
„Sigga Kling án efa, skemmtileg
og hress, kemur til dyranna eins og
hún er klædd og ótrúleg viska sem
leynist í hausnum á henni sem hún
hefur náð að skila frá sér á skemmti-
legan hátt í bókunum sínum.“
Saga Garðars-
dóttir
uppistandari
„Mér finnst hún fyndin
en líka beitt. Hún er
ein af þeim fáu konum
sem ná að vera uppi-
standarar og lifa það af.
Hún er líka góð fyrirmynd.“
Katrín Oddsdóttir
lögmaður
„Katrín Oddsdóttir lög-
maður er skemmti-
legasti Íslendingur-
inn sem ég þekki.
Þar fer saman afar
ríkulegt ímyndunar-
afl og miklar gáfur."
Pétur Jóhann
Sigfússon
sjónvarpsmaður
„Hann er gargandi snilld. Allt
sem hann gerir gleður mann.“
Þorsteinn
Guðmundsson
leikari
„Nú þekki ég ekki Þorstein
persónulega en miðað við það hvað
hann er ótrúlega fyndinn þá hlýtur
hann að vera skemmtilegur.“
Egill Einarsson
einkaþjálfari
„Gillz er bara hann sjálfur og það
virkar. Allir apa eftir honum allt
sem hann segir, verður heims-
frægur, það er bara svoleiðis.“
Bergur Ebbi
Benediktsson
uppistandari
„Gáfumannagrín hans er næst-
um því óþolandi því það er alltaf
svo „spot on“.“
Snorri Helgason
tónlistarmaður
„Manni líður alltaf eins og
maður sé staddur í góðri
buddy-grínmynd þegar
maður er í kringum
Snorra.“
Hildur Eir
Bolladóttir
prestur
„Hildur Eir Bolladóttir, sóknar-
prestur í Akureyrarkirkju og
„skemmtikraftur“, er mjög
skemmtileg kona en hún
er mjög næm á umhverfið
og sér oft spaugilegu
hliðarnar á mannlífinu og
sjálfri sér.“
Þessi voru einnig nefnd