Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Qupperneq 12
Helgarblað 26.–28. júlí 201412 Fréttir
I
nnflutningur hingað til lands frá
Ísrael hefur aukist jafnt og þétt
í gegnum árin og náði hámarki
árið 2011 þegar Íslendingar fluttu
inn vörur frá Ísrael að andvirði
rúms eins milljarðs króna. Á síðasta
ári nam innflutningur frá Ísrael tæp-
um 720 milljónum og á fyrstu fimm
mánuðum þessa árs nam innflutn-
ingur á vörum frá Ísrael rúmum
312 milljónum króna. Af innflutt-
um vörum frá Ísrael til Íslands fer
langmest fyrir efninu natríumtrífos-
fat. Á 16 mánaða tímabili, frá janúar
2013 til maí 2014, var þetta efni flutt
inn fyrir andvirði rúmlega 203 millj-
óna króna. Þá voru einnig flutt inn
önnur fjölfosföt að verðmæti tæp-
lega 25 milljóna króna. Á tímabil-
inu voru alls flutt inn 1.136.825 kíló
af natríumtrífosfati frá Ísrael, sem
gera rúmlega 1.000 tonn. Þetta eru
því rúmlega 70 tonn á mánuði. Efnið
er einnig flutt inn frá öðrum löndum,
til dæmis Kína og Belgíu, en ekkert
innflutningsland kemst með tærnar
þar sem Ísrael hefur hælana í þess-
um efnum. Rúmlega helmingur alls
natríumtrífosfats sem flutt er hingað
til lands kemur frá Ísrael.
Ísraelsk efni í íslenskum
matvælum
Samkvæmt upplýsingum frá Mat-
vælastofnun eru trífosföt meðal
annars notuð sem matvælaauka-
efni (E-451) og sem aukaefni í fóð-
ur dýra. Einnig má nota efnið við
vinnslu á blautverkuðum saltfiski
og frystum fiski. Þá má nota efnið í
mörg önnur matvæli, svo sem unn-
ar kjötvörur, osta, bragðbætta drykki
og fleira. Ætli íslenskir neytendur því
að sniðganga allar vörur sem fluttar
eru inn frá Ísrael gætu íslensk mat-
væli því einnig þurft að fara á svarta
listann. Þess má geta að aðeins er
leyfilegt að nota natríumtrífosfat í
afar litlu magni við matvælafram-
leiðslu og því ekki hægt að útskýra
þennan mikla innflutning eingöngu
með henni. Í svari frá Matvælastofn-
un segir að miðað við magnið hljóti
efnið að vera notað í annan iðnað að
mestu leyti.
Hjá tollstjóra fengust þær upplýs-
ingar að það sé fyrst og fremst fisk-
iðnaðurinn sem noti natríumtrífos-
fat hér á landi. Efnið sé notað til þess
að binda vökva og koma í veg f yrir
að fiskurinn missi þyngd. Þá megi
einnig nota efnið í sápugerð og sem
rotvarnarefni í matargerð.
Neytendur hvattir til að
sniðganga Ísrael
Heimsbyggðin hefur fylgst agndofa
með atburðum fyrir botni Mið-
jarðarhafs en eins og kunnugt er
hafa enn á ný brotist út blóðug átök á
Gaza. Ísraelskar herþotur hafa varp-
að sprengjum á almenna borgara og
um síðustu helgi hóf ísraelski herinn
landhernað á svæðinu. Íslendingar
eru meðal þeirra sem fordæmt hafa
árásir Ísraelshers og krafðist Gunnar
Bragi Sveinsson utanríkisráðherra
þess meðal annars í síðustu viku að
ísraelsk stjórnvöld stöðvuðu árás-
ir sínar á Gaza. Því miður dugir for-
dæming skammt hjá herlausri þjóð
og standa Íslendingar vanmáttugir
gagnvart ástandinu. Íslenskir neyt-
endur geta hins vegar sýnt hug sinn
í verki og sniðgengið vörur frá Ísrael.
Meðal þeirra sem hvatt hafa íslenska
neytendur til þess að sniðganga
ísraelskar vörur að undanförnu er
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar. Hún birti mynd
af ísraelskum kryddjurtum á Face-
book- og Twitter-síðum sínum í síð-
ustu viku og hvatti aðra til þess að
gera slíkt hið sama.
Úttekt á innflutningi
DV tók saman upplýsingar um verð
á innflutningi frá Ísrael á tímabilinu
janúar 2013 til maí 2014. Upplýsingar
um innflutningstölur eru fengnar á
vef Hagstofu Íslands og eru teknar
saman eftir tollskrárnúmerum. Mið-
að er við verð vörunnar kominni um
borð í flutningsfar í útflutningslandi,
það er fyrir utan viðbættan kostnað
sem fellur á vöruna þegar henni er
skipað upp í innflutningslandi.
