Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Qupperneq 42
Helgarblað 18.–21. júlí 201442 Sport
Krísan á
Englandi
n Úrvalsdeildin sögð hafa eyðilagt enska
knattspyrnu n Ungir enskir leikmenn fá ekki séns
B
reskir fjölmiðlar velta því
nú fyrir sér hvort slælegt
gengi enska landsliðsins
í knattspyrnu sé fórnar-
kostnaðurinn af því að gera
ensku deildina eina þá skemmtileg-
ustu í heimi, með taumlausri inn-
reið útlendinga. Enskir knattspyrnu-
menn í heimsklassa verða sífellt
fágætari og verðmiðinn á efnileg-
um enskum leikmönnum er kominn
upp úr öllu valdi. Því til stuðnings
má nefna kaup Manchester United
á varnarmanninum Luke Shaw fyrir
30 milljónir punda. Til samanburð-
ar keypti Chelsea Cesc Fabregas á 27
milljónir punda.
Fá ekki sénsinn
Þetta leiðir af sér að liðin horfa í
síauknum mæli til annarra landa
þegar þau leita að nýjum leik-
mönnum, sem ýtir enn undir það
að Englendingarnir komist ekki að.
Bestu liðin hafa enga þolinmæði til að
gefa ungum, óreyndum leikmönnum
úr akademíu liðsins séns. Þess vegna
verða þeir ekki góðir. Þeir fáu sem
verða góðir koma úr minni félögum
– og eru keyptir þaðan á unglingsár-
unum. Yfirleitt verður það hlutskipti
þeirra að spila með varaliðum félag-
anna, þar til þeir eru lánaðir annað
eða leystir undan samningi.
Bestu ensku leikmennirnir eru
heldur ekki lengur lykilmenn í bestu
liðunum á Englandi. Það kristallaðist
í Brasilíu; enska liðið hafði ekki burði
til að komast í 16 liða úrslit. Eitt stig
úr þremur leikjum varð niðurstað-
an. Önnur 92-kynslóð, sem hélt uppi
spilamennsku Manchester United
svo árum skipti, er ekki sjáanleg.
Grátlega fáir leikmenn
Daily Mail fjallar um þetta á vef-
síðu sinni. Hér fyrir neðan er
greining þeirra á því hvaða leik-
menn úr nokkrum af toppliðunum
í Englandi hafa komið upp úr ung-
lingaakademíum félaganna. Hér
er aðeins horft til þeirra leikmanna
sem hafa spilað fimm leiki eða
fleiri fyrir félögin í úrvalsdeildinni,
frá stofnun ensku Úrvalsdeildar-
innar árið 1992. Þeir sem spiluðu
sína fyrstu leiki fyrir þann tíma eru
ekki taldir upp – enda varpar mið-
illinn þeirri spurningu hvort stofn-
un úrvalsdeildarinnar, það ár, hafi
eyðilagt enska knattspyrnu. Það
verður að segjast að á þessum 22
árum eru þeir grátlega fáir. Mark-
verðir (þá sjaldan það á við) og
varnarmenn eru taldir upp fyrst,
þá miðjumenn og loks sóknar-
menn. n
Baldur Guðmundsson
Einar Þór Sigurðsson
baldur@dv.is / einar@dv.is Southampton
Tímabil í úrvalsdeild: 15 Uppaldir leikmenn: 17
n Luke Shaw, James Ward-Prowse og Calum Chambers spiluðu allir mikið fyrir
félagið á liðinni leiktíð, en þeir eru uppaldir hjá félaginu. Shaw kom við sögu fyrir hönd
Englands á HM um daginn og er genginn til liðs við Manchester United, fyrir 30 milljónir
punda. Adam Lallana, sem stóð sig frábærlega á síðustu leiktíð gekk til liðs við
Southampton 12 ára gamall frá Bournmouth, og spilaði meira en 200 leiki fyrir félagið.
Þess má geta að Bournmouth fékk 25 prósent söluandvirðisins þegar hann gekk í raðir
Liverpool á dögunum. Fall Southampton úr úrvalsdeildinni 2005 varð til þess að ungir
leikmenn fengu tækifæri – og það hefur sannarlega hjálpað félaginu. Southampton á
að baki 15 leiktíðir í ensku úrvalsdeildinni og félagið hefur komið allnokkrum leikmönn-
um til manns; eða 17 talsins. Þeirra á meðal eru Arsenal-leikmennirnir og landsliðs-
mennirnir Theo Walcott og Alex Oclade-Chamberlain. Annar leikmaður sem kveðið
hefur að er Nathan Dayer, útherjinn sem spilað hefur meira en 80 leiki fyrir Swansea.
