Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Side 26
Helgarblað 26.–28. júlí 201426 Skrýtið Sakamál
J
ohn Felton Parish fæddist
4. júlí, 1933, í Dallas-sýslu í
Texas í Bandaríkjunum og
þegar þessi saga hefst hafði
hann aldrei komist í kast við
lögin. Þeir sem hann þekktu lýstu
honum sem hæglætismanni. Hann
hafði verið vörubílstjóri í tuttugu ár
og hafið störf fyrir Western-flutn-
ingafyrirtækið í september 1980,
eftir að hafa unnið fyrir Jewel T-
vöruhúsið um átta mánaða skeið.
En líf John hafði ekki verið dans
á rósum; hann var skilinn við eigin-
konu sína og hafði tapað í forræðis-
deilu vegna barna þeirra skömmu
áður en hann gekk berserksgang í
Grand Prairie í Texas og sallaði nið-
ur sex manns. Samstarfsfólk hans
hjá Jewel T hafði reyndar kvartað
yfir honum, sagði hann vera vand-
ræðagemsa og einn yfirmanna þar
krafðist þess að hann yrði tekinn úr
verktakastarfi sem Western-flutn-
ingafyrirtækið vann fyrir Jewel T, og
varð sú raunin.
Launadeilur
Ekki bætti það stöðu mála að John
hafði deilt við Western-flutninga-
fyrirtækið um hálfs mánaðar skeið
áður en hann greip til byssunnar;
deilan stóð um laun sem John taldi
sig eiga inni hjá fyrirtækinu, um
1.600 Bandaríkjadali. Eddie Ulrich,
yfirmaður hjá Western, hafnaði
þeirri fullyrðingu og fannst John,
að sögn bróður hans og vina, sem
hann væri hundsaður og var orðinn
dauðþreyttur á öllu saman.
Eitthvað brast hjá John Felton
þann 9. ágúst, 1982, og þegar upp
var staðið lágu sex manns í valnum
og þrír særðust í tveimur vöruhús-
um í Grand Prairie.
Lokatilraunin
Um áttaleytið að morgni 9. ágúst
kom John í byggingu Western og
hugðist ræða við Eddie Ulrich, gera
lokatilraun til að fá 1.600 dalina
sem hann taldi sig eiga inni. Í
farteskinu hafði John hálfsjálfvirka
skamm byssu og .38 kalíbera marg-
hleypu.
Þegar John sá fram á að hann
fengi sínu ekki framgengt lét hann
byssurnar tala og skaut Eddie og
vörubílstjóra, Martin Moran, og
Moody Smith framkvæmdastjóra,
sem einnig voru viðstaddir. Síðan
tók hann trukk traustataki og ók
neðar í götuna þar sem skrifstofur
Western voru til húsa.
„Þá ert þú dauð“
Þar beið John ekki boðanna og
skaut til bana ritarann Wywonne
Kohler of særði móttökudömuna
Ruth James og framkvæmdastjór-
ann Burnett Hart. Ruth fékk skot í
öxl og háls en Burnett var skotinn í
höfuðið.
John tók skrifstofustúlkuna
Vicki Smallwood í gíslingu um
stund meðan hann reyndi að finna
framkvæmdastjóra að nafni Mike.
„Ef hann er ekki við, þá ert þú
dauð,“ sagði hann við Vicki. Eftir
árangurslausa leit að Mike ákvað
John þó að sleppa Vicki því hún var
eiginkona kunningja John.
Næsta stopp; Jewel T
Að þessu loknu ók John til Jewel T-
vöruhússins sem var í um sjö kíló-
metra fjarlægð. Þegar hann síð-
an yfir gaf vöruhúsið lágu þar tveir
menn í valnum; Dave Bahl sölu-
stjóri og Rick Svoboda rekstrar-
stjóri. John setti byssuhlaupið upp
að kjálka Ricks og hleypti af skaut
hann síðan beint í andlitið.
Yfirmaður í sendingadeild Jewel
T, Robert Sarabia, særðist þegar
hann hljóp undan John en slapp
með skrekkinn.
John yfirgaf bygginguna og tók
stefnuna á vöruflutningabíl sem
var þar fyrir utan. Bílstjórinn, Carl
Lorentz, sá sitt óvænna og lagði
á flótta en braut á sér annan fót-
legginn í asanum.
Lögreglan skerst í leikinn
John tók vöruflutningabílinn og
yfirgaf athafnasvæði Jewel T og
ók, með lögregluna á hælunum,
á ofsahraða niður í miðbæ Grand
Prairie.
Eftir um tveggja kílómetra
eltingarleik kom John að vegatálma
sem lögreglan hafði komið upp. Þar
lenti hann í skothríð lögreglunn-
ar með þeim afleiðingum að hann
ók á eina lögreglubifreiðina og
einn lögreglumaður endasentist í
loftköstum þvert yfir veginn. Lög-
reglumaðurinn lifði af, en fékk gat á
lungun og margbeinbrotnaði.
John ók að lokum á annan bíl og
velti vöruflutningabílnum. Honum
tókst að komast úr úr bílnum og
með því að láta kúlunum rigna yfir
lögregluna tókst honum að komast
inn í nærliggjandi byggingu.
Skotfæri John voru nánast upp-
urin og tæpum hálftíma eftir að
hann banaði Eddie Ulrich féll fyrir
skotum lögreglunnar. n
Blóðugur
n John fannst hann illa svikinn af vinnuveitanda n greip til byssunnar„Ef hann er
ekki við,
þá ert þú dauð.
hálftími
Hæglætismaður
John Felton Parish
snappaði að lokum
Western Transport John Felton Parish ók sem óður væri niður í miðbæ Grand Prairie þar
sem hildarleiknum lauk.