Paprikur og lárperur
Töluvert af matvælum er flutt inn
hingað til lands frá Ísrael. Helst ber
að nefna lárperur (avocado) en á
þessu tímabili var keypt inn fyrir
rúma 41 milljón króna af ávextinum.
Íslendingar fluttu einnig inn nýjar
matjurtir, til að mynda steinselju,
fyrir andvirði tæplega 25 milljóna
króna og þá nam innflutningur á nýj-
um paprikum tæplega 18 milljónum
króna á tímabilinu. Önnur matvæli
sem flutt eru inn hingað til lands
eru til dæmis ný ber, döðlur, fíkjur,
mandarínur, greipaldin, kryddjurt-
ir og síróp. Athygli vekur að inn-
flutningur á lýsispillum og öðrum
vítamínum frá Ísrael nam rúmlega
18 milljónum króna á þessu tímabili.
Grænmetisvörur á borð við græn-
metisbuff og grænmetispylsur frá
fyrirtækinu Hälsans kök hafa fengist
hér á landi og koma frá Ísrael. Nafnið
kann að hljóma sænskt en vöru-
merkið er í eigu ísraelska fyrirtæk-
isins Tivall. Önnur vörumerki eru til
að mynda Jaffa-ávextir og Kadem-
lárperur.
Ísraelskar snyrtivörur
Snyrtivörur af ýmsu tagi eru
fluttar inn frá Ísrael. Frá janú-
ar 2013 til maí 2014 nam inn-
flutningur á snyrtivörum frá Ísr-
ael rúmlega 102
milljónum
króna. Þar af nam
innflutningur á
sjampói og öðrum hársnyrtivörum
tæplega 43 milljónum króna.
Meðal verslana sem selja snyrti-
vörur frá Ísrael eru The Pier en all-
ar snyrtivörur í þeirri verslun koma
frá Ísrael. Þetta eru snyrtivörumerk-
in Sea of Spa og Pure Dead Sea. Þá
selur Rúmfatalagerinn einnig vör-
ur frá ísraelska framleiðandanum
Pure Dead Sea, þar á meðal hand-
áburð, handsápu og baðsalt. Þá fást
Dr. Fischer-snyrtivörur í ýmsum
verslunum en þær koma einnig frá
Ísrael. Fyrirtækið er einnig skráð í
Brussel en þar er vörunum pakk-
að fyrir evrópskan markað. Þess má
einnig geta að snyrtivörurnar frá
Dr. Melumad eru einnig frá Ísrael
en íslenska fyrirtækið Volare selur
vörurnar hér á landi. Líkt og hjá Her-
balife fer salan að mestu fram í gegn-
um svokallaða söluráðgjafa en sam-
kvæmt heimasíðu Volare á Íslandi
eru þeir á áttunda tug talsins.
Optískar vörur og afskorin blóm
Ýmislegt annað er flutt
inn hingað til lands
frá Ísrael. Má þar
nefna lyf, prentliti,
íblöndunarefni
fyrir sement,
steinlím
og
steypu, hluta í prent- og ljósritunar-
vélar og hluta og fylgihluti í tölvur. Þá
eru fluttar inn ýmiss konar plöntur
frá Ísrael á borð við græðlinga og
kvisti, lifandi afskorin blóm og
greinar. Innflutningur á gleraug-
um, linsum og öðrum optískum vör-
um frá Ísrael nam tæpum 64 millj-
ónum króna á tímabilinu sem hér
er til skoðunar. Af rafmagnsvör-
um voru fluttir inn svokallaðir rof-
ar fyrir <1000 V að andvirði rúm-
lega 37 milljóna króna á tímabilinu
og þá nam andvirði þjófa- og bruna-
varnarkerfa og annarra rafmagns-
hljóðmerkja- eða -ljósmerkjatækja
innfluttum hingað til lands frá Ísrael
alls rúmum 13 milljónum króna. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
n Gífurlegt magn af natríumtrífosfati flutt inn frá Ísrael n Rúmlega 70 tonn á mánuði
Ísraelskt efni í
íslenskum mat
Ísraelskt efni notað í fiskiðnaði
Natríumtrífosfat er fyrst og fremst notað
til þess að binda vökva í fiski hér á landi.
Handáburður frá Ísrael
Ísraelsku snyrtivörurnar frá Pure
Dead Sea eru
meðal annars
seldar í The
Pier og Rúm-
fatalagernum.
Vörur frá
Volare Sölufull-
trúar fyrir ísraelska
snyrtivörufyrir-
tækið Dr. Melumad
eru tæplega átta-
tíu hér á landi.
Lárperur frá Ísrael Ís-
lendingar fluttu inn lárperur fyrir
rúma 41 milljón á tímabilinu.