Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Page 30
Helgarblað 26.–28. júlí 201430 Lífsstíll
F
jallaskálinn á Hveravöllum
var þéttsetinn þegar Hjalti
Gunnarsson, hestamaður og
öræfajarl, hélt þar upp á 60
ára afmæli sitt í liðinni viku.
Margir vina hans voru komnir langt
að þrátt fyrir að um einhvern verst
hirta þjóðveg landsins væri að fara.
Fer vikulega yfir Kjöl
„Ég er ánægður með hvað margir
komu og þrátt fyrir að ekkert sé
hugsað um veginn hingað ákvað ég
að halda veisluna hérna, mér þykir
vænt um Hveravelli,“ segir Hjalti.
Hann hefur öðrum oftar riðið yfir
Kjöl, fór fyrst árið 1974, tvítugur að
aldri, með félögum sínum úr Gnúp-
verjahreppi á Landsmót hesta-
manna í Skagafirði. Síðan hefur
hann farið leiðina að minnsta kosti
200 sinnum.
„Ég fór mikið með ferðafólk
og var leiðsögumaður hjá hesta-
mannafélögum sem vildu fara
þessa leið, en árið 1992 byrjaði ég að
fara hér um reglulega með útlenda
ferðamenn og síðustu tólf árin hef
ég farið vikulega yfir Kjöl, tíu vikur
á ári.“
Rifjuðu upp ferðir
Sumir þeir sem héldu ræður í afmæl-
inu rifjuðu upp ferðir með Hjalta og
lýstu hinu tignarlega stóði þegar
tugir hesta skeiðuðu um óbyggð-
irnar. Sögðu að hvergi í víðri veröld
væri eins gaman og á Hveravöllum,
nema hvað stöku morgnar gætu ver-
ið erfiðir. Raddsterkir Skagfirðingar
voru mættir og tók vel undir í kofan-
um en Hjalti sagði kofann hafa þolað
öll veður í áratugi svo líklega stæð-
ist hann hinn hljómmikla söng. Því
var haldið fram að ferð yfir Kjöl án
Hjalta væri eins og áma án áfengis.
Ferðafólk hefur lýst ferðum
með honum um Kjalveg í litlu
skyggni og dimmum veðrum. Þeir
sem til þekkja telja að ratvísi hans
nálgist það sem Fjalla-Eyvindur var
þekktur fyrir.
Áreiðanlegri en GPS-tæki
„Ég þekki leiðina orðið nokkuð
sæmilega og er þokkalega ratvís.
Get meira að segja státað af því að
hafa ratað betur en GPS-tæki. Fyrir
tveimur árum fórum við nokkr-
ir ríðandi í slóð Reynistaðarbræðra
að Beinhóli. Vinur minn mikill var í
fararbroddi með GPS-tækið. Þegar
leið á ferðina fór ég að ókyrrast yfir
stefnunni og nefndi það en var um-
svifalaust kveðinn í kútinn. Við ætt-
um bara 300 metra eftir og ég skyldi
bara vera rólegur. Loks kom að þar
sem tækið pípti og sagði okkur vera
komna, en það var enginn Bein-
hóll. Ég sneri hópnum við og eftir
tvo kílómetra stóðum við í þreifandi
byl við sjálfan Beinhól. Ég hef aldrei
villst í hestaferðum þó stundum hafi
skyggnið verið lítið,“ segir Hjalti.
Vill á eftir Eyvindi
Í þessum ferðum Hjalta yfir Kjöl eru
fyrst og fremst útlendir ferðamenn
sem vilja komast í snertingu við
óravíddir öræfanna og njóta fjör-
legra frásagna af útilegumönnum,
svaðilförum og framliðnu fólki sem
fylgir þeim hvert fótmál.
Eyvindur Jónsson úr Hlíð í
Hrunamannahreppi og sveitungi
Hjalta deilir stórafmæli með hon-
um en Eyvindur hefði orðið 300
ára á þessu ári. Til heiðurs þessum
mesta og sannasta útilegumanni
þjóðarinnar komu Hvervellingar
upp minningaskildi um Eyvind.
Hjalti afhjúpaði skjöldinn og hélt
stutta tölu um samkennd sína með
Eyvindi.
„Eyvindur var afsettur af kerfinu,
hann var svo sannarlega fangi frels-
isins. Kannski síðastur Íslendinga til
að hafna okinu og skóp sér líf úti-
legumannsins með henni Höllu
sinni. Þau hafa sýnt okkur öðrum
betur hvernig ástin blómstrar í frels-
inu,“ sagði Hjalti.
