Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 14
Ó lafs Ragnars Grímssonar, for- seta Íslands, mun verða minnst fyrir það, öðru fremur, að hafa fært valdið til fólksins. Upp- hafið má rekja til þess að spillt stjórnvald vildi koma á fjölmiðlalög- um í því skyni að koma höggi á einn tiltekinn aðila. Alþingi samþykkti lög- in en forseti Íslands greip í taumana. Í fyrsta sinn í lýðveldissögunni skyldi vísa máli til þjóðaratkvæðagreiðslu. Gjá var milli þings og þjóðar og taldi Ólafur Ragnar að þjóðin ætti að ráða. Áður en til þess kæmi að þjóðin kvæði upp úrskurð sinn var málið allt saman dregið til baka. Forsetanum var for- mælt af þáverandi forsætisráðherra og fylgismönnum hans fyrir að voga sér að grípa inn í ákvarðanir með þessum hætti. Nokkrum árum síðar var komin ný stjórn og gamli forsætisráðherr- ann farinn frá völdum. Þá voru gerð- ir samningar um Icesave-skuldina illræmdu. Forsetinn komst að sömu niðurstöðu og í fjölmiðlamálinu og vísaði málinu til þjóðarinnar sem hafnaði samningnum. Sama mál fór síðan í nýjum búningi til þjóðar- innar sem sagði nei. Það merki- lega var að þeir sem formæltu for- setanum í fjölmiðlamálinu hófu hann að þessu sinni nú til skýjanna. Vinstrimennirnir sem höfðu fagn- að í fjölmiðlamálinu tóku til við að hallmæla þeirri útfærslu valdsins að leyfa fólkinu í landinu að eiga síð- asta orðið. „Bara ef það hentar mér,“ sungu Stuðmenn á sínum tíma. Það var heimskulegt á sínum tíma að djöflast í forsetanum fyrir að vilja brúa gjána milli þings og þjóð- ar. Þarna var stigið eitt stærsta skref til aukins lýðræðis á síðari tímum. Kjarni málsins liggur ekki í einstökum málefnum heldur því að fólkið fengi að ráða fremur en fulltrúarnir. Samn- ingurinn um Icesave var ekkert að- alatriði fremur en lögin um fjölmiðl- ana. Byltingin lá í því að færa valdið til almennings. Með þessu markaði forsetinn spor sín í íslenska stjórnmálasögu og verð- ur hans lengi minnst fyrir. Óþægilegra er að hann notaði ekki vald sitt þegar umdeild breyting á veiðileyfagjaldi átti sér stað. Tugþúsundir áskorana skiptu ekki máli og gjáin milli þings og þjóðar varð aukaatriði. Þá var falskur tónn í lýðræðisbyltingunni. Nú liggur í loftinu að ráðandi öfl í landinu ætli að svipta fólkið réttin- um til að velja á milli þess að vera innan eða utan Evrópusambandsins. Utanríkisráðherra og fleiri þunga- vigtarmenn innan Framsóknarflokks hafa lýst því að þeir telji ástæðulaust að kjósa um það hvort aðildarferlið að Evrópusambandinu haldi áfram. Og þetta segja þeir þótt yfirlýsingar beggja stjórnarflokkanna hafi verið kristaltærar. Yfirlýsingar valdamanna Fram- sóknarflokksins boða valdníðslu gagnvart fólkinu í landinu. Sömu menn og töldu nauðsynlegt að þjóðin greiddi atkvæði um Icesave segja nú að þeir sjái ekki tilgang í því að fólkið fái að útkljá það hvort Ísland heldur áfram viðræðum við ESB. Allt í einu skiptir þjóðarviljinn ekki máli. „Bara ef það hentar mér,“ er söngurinn. Það skiptir engu hvort menn vilja vera innan eða utan Evrópusam- bandsins. Fólkið á að ráða framgangi málsins. Farvegurinn er aðalatriðið og sú niðurstaða sem þannig fæst er líkleg til að skapa frið