Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 26.–28. júlí 20142 Fréttir
R
eynir Þór Jónasson, annar
mannanna sem grunað-
ir eru um stórfellda líkams-
árás í Grundarfirði þann
17. júlí síðastliðinn, er ný-
kominn af skilorði. Árið 2012 fékk
hann tveggja mánaða skilorðsbund-
inn dóm til tveggja ára fyrir líkams-
árás á þáverandi heimili hans. Hann
reyndi þá meðal annars að krækja
út augu barnsmóður sinnar og þá-
verandi sambýliskonu. Skilorð rann
út í lok síðastliðins marsmánað-
ar. Gæsluvarðhaldi Reynis var lengt
um mánuð á fimmtudag sem og
hins mannsins sem er þýskur rík-
isborgari. Báðir voru þeir í áhöfn
Baldvins NC 100, sem lá þá við
bryggju. Reynir er fyrrverandi Ís-
landsmeistari í vaxtarrækt. Fórn-
arlambinu er enn haldið sofandi og
er með mjög alvarlega höfuðáverka.
Traðkaði á höfðinu
Aðstandandi mannsins sem ráð-
ist var í Grundarfirði segir í samtali
við DV að Reynir hafi verið sá sem
„kláraði“ manninn. Hann lýsti at-
burðarásinni á þann veg að eftir að
fórnarlambið yfirgaf Baldvin NC 100
þar sem hann hafði verið um borð
ásamt árásarmönnunum hafi þeir
komið hlaupandi á eftir honum.
Þýski maðurinn átti þá að hafa sleg-
ið manninn í jörðina með þeim af-
leiðingum að hann féll með höfuðið á
bryggjukantinn. Þá hafi Íslendingur-
inn, Reynir traðkað á höfði hans og
veist að honum með höggum.
Í úrskurði Héraðsdóms Vestur-
lands, sem birtur var á vef Hæsta-
réttar síðastliðinn miðvikudag, kem-
ur fram að vitni að árásinni hafi séð
brotaþola deila við tvo aðila á hafnar-
svæðinu í Grundarfirði. Frásögn
vitnis staðfestir í öllum megindrátt-
um lýsingu aðstandenda mannsins.
Fjarlægja þurfti stóran hluta höf-
uðkúpu fórnarlambsins vegna alvar-
legra höfuðáverka.
Reyndi að stinga fingrum
undir augu
Í dómnum gegn Reyni árið 2012
kemur fram að hann hafi aðfaranótt
sunnudagsins 31. janúar 2010 hrint
sambýliskonu sinni í gólfið og svo
hent henni til þegar hún stóð á fæt-
ur. Enn fremur settist hann ofan á
konuna þar sem hún lá í hjónarúmi
þeirra snemma um sunnudags-
morgun og tók hann kverkataki
„svo hún náði vart andanum og auk
þess reynt að stinga þumalputta og
vísifingri sömu handar inn und-
ir sitt hvort augað.“ Skömmu síðar
gaf hann henni þungt högg á hægri
upphandlegg. Eftir þessa atlögu var
konan með áverka „undir báðum
augum, á hálsi, báðum upphand-
leggjum og öxlum, brjóstum og
mjaðmabeini.“
Áfallastreita eftir árásina
Eitt þeirra skjala sem lagt var fyrir
dóminn var greinargerð um sál-
fræðileg áhrif ofbeldisins. „ Konan
hefur sýnt merki áfallastreitu og er
enn haldin einkennum þess, þ.e.
endurupplifanir, martraðir, tilfinn-
ingadoða, fælni í mannlegum sam-
skiptum, starfsgeta hennar er skert
og færni í að takast á við daglegt líf
og þær ákvarðanir sem því fylgja.
Sjálfsmat og sjálfsmynd hefur beðið
hnekki. Þó svo A hafi smám saman
verið að ná sér á strik á hún án efa
eftir að þurfa að þola afleiðingar
ofbeldisins í framtíðinni,“ segir
í greinargerðinni. Hún er metin
óvinnufær þegar greinargerðin var
skrifuð sumarið 2011.
Neitaði sök
Í vitnisburði sínum við réttarhöld
neitaði Reynir allri sök. Að hans
sögn var honum og þáverandi sam-
býliskonu hans boðið í samkvæmi
eftir lokun skemmtistaða aðfara-
nótt sunnudags. Að hans sögn hafði
samkvæmið lognast út eftir að fauk
í konuna vegna reykinga innandyra.
