Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Side 16
Helgarblað 26.–29. júlí 201416 Fréttir Erlent
MILLJÓNIR Í HÆTTU
VEGNA MENGUNAR
n Þetta eru menguðustu staðir jarðar n Ógn við fjölmarga íbúa
M
illjónir íbúa um allan heim
eru í bráðri hættu vegna
mengunar. Á hverju ári
birtir Blacksmith-stofnunin,
óháð alþjóðleg umhverfis-
verndarsamtök, skýrslu um meng-
uðustu staði jarðar. Allir eiga þessir
staðir sameiginlegt að fólk býr í næsta
nágrenni þeirra og börn eru sérstak-
lega berskjölduð vegna mengunarinn-
ar. Hér að neðan er stiklað á stóru um
menguðustu staði jarðar árið 2013 að
mati stofnunarinnar. Auk þeirra staða
sem nefndir eru hér að neðan sem
skora býsna hátt á lista stofnunarinnar
má nefna Chernobyl í Úkraínu og olíu-
svæðin við óshólma Níger-fljóts í Ní-
geríu. Niðurstöður Blacksmith-stofn-
unarinnar má sjá í heild á vefsíðunni
Worstpolluted.org. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Citarium-vatnasvæðið
Land: Indónesía Mengunarvaldur: Efni eins og kadmíum, blý, króm og
skordýraeitur Hefur áhrif á: 500 þúsund íbúa beint, 5 milljónir óbeint
Citarium-vatnasvæðið á eyjunni Jövu á Indónesíu þekur um þrettán þúsund
ferkílómetra svæði og er því gríðarstórt. Milljónir íbúa reiða sig á vatn úr Citari-
um-ánni, bæði til neyslu og til notkunar á ræktunarsvæðum. Á undanförnum
árum hefur aukinnar mengunar orðið vart á svæðinu og er þar ekki síst um að
kenna gríðarlegri notkun á skordýraeitri og öðrum hættulegum efnum sem
notuð eru í iðnaði. Þannig hefur magn blýs mælst þúsundfalt yfir þeim mörkum
sem sett eru vegna neyslu á drykkjarvatni. Önnur efni mælast einnig langt yfir
hættumörkum. Yfirvöld í Indónesíu hafa að undanförnu gripið til ráðstafana
vegna mengunarinnar og hafa heitið því að verja 500 milljónum Bandaríkjadala
til að tækla vandamálið á Citarium-vatnasvæðinu.
Kabwe
Land: Sambía Mengunarvaldur: Blý
Hefur áhrif á: 300 þúsund íbúa
Kabwe er næstfjölmennasta borg Sambíu, en
hún er um 150 kílómetra norður af höfuð-
borginni Lusaka. Í könnun sem gerð var árið
2006 kom í ljós að magn blýs í blóði barna
í Kabwe var fimm til tíu sinnum hærra en
ráðlagt er. Ástæðan er mengun vegna vinnslu
í blýnámum í og við borgina sem staðsett er á
hinu svokallaða Koparbelti. Árið 1902 fundust
miklar blýnámur við borgina þar sem stjórnlaus
vinnsla fór fram um áratugaskeið með tilheyr-
andi áhrifum á íbúa. Bræðsla á málmgrýti fór
fram án eftirlits á 20. öldinni en mörg hættuleg
efni sluppu út í andrúmsloftið í bræðslunni.
Dzerzhinsk
Land: Rússland
Mengunarvaldur: Hættuleg efni
Hefur áhrif á: 300 þúsund íbúa
Á Sovéttímanum var Dzerzhinsk miðstöð
framleiðslu á ýmiss konar efnum og
vopnum, þar á meðal kjarnorkuvopnum.
Þó að aðeins hafi dregið úr umfangi
framleiðslunnar er enn þann dag í dag að
finna mikilvægar efnaverksmiðjur í og við
borgina sem telur um 250 þúsund íbúa.