um þetta deilu- mál. Afstaða kjósenda til samning- anna um Icesave skipti engu. Aðal- atriðið var að knýja fram úrslit með þjóðaratkvæðagreiðslu. Og það varð sátt um niðurstöðuna. Þannig er það best. n Sandkorn Amma á biðlaunum n Þingmaðurinn og ráðherr- ann fyrrverandi, Siv Friðleifs- dóttir, stendur á tímamótum í lífi sínu eftir að hún hætti þingmennsku. Siv, sem er á besta aldri, varð amma fyrir tveimur vikum þegar sonur hennar Húnbogi Þorsteinsson varð pabbi. Um það hefur ver- ið rætt að Siv tæki að sér starf á erlendri grundu en af því hefur ekki orðið. Siv býr yfir gríðarlegri þekkingu á stjórn- sýslu og víst að hún mun fá vinnu áður en biðlaunatím- inn rennur út í nóvember. Undrandi sjallar n Gunnar Bragi Sveinsson utan ríkis- ráðherra á ekki sjö dag- ana sæla. Yfirlýsingar hans um að ástæðulaust sé að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB hafa farið fyrir brjóstið á áhrifamönnum í Sjálf- stæðisflokknum. Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Vilhjálm- ur Bjarnason hafa bæði lýst undrun á stefnu Fram- sóknarflokksins í þessum málum. Reiknað er með að Gunnar Bragi verði tekinn á beinið og málið afgreitt. Aðal hjá Davíð n Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun- blaðsins, hefur ýmis- legt við fréttastofu RÚV að athuga eins og fram hefur komið í fjölmörgum leiðurum blaðsins. Á mánu- daginn fjallaði leiðarinn um það að fréttamenn RÚV fjölluðu af ástríðu um ESB og settu þá gjarnan stuðn- ingsmenn aðildar á oddinn. Eins og margoft áður vitn- aði Davíð þar í Pál Vilhjálms- son fjölmiðlafulltrúa sem rannsakaði tíðni ESB-frétta á RÚV. Páll er greinilega einn af helstu vitringum Íslands í augum ritstjórans aldna. Aldrei Samherji n Björn Valur Gíslason, fyrr- verandi þingmaður, er ókát- ur með að Guðmundur Hörð- ur Guðmundsson, bloggari á DV.is, hafi nefnt stöðu hans sem bankaráðsmaður Seðlabanka og sjómennsku hans undir flaggi Samherja sem dæmi um samkrull stjórnmála og atvinnulífs. Samherji er til rannsóknar hjá bankanum. Björn Valur fór í veiðiferð á Birtingi NK sem er í eigu Síldarvinnsl- unnar sem aftur er í 45 pró- senta eigu Samherja. „Ég hef aldrei verið á launaskrá hjá Samherja …,“ bloggar Björn Valur en útilokar ekki að svo verði síðar, „enda væri það enginn glæpur“. Ég man sárs- aukann Við erum ekki bara að sýna okkur Svavar Jóhannsson reyndi að svipta sig lífi með því að kveikja í sér. – DV Ari Edwald segir fjölmarga hafa haft samband vegna fjarskiptaþjónustu 365. – DV „Bara ef það hentar mér“„Það var heimsku- legt á sínum tíma að djöflast í forsetanum „Með því að stöðva ferlið upp á sitt eins- dæmi er utanríkisráðherra að skapa hættulegt for- dæmi lögleysuÞ egar lögð er fram þingsályktun á þingi og samþykkt, þá er ríkisstjórninni falið að fram- kvæma það sem ályktað er um. Ekki er lögum samkvæmt hægt að hunsa slíka ályktun án samþykktar þingsins. Þingsályktanir eru ekki bundnar við ríkisstjórnir heldur þingið sjálft. Þannig yfirfærist það sem ályktað var á milli ríkisstjórna nema að lögð sé fram ný ályktun þar sem farið er þess á leit að þingið samþykki í hefð- bundnu þinglegu ferli að fella úr gildi það sem þingið