Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Side 21
Helgarblað 26.–28. júlí 2014 Umræða 21 Gjörólíkt á allan hátt Sigríður Gunnarsdóttir ræðir íslenska og franska matarmenningu. – DV Við eigum að slíta öllum stjórnmálalegum tengslum Birgitta Jónsdóttir vill slíta stjórnartengslum við Ísrael. – DV Ég hef enga skýringu á þessu stigi Halldór Halldórsson um fækkun kvenna í æðstu stöðum sveitarfélaga milli ára. – DV Húsnæðisvanda þarf að leysa M ikilvægasta verkefni rík­ isins í húsnæðismálum er að tryggja húsnæðis­ öryggi og gera fólki kleift að eignast húsnæði á við­ ráðanlegu verði. Á síðastliðnu ári hefur Samfylkingin lagt fram marg­ víslegar tillögur um nauðsynlegar aðgerðir, sem hafa því miður ekki hlotið brautargengi. Á sama tíma virðist sem ríkisstjórnin skilji ekki þann vanda sem við er að glíma eða hafi í það minnsta lítinn áhuga á að leysa hann. Leiguverð hefur hækkað mikið á undanförnum árum, meira en hús­ næðisverð og verðlag. Fjölskyldur velja frekar að leigja en að kaupa húsnæði og íbúðir eru í auknum mæli leigðar út til ferðamanna. Af­ leiðingin er sú að leigjendur verja of stórum hluta tekna sinna í leigu­ greiðslur. Í sumum tilvikum hafa fjölskyldur misst hóflegar leiguíbúð­ ir vegna verðhækkananna og líklega munu fleiri lenda í sama vanda. Of fáar íbúðir eru á leigumarkaði, jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem úti um allt land. Stjórnvöld verða að stöðva þessa þróun. Betri leigumarkaður Nýr meirihluti í Reykjavík undir for­ ystu Samfylkingarinnar hefur sett fram raunhæfar áætlanir um fjölg­ un leigu­ og búseturéttaríbúða um 2.500–3.000 íbúðir á næstu fimm árum. Sú stefna mun leiða til þess að fleiri hagkvæmir valkostir munu opnast fjölskyldum í húsnæðisleit. Ríkið þarf líka að koma að upp­ byggingu leigumarkaðar. Þess vegna lagði þingflokkur Samfylkingarinn­ ar fram tillögur um bráðaaðgerðir á Alþingi síðastliðið haust. Við þær var almennur stuðningur, en ríkis­ stjórnin treysti sér engu að síður ekki til að hrinda þeim í framkvæmd. Hækka þarf húsaleigubætur og taka upp eitt kerfi húsnæðisbóta. Þannig yrði bundinn endi á það óréttlæti að ríkið styðji eigendur húsnæðis meira (í formi vaxtabóta) en leigjendur (í formi húsaleigu­ bóta). Skýr ásetningur allra flokka um að þessi mismunun yrði afnumin mundi ein og sér greiða fyr­ ir fjármögnun leigufélaga. Byrjað var að hækka húsaleigubætur í tíð síð­ ustu ríkisstjórnar en ný ríkisstjórn fór af þeirri braut. Ríkið á að ganga fyrir samkomu­ lagi við sveitarfélög og aðila vinnu­ markaðarins um styrki til leigufélaga sem skuldbinda sig til langtíma­ reksturs og til að láta umfram arð ganga til frekari uppbyggingar á leiguhúsnæði. Nýta á ónýttar lóðir ríkisins til uppbyggingar á leiguhúsnæði. Gera á tekjur vegna útleigu einnar íbúðar undanþegna fjármagnstekjuskatti. Ef þessar tillögur verða að veruleika þá má stórauka framboð á leiguíbúðum og hraða uppbyggingu á heilbrigðum leigumarkaði. Í þing­ lokasamningum í vor tókst að halda tillögunum á lífi þegar þeim var vísað til ríkisstjórnarinnar. Í haust munum við ganga eftir svörum ríkisstjórnar­ innar um aðgerðir. Dýrmætur tími hefur tapast. Töfin bitnar á leigjend­ um og ungu