Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Side 54
Helgarblað 18.–21. júlí 201454 Fólk
Stolt af syninum
Stjörnuparið Logi Bergmann
sjónvarpsmaður og Svanhildur
Hólm, aðstoðarmaður fjármála-
ráðherra, er greinilega stolt af
syni sínum. „Sko drenginn minn.
Strax kominn á forsíðu!“ skrifar
Logi á Facebook-síðu sína þegar
birt var mynd af Val Hólm, syni
þeirra, í frétt á heimasíðu stéttar-
félaganna í Þingeyjarsýslum. Val-
ur starfar á nýju hóteli sem opn-
að var í Mývatnssveit í júní, Hótel
Laxá.
„Þetta er gaman að sjá! Valur
Hólm, sonur minn, forsíðudreng-
ur ásamt Braga vini sínum í um-
fjöllun um hið glæsilega Hótel
Laxá í Mývó,“ stendur undir deil-
ingu Svanhildar á fréttinni.
Manuela selur fötin sín
n Tískupíur með markað n Farin að skrifa um tísku
Þ
að kemur svona tímabil þar
sem maður er kominn með
ógeð á öllu í skápunum. Ég er
þar og er búin að taka vel til í
skápunum þannig að ég verð með
rosa mikið fínt sem ég ætla að losa
mig við,“ segir Manuela Ósk Harðar-
dóttir sem ætlar ásamt fleiri annál-
uðum tískupíum að halda markað á
sunnudaginn.
Það er vefsíðan Króm.is sem
stendur fyrir markaðnum en Manu-
ela hóf nýlega að skrifa tískupistla á
þá síðu.
Að hennar sögn verður fjölbreytt
úrval á markaðnum og ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
„Við erum svo margar saman og
allar svo ólíkar. Elfa frá Nike verður
til dæmis, þannig að það verður fullt
af íþróttadóti líka og svo ætla ein-
hverjar að vera líka með heimilisdót
þannig það verður alls konar í boði.
Síðan verða tískubloggararnir Þór-
unn Ívars og Alexsandra Bernharð
og förðunarfræðingurinn Steinunn
Edda svo einhverjar séu nefndar.
Þetta verður skemmtilegt og fjöl-
breytt,“ segir hún.
Manuela er nú í sumarfríi en byrj-
ar sitt annað ár í fatahönnun við
Listaháskóla Íslands í haust.
Nýlega hóf hún að skrifa pistla á
Króm.is og einbeitir sér þar að tísku.
„Ég er mjög spennt fyrir þessu og
held að það verði skemmtilegt að
skrifa þarna í vetur með skólan-
um,“ segir hún.
Markaðurinn verður á Smiðju-
vegi 11 á sunnudaginn og stendur frá
klukkan 12 til 17. n
viktoria@dv.is
Tæmir skápana Manuela er
búin að tæma fataskápana heima
hjá sér og ætlar að selja góssið á
markaði um helgina. Mynd IngrId KarIs
Garðar Thór og
Tinna skilin
Garðar Thór Cortes tenór og
Tinna Lind Gunnarsdóttir eru
skilin. Þau höfðu verið saman
síðan árið 2000 en þau giftu
sig árið 2007 og eiga einn son
saman. Garðar Thór er einn
fremsti söngvari landsins og sló
ungur í gegn í þáttunum um
Nonna og Manna. Tinna Lind
er leikkona og lék meðal annars
í myndinni Desember og í leik-
ritinu Fló á skinni.
GrínAri sigrar
heiminn
Ari Eldjárn var fljótur að heilla
Íslendinga með gríni sínu og
glensi. Nú hyggst hann sigra
heiminn.
„Ég mun flytja uppistand í
Badteatret í Nyhavn á morgun
(föstudag) klukkan 18:00. Allt
grín fer fram á english/danglish!“
skrifar Ari á Facebook-hópinn Ís-
lendingar búsettir í Kaupmanna-
höfn og fær ágæta „læk“ upp-
skeru. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Ari leggur land undir fót og
breiðir út íslenska grínfagnaðar-
erindi þeirra Mið-Ísland manna.
Hann hefur meðal annars haldið
uppistand í Bretlandi, Finnlandi
og í Svíþjóð og hlotið fyrir tals-
vert lof.
„Sársaukinn
gleymist
ekki svo
glatt“
n Tobba í skýjunum með frumburðinn
n Þreytan hverfur við að horfa á hana
E
kkert getur undirbúið mann
undir þennan rússíbana
sem móðurhlutverkið er,“
segir Þorbjörg Marinósdótt-
ir eða Tobba eins og hún er
gjarnan kölluð. Tobba er nýbökuð
móðir en hún og unnusti hennar,
Karl Sigurðsson Baggalútur og fyrr-
verandi borgarfulltrúi, eignuðust
sitt fyrsta barn þann 6. júlí. Það var
heilbrigð 16 marka stúlka sem kom
í heiminn og eru foreldrarnir eðli-
lega í skýjunum með frumburðinn.
„Kalli einstaklega góður pabbi“
„Barnið er svo blítt og gott. Öll
þreyta hverfur við að horfa á hana.
Við erum í skýjunum með hana og
hvort annað. Kalli er einstaklega
góður pabbi og ég þakklát fyrir að
hafa hann heima við. Það eru mikil
forréttindi,“ segir Tobba glöð.
Hún segir fæðinguna hafa gengið
vel en viðurkennir að vissulega hafi
hún verið orðin þreytt á að bíða þar
sem hún gekk tæpar tvær vikur fram
yfir og var sett af stað. „Fæðingin
gekk vel en það þurfti að setja mig
af stað svo útvíkkunin gerðist mjög
hratt og ég skammast mín ekki fyrir
að segja að þetta var ákaflega sárs-
aukafullt og ég er nú frekar hörð af
mér,“ segir hún og er ekki búin að
gleyma sársaukanum sem fylgdi því
að koma barninu í heiminn.
Mesta samsæri í heimi
„Það að sársaukinn gleymist strax
daginn eftir er mesta samsæri í
heimi. Ég elska barnið mitt og
myndi gera þetta aftur hvenær sem
er fyrir hana en sársaukinn gleym-
ist ekki svo glatt! Ég dauðkvíði því
að næsta ólétta vinkona spyrji mig
út í fæðinguna og ég þurfi að
ákveða hvort ég eigi að taka
þátt í samsærinu til að hræða
hana ekki!“ segir Tobba sem
er óhrædd við að orða hlutina
eins og þeir eru.
Baun fær nafn í næstu viku
Búið er að ákveða nafn á dóttur-
ina en það er leyndarmál þar til
í næstu viku. Hingað til hefur
hún verið kölluð Baun en það
nafn festist við hana strax í móð-
urkviði. „Mannanafnanefnd
leyfir víst ekki Baun Karlsdóttir,“
segir Tobba hlæjandi og bætir
við: Jón Gnarr hefur bent okk-
ur á það. En Baunarnafnið á ör-
ugglega eftir að loða við hana í ein-
hvern tíma.“ n
„Það að
sársaukinn
gleymist strax
daginn eftir er
mesta samsæri í
heimi.
Fyrsti göngutúrinn Tobba og
Kalli í fyrsta göngutúrnum.
nýbakaðir foreldrar
Kalli og Tobba með dóttur
sína upp á fæðingadeild.
yndislegt Tobba er alsæl í móðurhlutverkinu.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is