Talið er að á árunum 1930 til 1998 hafi um
300 þúsund tonn af efnaúrgangi verið
grafin í jörðu í Dzerzhinsk og nágrenni
borgarinnar. Nokkrum árum seinna, eða
árið 2007, mældust hættuleg efni, þar á
meðal díoxín og tjörusýra, í grunnvatni við
borgina – þúsundfalt yfir viðmiðunarmörk-
um. Hlaut borgin þá vafasömu nafnbót í
Heimsmetabók Guinness árið eftir að vera
mengaðasta borg heims. Mengun í borginni
hefur haft áhrif á íbúa. Tíðni krabbameina
hefur aukist mjög í Dzerzhinsk á undan-
förnum árum og eru lífslíkur íbúa þar með
því lægsta sem gerist í heiminum. Geta
karlar vænst þess að verða 42 ára og konur
47 ára samkvæmt Worstpolluted.org.
Hazaribagh
Land: Bangladess Mengunarvaldur: Aðallega króm
Hefur áhrif á: 160 þúsund íbúa
Í Bangladess eru skráðar 270 sútunarstöðvar og þar af eru 90% til 95%
þeirra allra staðsettar á 25 hektara svæði í Hazaribagh. Flestar eru þær
gamlar, úr sér gengnar og í þeim notast við úrelta tækni. Um átta til tólf
þúsund manns starfa í þessum verksmiðjum. Talið er að á hverjum degi losi
þessar verksmiðjur um 22 þúsund lítra af eitruðum úrgangi, þar á meðal
krómi sem getur valdið krabbameini. Þessi úrgangur ratar gjarnan út í Buri-
ganga-ána sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir íbúa Dhaka, höfuðborgar
Bangladess. Og heimili starfsmanna þessara verksmiðja eru við verk-
smiðjurnar þar sem úrgangurinn er losaður. Þetta er ekki eina hættan sem
steðjar að íbúum Hazaribagh því stöðug nálægð við stórhættuleg efni veldur
íbúum ógleði, höfuðverk og kláða svo dæmi séu tekin. Íbúar Hazaribagh eru
um 185 þúsund talsins.
Kalimantan
Land: Indónesía
Mengunarvaldur: Kvikasilfur og kadmíum Hefur áhrif á: 225 þúsund íbúa
Kalimantan er í raun indónesíski hluti eyjunnar Borneó. Hinn hlutinn
tilheyrir Malasíu og Brunei. Kalimantan skiptist í fimm héröð en í tveimur
þeirra, Mið- og Suður-Kalimantan, sjá þúsundir íbúa sér farborða með
gullgreftri og -vinnslu. Fátækir gullgrafarar nota kvikasilfur til að hreinsa
gull af grjóti og sandi. Þegar búið er að nota kvikasilfrið er það einfaldlega
losað út í náttúruna og er áætlað að um þúsund tonn af kvikasilfri sleppi út
í náttúruna með þessum hætti í Kalimantan. Kvikasilfur breiðist mjög auð-
veldlega út í andrúmsloftinu og getur því valdið usla víða, meðal annars í
dýraríkinu. Yfirvöld í Indónesíu hafa stigið skref á undanförnum árum til að
minnka losun kvikasilfurs út í náttúruna.
Agbogbloshie er úthverfi Accra, höfuðborgar Afríkuríkisins Gana.
Á þessu svæði er að finna einn mesta ruslahaug heims af svoköll-
uðu e-rusli (e. Electronic waste), eða rafrusli. Hér er um að ræða
rusl sem verður til vegna ónýtra tölva, sjónvarpa, örbylgjuofna,
þvottavéla, ísskápa og annarra raftækja. Í umfjöllun Worst-
polluted.org kemur fram að um 215 þúsund tonn af notuðum
raftækjum séu flutt til Gana á hverju ári. Mörg þessara raftækja
eru í slæmu ásigkomulagi; hægt er að nýta einhver þeirra áfram á
meðan önnur fara í varahluti og brotajárn. Flestir þeirra sem vinna
við að finna heillega hluti á rafruslahaugunum í Agbogbloshie
leggja á það áherslu að finna og komast yfir kopar sem leynist
í rafmagnsköplum margra raftækja. Frauðplast er notað til að
brenna snúrurnar í sundur og skapar þetta hættu á blýmengun í
andrúmsloftinu og víðar. Blýmagn í jarðveginum við Agbogbloshie
er feiknamikið, eða 45 falt yfir hættumörkum.
Agbogbloshie
Land: Gana Mengunarvaldur: Blý Hefur áhrif á: 40 þúsund íbúa
Agbogbloshie Þetta
eru ekki kjöraðstæður
til að starfa í.