fólki sem á engan kost til að komast í sína fyrstu íbúð. Lausnir ríkisstjórnarinnar Ríkisstjórnin var kosin út af loforð­ um í húsnæðismálum. Efndirnar eru rýrar. Skuldaniðurfellingar leysa ekki skuldavanda þeirra sem eiga við hann að glíma. Þvert á móti fær stór­ eignafólk og tekjuhæsta fólk lands­ ins mestar niðurfellingar. Fólk á leigumarkaði er skilið eftir en það er sá hópur sem býr við minnsta hús­ næðisöryggið og húsnæðiskostnað­ ur sem hlutfall af tekjum er hæstur. Fólk í búseturéttaríbúðum er líka skilið eftir. Þegar bent var á þessa aug­ ljósu ósanngirni vísuðu stjórnar­ liðar ítrekað til vinnu húsnæðis­ málaráðherra um framtíðarskipan húsnæðis mála. Í vor lauk þeirri vinnu án þess að nein fyrirheit væru um að neinu nýju fjármagni yrði veitt til þeirra sem helst þurfa á að halda. Ekkert um átak í uppbyggingu leigu­ íbúða eða fjölgun félagslegra íbúða. Engin fyrirheit um fjármagn til að hækka húsaleigubætur. Það er án efa jákvætt skref að þróa íslenska húsnæðiskerfið í átt til danskrar fyrirmyndar. En sú breyting leysir ekki allan vanda. Á meðan við erum föst með íslenska krónu og búum í haftaumhverfi munu íslensk heimili bera tvöfalt hærri kostnað af íbúðarkaupum en evrópsk. Þann langtímavanda þarf að leysa með að­ ild að ESB og upptöku evru. n „Fólk á leigumark- aði er skilið eftir en það er sá hópur sem býr við minnsta húsnæðisör- yggið og húsnæðiskostn- aður sem hlutfall af tekj- um er hæstur. Árni Páll Árnason formaður Samfylkingar Kjallari Myndin Gulur „ís“, eins og sólin Veðráttan á höfuðborgarsvæðinu og nánast landinu öllu hefur ekki verið íssölum hliðholl og sólin sjaldséður gestur. MYND HÖRÐUR SVEINSSON Mest lesið á DV.is 1 17 milljónir glataðar Engar eignir fengust upp í 17 milljóna kröfur sem lýst var í bú J-EinnÁtta ehf., einkahlutafélag Jóns Þórs Sigurðssonar. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta þann 16. apríl og er skiptum nú lokið. 41.966 hafa lesið 2 „Ég var ekki ein af þeim“ Þegar Olga Romanovich var fjögurra ára var henni rænt af mann- ræningjum. Hún var seld til sígauna- fjölskyldu, eða Rómafólks, sem greiddi mannræningjunum í gulleyrnalokkum fyrir hana. Nafni hennar var breytt og hjá nýju fjölskyldunni hét hún Maria Preyda. 38.772 hafa lesið 3 Æddi nakin inn á bens-ínstöð Afgreiðslukonu á bens- ínstöð í Póllandi brá heldur betur í brún þegar ung, nakin kona kom askvaðandi inn á stöðina á dögunum. 37.343 hafa lesið 4 Þurftu að skila inn skjali sem er ekki til Íslenskur maður og bandarísk eiginkona hans, sem er gengin fimm mánuði, hafa gefist upp á íslenskum útlendingayfirvöldum. Konan hefur ekki enn fengið dvalarleyfi hér á landi þrátt fyrir að umsókn um slíkt hafi legið inni hjá Útlendingastofn- un frá því síðastliðið haust. 35.992 hafa lesið 5 Þessi voru meðal farþega MH17 Fréttavefur BBC birtir í dag nokkrar frásagnir af fólki sem var um borð í flugi MH17 Malaysian Airlines, sem skotin var niður. Á meðan yfirvöld reyna að komast til botns í harmleiknum syrgja ættingjar og vinir farþeganna og hefur BBC tekið saman viðbrögð þeirra sem birst hafa á samfé- lagsmiðlum og í öðrum fjölmiðlum. 31.838 hafa lesið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.