Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Side 18
Helgarblað 26.–28. júlí 201418 Neytendur
Rúmlega 900
kaloríur í vefju
F
ríða Rún Þórðardóttir, nær
ingarfræðingur og næringar
ráðgjafi, gerði nýlega saman
burð á nokkrum tegundum af
skyndibita hér á landi út frá
upplýsingum um næringargildi og
skammtastærðir. Niðurstöðuna má
sjá á meðfylgjandi töflu. Fljótt á litið
virðast tveir staðir, sem báðir gefa
sig út fyrir að vera hollari valkost á
skyndibitamarkaði, standa sig verst.
Athygli vekur að Sesar Naanwich
vefja frá Saffran inniheldur rúmlega
900 kaloríur og 70 grömm af fitu.
Þá eru um 770 hitaeiningar í BBQ
Burritovefju frá Serrano. Að sögn
Fríðu Rúnar er málið hins vegar ekki
svo einfalt.
Hollari valkostir
„Þetta eru hollari valkostir, það
er ekki spurning,“ segir hún. „Að
minnsta kostir þegar við horfum á
hluta af hráefninu, það er grænmeti
og tómatar, magurt kjúklingakjöt,
fræ, baunir, jafnvel heilkorna vefja.“
Fríða Rún segir að þó svo að hitaein
ingarnar séu ansi margar í réttunum
frá Saffran og Serrano þá séu mál
tíðirnar bæði stærri og veglegri. Þær
endast því lengur en til að mynda
pylsa með öllu sem inniheldur 380
hitaeiningar. „Sjálfri finnst mér meira
sláandi að sjá tölurnar fyrir pepp
eróníveisluna frá Domino's. Þetta eru
ekki nema tvær sneiðar, sem jafnast
á við að borða rúmlega eina brauð
sneið með áleggi hvað magn í mag
ann varðar. Fimm hundruð kaloríur
og þú verður tiltölulega fljótt svangur
aftur. Hlutfall fitu er einnig mjög hátt
í pítsusneiðunum, eða 38 prósent,
á meðan burritovefjan frá Serrano
inniheldur fullt af grænmeti og góð
um næringarefnum. Þá finnst mér
einnig sláandi að sjá að ein pylsa
með öllu innihaldi nærri því fjögur
hundruð hitaeiningar. Yfir helming
ur þeirra kemur úr fitu og þá inni
heldur pylsan nánast engin næring
arefni. Fólk verður ekki lengi satt af
henni. Þess vegna er mikilvægt að
horfa á þessa töflu í réttu samhengi.“
Minni skammtar
Sé sérstaklega rýnt í réttina sem
innihalda flestar kaloríur, Sesar
Naanwichvefjuna hjá Saffran og
BBQ Burritovefjuna frá Serrano,
má spyrja sig hvort skammtarnir séu
einfaldlega of stórir. Aðspurð hvort
916 kaloríur séu ekki heldur mikið
fyrir eina máltíð, þar sem ráðlagð
ur dagskammtur fyrir meðal mann
eskju sem ekki æfir íþróttir sé á bil
inu 2.200–2.700, segir Fríða Rún:
„Það er svolítið mikið fyrir einstak
ling sem hreyfir sig lítið sem ekkert
en fyrir íþróttamann eða mann sem
vinnur erfiðisvinnu þá er slík máltíð
temmileg sem stærsta máltíð dags
ins. Hins vegar má alveg skoða hvort
minnka megi sósuna á Naanwich
eitthvað aðeins. Þó er rétt að athuga
að það er ekki mikið af mettaðri fitu
í þeirri máltíð sem er mjög jákvætt.“
Meðvituð um skammtastærðir
Aðspurð hvort skammtarnir mættu
vera minni segir Fríða Rún: „Þetta
með skammtastærðirnar er alltaf
erfitt að meta almennt. Skoða þarf
orkuþörf hvers og eins út frá hreyf
ingu og hvar fólk er statt í lífinu.
Ertu að hreyfa þig lítið sem ekkert
eða ertu að hjóla eða ganga til og frá
vinnu og jafnvel að æfa íþróttir eða
hlaup? Ertu kannski ófrísk eða með
barn á brjósti og jafnvel að hreyfa þig
samhliða?“ spyr Fríða Rún. „Margir
eru ekki alveg meðvitaðir um eðli
legar skammtastærðir og því þarft
fólk að vera meðvitað á meðan það
er að borða og gæta þess að hætta
þegar nóg er komið. Ef fólk fer oft á
sama skyndibitastaðinn er auðvelt
að læra inn á skammtastærðir rétt
anna og velja sér eftir því sem best
hentar hverju sinni. Margir kenna
stærri skömmtum um vaxandi offitu
en magnið sem við borðum og hvað
við veljum stendur og fellur með
okkur sjálfum.“
Fríða segir mikilvægast að hafa
nóg af grænmeti í máltíðinni. „Mig
grunar að margt ungt fólk og margir
sem borða á skyndibitastöðum fái
jafnvel stærstan hluta þess grænmetis
sem það borðar einmitt úr réttum
eins og stórum samlokum, Burrito og
sambærilegum máltíðum.“
Pylsan verst
Fríða Rún segir því alls ekki nóg
að horfa eingöngu á fjölda kaloría.