Hafi hann því næst lagst til svefns.
„Þar sem ég vakna uppi í rúminu að
hún er organdi á mig sko, bara al-
veg snarbrjáluð,“ sagði Reynir. Hann
þvertók fyrir að hafa tekið konuna
kverkataki sem og að hafa sett fingur
undir augu hennar. Reynir bar fram
þau rök að áverkar konunnar hefðu
verið eftir hann en tilkomnir vegna
sjálfsvarnar. Dómari taldi þessa
skýringu ekki trúverðuga. n
DæmDur
fyrir
n Reynir Þór grunaður um líkamsárás í Grundarfirði n Var á skilorði
árás á
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Grunaður
Reynir Þór er
grunaður um
stórfellda
líkamsárás í
Grundarfirði.
Hann fékk
skilorðsbundinn
dóm til tveggja
ára árið 2012 fyrir
líkamsárás.
barnsmóður
Íslandsmeistari Reynir Þór er fyrrverandi
Íslandsmeistari í vaxtarrækt.
Hundrað greindust með sýkingu
Matvælastofnun biður almenning um að gæta hreinlætis
Á
síðasta ári greindust um 100
einstaklingar hér á landi með
kampýlóbaktersýkingu en á
undanförnum árum hafa um
50–120 einstaklingar greinst með
sýkinguna árlega.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Matvælastofnun.
Þeir sem nú hafa verið að grein-
ast eru frá mismunandi stöðum
landsins og ekki að finna hjá þeim
sameiginlega uppsprettu sýkingar-
innar.
Kampýlóbakter er algeng bakt-
ería um allan heim og smitar bæði
menn og dýr. Bakterían smitast yf-
irleitt með menguðum matvæl-
um, en smit með vatni er einnig
vel þekkt. Meðgöngutími sýkingar-
innar, þ.e. tími frá smiti þar til ein-
kenna verður vart, er yfirleitt 2–4
dagar en getur verið 1–7 sólar-
hringar. Einkenni geta verið lítil en
oft veldur sýkingin miklum niður-
gangi sem getur verið blóðugur,
ógleði, uppköstum, krampakennd-
um kviðverkjum og hita. Veikindin
ganga yfirleitt yfir án meðferðar á
nokkrum dögum en stöku sinnum
þarf að beita sýklalyfjameðferð.
Fólk er beðið um gæta almenns
hreinlætis, sérstaklega við mat-
reiðslu á viðkvæmum matvælum,
gæta þess að möguleg smitefni berist
ekki úr hráum matvælum svo sem úr
kjöti í soðin/steikt matvæli eða salöt,
gæta vel að fullnægjandi hitun mat-
væla, t.d. þegar grillað er, og góðri
kælingu á geymdum mat. Einnig
þarf að gæta þess að neyta einungis
hreins og ómengaðs vatns. n
ritstjorn@dv.is
„Konan hefur
sýnt merki
áfallastreitu og
er enn haldin ein-
kennum þess
Ábending
um hugsan-
lega tælingu
Lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu barst ábending um mann
sem hafði hugsanlega reynt að
tæla barn á brott í Grafarvogi í
gærmorgun. Árni Þór Sigmunds-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn
segir lögregluna hafa fengið lýs-
ingu á manni sem hefði hugsan-
lega átt hlut að máli.
„Þetta var hins vegar frekar
óljóst. En sá maður féllst á að
koma á stöðina til viðræðna,
sýndi samvinnuþýðu og ber af
sér sakir. Við erum bara að skoða
þetta og rannsaka, það er lítið
annað um málið að segja,“ sagði
Árni Þór í samtali við DV.is um
málið.
Þvottur Hreinlæti er lykilatriði þegar
kemur að því að koma í veg fyrir smit.
Hætta við
Öskju
Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra gaf út tilkynningu á
föstudag þess eðlis að enn væri
hætta vegna berghlaupsins í
Öskju. Síðastliðinn mánudag
varð hrun úr brúnum Dyngju-
fjalla við Öskjuvatn sem orsak-
aði flóðbylgju. Vísindamenn hafa
farið yfir rannsóknir vikunnar og
telja þeir ólíklegt að sambærilegt
hlaup geti orðið aftur. Þrátt fyrir
það er enn talin vera mikil hætta
á frekari skriðuföllum að minnsta
kosti næsta ár. Almannavarna-
deild hvetur þá sem verða á ferð
við Öskju að virða þær lokanir og
merkingar sem þar eru.