Byrjunarlið:
Enginn markvörður
Calum Chambers (12- ) Martin Crainie (04-07) Wayne Bridge (98-03) Luke Shaw (12- )
James Ward-Prowse (11- ) Adam Lallana (06-14) Nathan Dyer (05-09)
Theo Walcott (05-06) Alex Oxlade-Chamberlain (10-11)
Steve Basham (96-99)
Arsenal
Tímabil í úrvalsdeild: 22 Uppaldir leikmenn: 14
n Allt frá því Arsene Wenger tók við Arsenal árið 1996 hafa
margir útlendingar spilað fyrir klúbbinn. Arsenal varð fyrsta fé-
lagið til að mæta með 16 manna hóp til leiks án þess að í hópn-
um væri einn Englendingur. Það gerðist gegn Crystal Palace í
febrúar 2005. Það þarf því kannski ekki að koma á óvart hversu
fáir enskir leikmenn hafa á þessum langa tíma komið upp úr
unglingaakademíu félagsins. Tony Adams, Paul Merson og Ray
Parlour höfðu allir spilað fyrir félagið áður en úrvalsdeildin var
stofnuð. Síðan þá hafa aðeins 14 uppaldir Englendingar náð fót-
festu í liðinu. Þeirra á meðal eru Jack Wilshere og Kieran Gibbs.
Ashley Cole er líklega besti varnarmaðurinn sem hefur komið úr
smiðju Arsenal hin síðari ár. Nokkrir leikmenn sem ólust upp hjá
Arsenal hafa náð fótfestu í ensku úrvalsdeildinni með öðrum
liðum; svo sem Steve Sidwell og David Bentley. Þá má nefna,
Wenger til varnar, að Theo Walcott og Alex Oxlade-Chamberla-
in komu báðir ungir til félagsins.
Byrjunarlið:
Stuart Taylor (97-05)
Justin Hoyte (02-08) Gavin McGowan (92-98) Matthew Rose
(94-97) Ashley Cole (98-06)
Emmanuel Frimpong (11-14)
Adrian Clarke (93-97) Jack Wilshere (08- ) Stephen Hughes
(95-00) Kieran Gibbs (07- )
Paul Shaw (91-97)
Everton
Tímabil í úrvalsdeild: 22 Uppaldir leikmenn: 24
n Everton hefur ávallt búið yfir öflugu unglingastarfi og hefur
fjárhagsstaða félagsins gert það að verkum að treysta hefur
þurft á akademíuna. Tony Hibbert, Leon Osman og Francis
Jeffers eru kunnugleg nöfn en þeir voru allir í liðinu sem vann
FA Cup unglingaliða árið 1998. Wayne Rooney kom upp úr
akademíunni árið 2002 og er hann sá leikmaður sem náð
hefur lengst af þeim 24 leikmönnum sem komið hafa upp úr
unglingastarfi félagsins. Sem kunnugt er var hann seldur fyrir
stórfé til Manchester United árið 2004. Ross Barkley er annar
leikmaður sem vert er að nefna en þessi stórefnilegi leikmaður
á bjarta framtíð fyrir höndum. Þá er Jack Rodwell alinn upp hjá
Everton en hann var seldur til Manchester City árið 2012 fyrir
15 milljónir punda. Þó að félagið hafi framleitt góða útispilara
á undanförnum árum hefur enginn markmaður úr unglinga-
starfinu leikið fimm leiki eða fleiri í úrvalsdeildinni.
Byrjunarlið:
Enginn markvörður
Tony Hibbert (00-) Peter Clarke (99-04) Neil Moore (92-97)
Michael Ball (96-01)
Jack Rodwell (07-12)
Gavin McCann (95-98) Leon Osman (00-)
Ross Barkley (10-)
Wayne Rooney (02-04) Francis Jeffers (97-01)
Manchester City
Tímabil í úrvalsdeild: 17 Uppaldir leikmenn: 14
n Eins og flestum er kunnugt hefur Manchester City tekið stakkaskiptum eftir að Sheik
Mansour keypti félagið árið 2008. Áður en hann tók við stjórnartaumunum hafði félagið verið
í mikilli lægð um margra ára skeið og flakkað á milli efstu og næstefstu deildar Englands. Áður
en Mansour keypti félagið voru ófáir uppaldir leikmenn á meðal lykilmanna þess. Má þar nefna
Michael Johnson og Joey Barton sem báðir eru að vísu löngu farnir frá félaginu. Michah Ric-
hards er í raun eini leikmaðurinn sem var hjá City fyrir yfirtökuna. Hann telst þó ekki uppalinn
því hann gekk í raðir City frá Oldham þegar hann var 14 ára. Oldham mun fá tuttugu prósent af
söluverðmætinu verði Richards á annað borð seldur. Daniel Sturridge er leikmaður sem margir
telja að hafa alist upp í herbúðum City. Hann var hins vegar keyptur frá Coventry árið 2003. Eins
og að ofan greinir eiga flestir þeir leikmenn sem skipa byrjunarliðið hér að neðan það sameigin-
legt að hafa spilað með félaginu áður en Sheik Mansour keypti félagið.
Byrjunarlið
Enginn markvörður
Richard Edghill (93-02) Nedum Onuoha (04-12) Rae Ingram (93-98) Stephen Jordan
(00-07
Shaun Wright Philips (99-05) Joey Barton (02-07) Michael Johnson (06-12) Lee Croft
(04-06)
Bradley Wright Philips (04-06) Ishmael Miller (05-08)