Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Page 40
Helgarblað 26.–28. júlí 201440 Fólk
Reka
lestina
Í sjötta sæti listans er
breski sjarmörinn Liam
Neeson, Ben Affleck í því
sjöunda, Christian Bale
í áttunda, Will Smith
í níunda og Íslands-
vinurinn Mark Wahlberg
í tíunda. Allir eru þeir með
um og undir fjóra milljarða í tekjur.
Robert Downey Jr. toppar Forbes-tekjulista yfir karlleikara
R
obert Downey Jr. þénaði
mest allra karlleikara í
Hollywood á tímabilinu júní
2013 til júní 2014, eða tæp-
lega níu milljarða króna.
Vinsældir Iron Man 3 riðu ekki við
einteyming á tímabilinu og skiluðu
leikaranum, sem var með ákvæði í
samningnum sem tryggði honum
hluta ágóðans, góða fúlgu. Leikar-
inn þarf að líkindum ekki að leggja
allan peninginn fyrir því mögur ár
virðast ekki í augsýn; á næsta ári
kemur út Avengers: Age of Ultron
þar sem Downey fer aftur í járnbún-
inginn ásamt fleiri hetjum og berst
við ofurskúrka. Síðasta myndin um
Avengers-teymið er þriðja tekju-
hæsta mynd sögunnar. n
ritstjorn@dv.is
The Rock Í öðru sæti listans situr glímugarpurinn
fyrrverandi Dwayne Johnson – The Rock – með tæpa sex milljarða.
Myndir kappans fá iðulega slæma útreið hjá gagnrýnendum en
skila löngum biðröðum að miðasölunni.
Bradley Cooper Í þriðja sæti er kyntröllið
Bradley Cooper með ríflega fimm milljarða. Leikarinn sló í gegn í
Hangover-myndunum en blómstraði fyrst sem listamaður í Silver
Linings Playbook og American Hustle. Hann var tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í þeim báðum.
Þessir þéna mest í
HOLLYWOOD
DiCaprio Í fjórða sæti er Leonardo DiCaprio með tæpa
fimm milljarða. Á tímabilinu sem um ræðir sló hann í gegn með The
Wolf of Wall Street, mynd sem var hans eigið hugarfóstur og hann
framleiddi sjálfur.
Chris Hemsworth Í fimmta sæti situr
þrumuguðinn Þór sjálfur – Chris Hemsworth – en ofurhetju-
myndirnar frá Marvel skila aðalleikurum þeirra iðulega ágætri
summu í aðra hönd. Hann þénaði rúma fjóra milljarða.
Fékk krókódíl í fæðingargjöf
Georg prins hlaðinn gjöfum
G
eorg prins, frumburður þeirra
Vilhjálms og Katrínar, hertoga
og hertogaynju af Cambridge,
átti eins árs afmæli á dögunum.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur drengur-
inn verið hlaðinn gjöfum frá fæðingu
og eru þær svo sannarlega ekki af verri
endanum, en gjafirnar koma frá hvorki
fleiri né færri en 48 löndum. Þannig
fékk prinsinn til að mynda krókódíls-
unga í fæðingargjöf frá Norðursvæð-
inu í norðurhluta Ástralíu. Krókó-
dílsunginn, sem ber sama nafn og
prinsinn, kom í heiminn sama dag og
tilkynnt var um þungun Katrínar en
þar eð ekkert náttúrulegt saltvatn er að
finna í námunda við Kensington-höll
mun krókódíllinn halda kyrru fyrir
í Ástralíu. Georg litli prins mun svo
fá árlegar fréttir af nafna sínum hin-
um megin á hnettinum auk þess sem
hægt er að fylgjast með krókódílnum
á Facebook, enda kominn með sína
eigin síðu á samskiptamiðlinum.
Georg krókódílsungi er þó ekki
eina dýrið sem prinsinn hefur feng-
ið að gjöf síðastliðið ár. Jarðkettirnir
Georg, Alexander og Lúðvík – sem
saman mynda fullt nafn prinsins –
voru til dæmis gjöf frá Dudley and
West Midlands Zoological Society
auk þess sem ættbálkur í Samburu
í Kenía gaf Georg geit og naut sem,
ásamt fjórum kvígum, verða notaðar
til að stofna konunglega hjörð. n
horn@dv.is
Afmælisveisla Georg krókódíll hélt upp
á eins árs afmæli nafna síns, en þessi mynd
birtist á Facebook-síðu hins fyrrnefnda.
Vinsæll Gjafirnar sem Georg litli hefur fengið síðastliðið ár eru ekki af verri endanum.
North West tók
sín fyrstu skref
Hið mikla stjörnubarn North
West, dóttir Kim Kardashian og
Kayne West, vex fljótt úr grasi.
„Stúlkan okkar var að klára
vikulangt sundnámskeið í dag og
eftir að því lauk tók hún sín fyrstu
skref um leið og hún kom upp úr
sundlauginni. Mamma og pabbi
eru svo stolt af þér,“ sagði Kim í
vikunni og bætti við ófáum upp-
hrópunarmerkjum.
Hún sagði heimsbyggðinni
tíðindin með því að deila mynd af
þeim mæðgum á Instagram, þar
sem North West er umvafin gulu
handklæði eftir sundnámskeiðið.
Ólán Robins
Thicke
Hjónabandi tónlistarmanns-
ins Robins Thicke virðist vera
endanlega lokið. Hann og Paula
Patton skildu að borði og sæng í
febrúar á þessu ári vegna þess að
Robin var sífellt að daðra við aðr-
ar konur og klípa í afturendann á
þeim. Þau virðast ekki hafa getað
unnið úr þeim vandamálum því í
vikunni var hús þeirra í Los Ang-
eles í Bandaríkjunum sett á sölu.
Paula hefur ekki búið í húsinu
síðan í febrúar.
Ekki er víst hvort þau hafi ráð-
ið sér skilnaðarlögfræðinga til
að sjá um málið. Thicke segir að
hann verði ekki sá sem sækir um
skilnað. Hún þurfi að gera það,
vilji hún skilja við hann. Hann
viðurkennir þó að hann sé hættur
að biðja hana fyrirgefningar og
ætlar að halda áfram með líf sitt.
Robin Thicke virðist almennt
ekki eiga sjö dagana sæla því auk
alls annars selst nýjasta plata
dónakarlsins, sem gerði garðinn
frægan með lagi um þokukennd-
ar línur, afar illa.
Britney á
stefnumóti
Britney Spears gerði sér glaðan
dag með kærastanum sínum, Dav-
id Lucado, á miðvikudaginn. Parið
skellti sér á rómantískt stefnumót
og birti Britney meðfylgjandi
mynd á Instagram-síðu sinni í til-
efni þess. Britney og David hafa
verið saman í nokkra mánuði
og virðast hamingjusöm saman
þrátt fyrir orðróm þess efnis að
sambandið standi á brauðfótum.
Það er nóg að gera hjá Britney
um þessar mundir og má meðal
annars vænta nærfatalínu hennar.