Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 7
Helgarblað 26.–28. júlí 2014 Fréttir 7
Nánari upplýsingar á rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Álagningar- og innheimtuseðlar
einstaklinga 2014
eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra;
www.rsk.is og www.skattur.is.
Barnabætur, vaxtabætur og inneign vegna
álagningar verður greidd út 1. ágúst.
Upplýsingar um greiðslustöðu veita
tollstjóri og sýslumenn.
Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum
ríkisskatt stjóra, dagana 25. júlí til 8. ágúst 2014
að báðum dögum meðtöldum.
Kærufresti lýkur 25. ágúst 2014.
Álagningu skatta
á einstaklinga
er lokið
skattur.is
Baugskona verður útgefandi 365
Jón Ásgeir styrkir tök sín á fréttastofu með ráðningunni
Á
fimmtudag var tilkynnt að Kristín
Þorsteinsdóttir hefði verið ráðin
útgefandi 365 og verður hún því
yfirmaður fréttastofu fyrirtækis-
ins. Hún ber að auki ábyrgð á störfum
fréttastofu gagnvart nýjum forstjóra,
Sævari Frey Þráins syni. Samkvæmt
fréttatilkynningu mun aðalritstjóri,
Mikael Torfason, áfram stýra dagleg-
um rekstri fréttastofu. Kristín verður
þó yfirmaður Mikaels. Má segja að hún
sé innmúruð í þann hóp sem stendur
við hlið Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
en hún var um árabil kynningarstjóri
Baugs sem og Iceland Express. Síðast-
liðin tvö ár hefur Kristín setið í stjórn
365 en lætur nú af stjórnar störfum.
Kristín skrifaði í fyrra afar um-
deilda grein í Fréttablaðið. Þar sagð-
ist hún telja að enginn hafi gerst sekur
um refsiverðan verknað í aðdraganda
bankahrunsins 2008 og telur hún að
sérstakur saksóknari vegi að saklausu
fólki og sagði hann fremja réttarmorð.
„Flestir sakborningarnir eru milli
þrítugs og fertugs, vel menntað fólk
sem hafði starfað í fjármálaheiminum
í örfá ár eftir langt nám. Það taldi sig
eiga framtíðina fyrir sér. Ekkert þeirra
er grunað um ofbeldi svo ég viti. Það
fékk eftirsótt störf í nýlega einkavædd-
um bönkum, sem hrundu líkt og
margir bankar í nálægum löndum. Í
aðdraganda hrunsins lentu lítt reynd-
ir íslenskir bankamenn í erfiðri stöðu.
Oft stóðu þeir frammi fyrir eintómum
vondum kostum, sem eflaust voru af-
leiðing af fúski – oftast fúski einhverra
allt annarra manna,“ skrifaði Kristín.
Dóttir Kristínar, Ólöf Skaftadóttir,
er blaðamaður á Fréttablaðinu. Hún
hefur líkt og móðir hennar komið Jóni
Ásgeiri til varnar. Er hann stefndi Svav-
ari Halldórssyni, fyrrverandi frétta-
manni, fyrir meiðyrði skrifaði Ólöf í
athugasemdakerfi DV: „Það hlýtur að
mega stefna öðrum en útrásarvíking-
um? Þá sérstaklega fjölmiðlamönn-
um með flenniegó …“ Hún hjólaði
einnig í Jón Gerald Sullenberger í
athugasemdakerfi DV. n
hjalmar@dv.is
Uppgjörið bara
fyrir íslensku-
mælandi
Rannsóknarskýrslan ekki enn
verið þýdd yfir á ensku
Skýrsla rannsóknarnefndar Al-
þingis um aðdraganda og orsak-
ir íslenska bankahrunsins er
einungis skiljanleg þeim sem
kunna íslensku. Ljóst er þó að
efni hennar varðar mun fleiri en
Íslendinga, enda olli hrunið árið
2008 fjárhagslegu tjóni sem teygði
sig langt út fyrir landsteinana.
„Þetta er efni sem kemur
miklu fleirum en Íslendingum
við,“ segir Margrét Tryggvadóttir,
fyrrverandi þingkona Hreyfingar-
innar, í samtali við DV.
Á síðasta kjörtímabili lagði
Margrét tvívegis fram þingsá-
lyktunartillögu um að skýrslan
yrði þýdd. Þór Saari, fyrrver-
andi þingmaður sama flokks,
hvatti upphaflega til þess innan
forsætisnefndar, þar sem hann
hafði stöðu áheyrnarfulltrúa, að
skýrslan yrði þýdd yfir á ensku
en fékk litlar undirtektir. Í kjöl-
farið lagði Margrét fram þings-
ályktunartillögu sem tekin var
til skoðunar í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd en dagaði svo uppi.
Meðflutningsmenn tillögunnar
voru Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari
og Eygló Harðardóttir.
„Tjónið af hruninu teygði sig
út um allan heim. Okkur ber sið-
ferðileg skylda til að hafa þetta
efni aðgengilegt á fleiri tungu-
málum, að minnsta kosti á
ensku,“ segir Margrét sem enn
vonast til þess að skýrslan verði
þýdd í heild sinni einn góðan
veðurdag. „Ef gera á þessa at-
burði almennilega upp sem var
að minnsta kosti tilgangurinn í
orði kveðnu, þá verður skýrslan
að vera aðgengileg öllum þeim
sem urðu fyrir tjóni.“
Skýrslu rannsóknarnefndar-
innar, sem samanstóð af
þeim Páli Hreinssyni, Tryggva
Gunnarssyni og Sigríði Bene-
diktsdóttur, var skilað þann 12.
apríl árið 2010 og olli talsverðu
fjaðrafoki á Íslandi. Um er að
ræða einhverja bestu sagnfræði-
legu heimildina sem til er um
bankahrunið og orsakir þess; at-
burði sem margsinnis hefur verið
fjallað um erlendis, bæði í fjöl-
miðlum og fræðiritum, án þess
að íslenskrar þýðingar á skýrsl-
unni nyti við.
Umdeildur útgefandi Kristín hefur
starfað við hlið Jóns Ásgeirs um árabil.
Líkir Framsókn
við Breivik
Bjarni Jónsson, varaformað-
ur Siðmenntar, flutti á dögun-
um erindi við minningarathöfn
sem Ungir jafnaðarmenn
héldu vegna fjöldamorða And-
ers Behring Breivik á Útey árið
2011. Þar setti hann voðaverk-
in í samhengi við meðal annars
kosningabaráttu Framsóknar-
flokksins í síðastliðnum sveitar-
stjórnarkosningum. Bjarni segir
að öfl svo sem íslenski Fram-
sóknarflokkurinn, norski Fram-
faraflokkurinn, breski sjálfstæð-
isflokkurinn UKIP og Jobbik í
Ungverjalandi væru af sama
sauðahúsi og Breivik.