„Eins og allir vita eru Hveravellir
höfuðból þeirra og hér reis ástin
þeirra kannski hæst. Mig hefur oft
langað á eftir Eyvindi; yfirgefa allt
þetta kerfi sem þrengir sér upp á
mann og meira að segja þarf maður
að borga fyrir alla afskiptasemina.
Þau Eyvindur og Halla eru fyrir-
mynd sem vert er að huga að. Ég er
þess fullviss að við eigum sama af-
mælisdag og því held ég upp á af-
mælin okkar og hver veit nema ég
eigi eftir að leggjast út með henni
Ásu minni.“ n
Guðmundur Sigurðsson
Á afmæli með
Fjalla-Eyvindi
n Hjalti öræfajarl sextugur n Gæti hugsað sér að verða útilegumaður
Kjötsúpa Ása Dalkaris, eiginkona Hjalta,
hrærir í einum kjötsúpupottinum af þremur.
Veislugestum var borin verulega góð kjöt-
súpa og talið að sjálfur Fjalla-Eyvindur hefði
ekki gert hana betri.
Skjöldur afhjúpaður Hjalti Gunnarsson, Gunnar Guðjónsson, skálavörður, og Heiða
Lovísa Gunnarsdóttir við minningarskjöld um Fjalla-Eyvind.
Hamingjusöm á
Hveravöllum Afmælis-
barnið með henni Ásu
sinni í fjallakofanum.
Fimm öpp fyrir
líkamsræktina
Það er ekki óalgengt að sjá fólk
með símana sína í ræktinni nú á
dögum, enda eru fjölmörg snjall-
símaforrit sérstaklega hönnuð
með líkamsrækt í huga. Það er
því ekki úr vegi að nýta sér tækni
nútímans til að ná betri árangri
í líkamsræktinni, fylgjast með
framförum og fá hvatningu til að
mæta.
n Official 7 Minute
Workout App
Þetta sniðuga snjallsímaforrit
inniheldur 36 ólíkar æfingar og
13 skipulögð æfingaprógrömm
auk þess sem notendum gefst
kostur á að hanna sitt eigið sjö
mínútna æf-
ingaplan.
Þannig get-
ur hver og
einn valið
æfingar sem
honum henta
auk þess að
ákvarða lengd
hvíldarpása á milli æfinga og
fjölda endurtekninga í hverri æf-
ingu. Þá er einnig hægt að velja
þá tónlist sem viðkomandi vill
hafa með æfingunum.
n SixPackAbs
Ókeypis
snjallsíma-
forrit sem
veitir not-
endum
aðgang að
leiðbeining-
um að rúmlega
20 styrkjandi æfingum. Æfingarn-
ar eru sýndar með tölvugerðum
fígúrum en farið er nákvæmlega í
hvernig framkvæma á hverja æf-
ingu til að tryggja að réttri tækni
sé beitt og minnka meiðslahættu.
n Gym PocketGuide
Þetta snjallsímaforrit býður
upp á fjölda ólíkra æfinga-
prógramma sem byggjast á því
sem notandinn hefur valið, svo
sem vöðvauppbyggingu eða
grenningu. Öll prógrömmin eru
aðgengileg hvort sem síminn
er tengdur við net eður ei og
því fullkomið app til að nota í
ræktinni. Í forritinu eru einnig
nákvæmar leiðbeiningar með
æfingum ásamt myndum og
hlekkjum að leiðbeiningamynd-
böndum með hverri æfingu.
n Strenght Calc Natty Edition
App sem er sérstaklega hannað
með lyftingafólk í huga. Hægt er
að velja um nokkrar ólíkar lyft-
ingarútínur sem og
ólík matarplön
eftir því hvern-
ig mataræði
hver notandi
vill vera á.
Þá er hægt að
setja inn hæð,
þyngd, aldur og
þær þyngdir sem viðkomandi er
að lyfta og fylgjast nákvæmlega
með framförum.
n MapMy
Fitness
Afar gagnlegt
app fyrir fólk
sem hreyfir sig
utandyra. Hægt
er að velja á milli
um 600 ólíkra æfinga en auk þess
má velja úr fjölda ólíkra leiða til
að ganga, hlaupa eða hjóla. Þá
geta notendur einnig fengið allar
upplýsingar um líkamsræktina,
svo sem vegalengd, tíma og
fjölda brenndra hitaeininga svo
eitthvað sé nefnt.