Einnig þurfi að taka mið af stærð
máltíðar og þeim næringarefnum
sem máltíðin inniheldur. Hún
segir að í raun sé marktækast
að reikna næringargildið út frá
hundrað grömmum. Hins vegar
hafi ekki verið aðgengilegar upp
lýsingar um næringargildi á hund
rað grömm né þyngd hverrar mál
tíðar á vef KFC og Domino's. Þess
vegna hafi verið ákveðið að reikna út
næringarinnihald á hvern skammt
sem grunnviðmið fyrir alla réttina,
enda fái neytendur einn skammt í
hendur en ekki hundrað grömm.
Séu KFC og Domino's því undanskil
in þessari könnun af framangreind
um ástæðum, og næringargildi eftir
standandi rétta tekin saman út frá
hundrað grömmum, kemur í ljós að
pylsa með öllu kemur í raun verst út
– en hundrað grömm af henni inni
halda 257 kaloríur. Hundrað grömm
af Sesar Naanwich frá Saffran inni
halda 229 kaloríur, Fabrikkuborgar
inn 191 kaloríu, BBQ Burrito frá
Serrano 164 kaloríur. Subwaybátur
inn er með fæstar kaloríur, eða alls
109 kaloríur á hundrað grömm.
Framkvæmdin
Taflan er unnin út frá upplýsingum
um næringargildi og skammtastærð
ir af vefsíðum skyndibitastaðanna.
„Þetta var mismikil vinna fyrir hvern
skyndibita fyrir sig,“ segir Fríða Rún.
Sum fyrirtæki gefi upp nákvæmar
upplýsingar um næringargildi hverr
ar máltíðar á vefsíðu sinni, til dæm
is KFC, Subway og Saffran, á meðan
önnur gefi upp næringargildi hvers
skammts af hráefni, líkt og Serrano. Í
tilviki pylsunnar var keypt pylsa með
öllu, hvert hráefni vigtað jafnóðum
og það var sett í brauðið og nær
ingargildið síðan reiknað út frá upp
lýsingum af vef Matís.
Rétt er að taka fram að þeir réttir
sem teknir eru með í þennan sam
anburð eru dæmi af matseðli hvers
staðar og segja því ekki til um alla
réttina á hverjum stað. Margir sleppa
sósunni eða nota minna af henni,
sumir sleppa brauðinu eða borða
aðeins helminginn. Sama gildir um
hrísgrjónin og þá sleppa því miður
sumir grænmetinu. Töfluna má hins
vegar nota til samanburðar og getur
hver og einn borið sinn uppáhalds
skyndibita saman við hana svo fremi
sem næringargildis upplýsingar og
þyngd er gefið upp. n
n Samanburður á næringargildi nokkurra skyndibita n Ekki er allt sem sýnist
Samanburður
á skyndibitum
Subway
Kalkúns- og skinkubátur 6“
Kalkúnsbringa ásamt ferskri skinku.
Ríkulegt magn af fersku grænmeti,
borið fram í nýbökuðu brauði.
Magn: 225 g
Orka: 247 kcal
Fita: 3,2 g
Kolvetni: 42,4 g
Prótein: 16,4 g
KFC
Ristuð, heit Twister-vefja með kjúklinga-
lundum, fersku grænmeti og léttri
piparmajónessósu.
Magn: 1 stk.
Orka: 540 kcal
Fita: 28,3 g
Kolvetni: 42,3 g
Prótein: 19,4 g
Serrano
BBQ Burrito með kjúklingi, hrísgrjónum,
svörtum baunum, fersku salsa, maís,
nýskornu káli, BBQ-sósu, nachos-flögum
og sýrðum rjóma
Magn: 467 g
Orka: 766 kcal
Fita: 20,4 g
Kolvetni: 111,2 g
Prótein: 28,7 g
Domino's
Pítsa; Pepperóníveisla á klassísku
pítsudeigi með pítsusósu og osti.
Magn: 2 sneiðar af
stórri pítsu
Orka: 493 kcal
Fita: 20,8 g
Kolvetni: 32 g
Prótein: 46,2 g
Pylsusali
Pylsa með öllu
Magn: 148 g
Orka: 380 kcal
Fita: 22,7 g
Kolvetni: 33,5 g
Prótein: 12,3 g
Saffran
Sesar Naanwich með kjúklingalundum,
fersku salati, graskersfræjum, parmesa-
nosti og keisaradressingu
Magn: 400 g
Orka: 916 kcal
Fita: 70,4 g
Kolvetni: 40,8 g
Prótein: 29,6 g
Hamborgarafabrikkan
Fabrikkuborgari með 120 g hágæða
ungnautakjöti, osti, fersku, nýskornu
grænmeti og Fabrikkusósu.
Magn: 286 g
Orka: 545 kcal
Fita: 28,3 g
Kolvetni: 34,6 g
Prótein: 37,1 g
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Hitaeiningarnar segja ekki allt Fríða
Rún segir mikilvægt að taka mið af stærð
máltíðar og þeim næringarefnum sem
máltíðin inniheldur. MYND BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON
„Sjálfri finnst mér
meira sláandi
að sjá tölurnar fyrir
pepperóníveisluna frá
Domino's.