áður ályktaði um og samþykkti. Allt undir Það ferli sem núverandi utanríkisráð- herra Gunnar Bragi Sveinsson hefur sett í gang, sniðgengur algerlega vilja þingsins og þá ályktun sem var sam- þykkt árið 2009 um að Ísland myndi hefja aðildarviðræður við Evrópu- sambandið. Með því að stöðva ferlið upp á sitt einsdæmi er utanríkisráð- herra að skapa hættulegt fordæmi lögleysu sem ekkert löggjafarþing í lýðræðisríki ætti að sætta sig við. Ekki nóg með það þá er ráðherrann með- vitað eða ómeðvitað að setja fordæmi sem að veikja hið þinglega ferli og allar aðrar ályktanir sem þingið hef- ur samþykkt. Það er í mínum huga hættulegt fordæmi sem ég get ekki sætt mig við. Mér finnst því eðlilegt að þing- menn ríkisstjórnarinnar leggi fram þingsályktun um að slíta viðræðun- um og fari með þetta mál í gegnum ferli sem er lögformlega rétt því annars má segja að verið sé að yfir- færa vald til ráðherra sem stangast á við grundvallarreglu okkar lagasetn- ingaferlis og hlýtur að innibera stór- kostlega hættu ef það nær fram að ganga án aðkomu þingsins. Það er mikilvægt að hafa í huga að í valdatíð síðustu ríkisstjórnar tókst að endur- heimta eitthvað af völdum löggjafans sem áður hafði þróast í stimpilstofn- un á lög sem komu úr ráðuneytun- um. Þessi þróun er ekki bara aftur- hald heldur skaðleg þeirri jákvæðu þróun sem við urðum að fara í sem þjóð til að fyrirbyggja að sérhags- munaöfl myndu leiða okkur inn í annað hrun. Ég skora því á þingmenn stjórnar- flokkanna að leggja fram þingsálykt- un í september sem tekur af vafa um hvort að þingið sé tilbúið að slíta við- ræðunum á lögformlegan máta. Ljóst er að ríkisstjórnin þorir ekki með þetta mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kjósum bara um þetta Sjálfstæðisflokkurinn lofaði kjósend- um sínum að kosið yrði um áfram- hald á aðildarviðræðum okkar. Það er spurning hvort að þingmenn ríkis- stjórnarflokkanna séu ráðherrunum hugrakkari. En yfirlýsingar utanríkis- ráðherra um að það standi ekki til að kjósa samhliða sveitarstjórnarkosn- ingum eða á þessu kjörtímabili er ekki í samræmi við það sem formað- ur Sjálfstæðisflokksins hefur lofað. Það ber að reyna á hvort að það sé ekki vilji í þingheimum til að leyfa þjóðinni að hafa síðasta orðið í þessu ferli og afgreiða tillögu þar að lútandi frá fyrrverandi utanríkisráðherra sem liggur fyrir þinginu. p.s. Ég vil taka það fram að ég hef ekki gert upp hug minn gagnvart að- ild að ESB. Það mun ég ekki gera fyrr en þessu ferli er lokið. Það er ekki hægt að vega og meta kosti og galla nema að við klárum þetta ferli og sjá- um svart á hvítu hvernig samningar takast til. Ég kalla eftir umræðum um ESB sem innibera ekki að sambandið sé annað hvort algóður Frelsari eða Satan, það er nefnilega hvorugt.n Lögleysa Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Fréttastjóri menningar: Símon Birgisson (simonb@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 21. ágúst 2013 Miðvikudagur Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is M y n D : S iG tR y G G U R A R i M y n D SiG tR y G G U R A R i Kjallari Birgitta Jónsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.