Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 27
Fólk 27Miðvikudagur 21. ágúst 2013 Skúli um sambandið: „Lífið er gott“ n Rikka og Skúli virðast sátt við tilveruna „Ég hef örugg- lega sett met í bjúgsöfnun“ Ragnheiður Ragnarsdóttir, sund­ drottning og fyrirsæta, segist hafa þyngst um 45 kíló er hún gekk með fyrsta barn sitt. Mestu bætti hún á sig síðasta mánuðinn, eða 20 kíló­ um. Ragnheiður var í ákaflega góðu formi áður en hún varð barns­ hafandi og lýsir því hvernig henni gengur að koma sér í form á á bloggi sínu á Smartlandi, mbl.is. „Ég efast nú um að þetta sé það mesta sem kona hefur þyngst um á meðgöngu en jú, þetta er með því meira sem maður hefur heyrt um,“ segir Ragnheiður. „Ég hef örugglega sett met í bjúgsöfnun. Ég stend í því núna að ná af mér því sem eftir er af þess­ um aukakílóum,“ segir Ragnheiður. S kúli Mogensen og Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, eru glæsi­ legt nýtt par. Þau sáust fyrst saman á galaforsýningu 2 Guns og þá sáust þau ganga saman í Esju­ hlíðum nýlega. Skúli sjálfur vildi lítið ræða um sambandið við blaða­ mann DV en sagði þó sæll og glað­ ur: „Lífið er gott.“ Einhverjir myndu eflaust kalla þau Rikku og Skúla stjörnupar enda bæði afar þekkt í íslenskum fjöl­ miðlum og vekja alls staðar athygli. Rikka hefur unnið við þáttagerð á Stöð 2, en síðastliðinn vetur var hún einn af dómurum þáttarins Masterchef. Hún hefur einnig ver­ ið með matreiðsluþætti undir eig­ in nafni, skrifað bækur og fram­ leitt eftirrétti á sömu forsendum. Þá eru ógleymd bollakökunámskeið hennar sem voru afar vinsæl. DV greindi frá því fyrr í sumar að Skúli Mogensen væri annar auð­ ugasti maður landsins. Hann kom eins og stormsveipur inn í íslenskt viðskiptalíf í kjölfar hrunsins, en hann hafði áður búið í Kanada og byggði þar upp hugbúnaðarfyrir­ tækið OZ að nýju. Hann seldi fyrir­ tækið til Nokia árið 2008 og flutti hingað heim. Hann keypti hlut í MP banka og Advania en hefur undan­ farið einbeitt sér að því að byggja upp flugfélagið WOW air. n Barnalán sálufélaga Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Kristján Guy Burgess sem felldu hugi saman í ríkisstjórnarsam­ starfi Vinstri grænna og Samfylk­ ingar eignuðust sitt annað barn á dögunum, fallega dóttur. Rósa Björk var nýlega í viðtali við DV og sagðist hafa fundið sálufélaga í unnusta sínum Kristjáni. Fyrir eiga þau soninn Bjart og Rósa á dóttur frá fyrra sambandi. Parið á því miklu barnaláni að fagna og mikil gleði á heimilinu með nýjasta fjölskyldumeðliminn. Mynd SigtRygguR ARi Mynd thoRRi K itty Von­Sometime og unnusta hennar, Yessi Alex­ ander, festu ráð sitt á dögun­ um og héldu afslappaða brúðkaupsveislu við gömlu höfnina í Reykjavík. Parið ástfangna hafði ekki ráð á stórri veislu en þær Kitty og Yessi voru hæstánægðar með stóra daginn. „Við áttum ekki mikinn pening, fjölskyldur okkar beggja búa erlendis en nánustu vinir okkar voru með okkur. Við ætlum svo að halda stærri veislu að ári liðnu.“ Kitty var í skósíðum, plíseruðum hvítum kjól. „Þetta er kjóllinn sem ég klæddist á fyrsta stefnumótinu okk­ ar.“ Vill ekki skilja að föður og dóttur Kitty er bresk listakona sem hefur verið búsett á Íslandi í sjö ár og á fjögurra ára dóttur frá fyrra sam­ bandi með söngvaranum Dan­ íel Ágústi. „Ættingjar mínir og vin­ ir í Bretlandi spyrja mig oft hvers vegna ég flytji ekki af landi brott, sér í lagi í kjölfar efnahagshrunsins. En dóttir okkar Daníels er ástæðan. Ég vil ekki taka hana frá honum. Mér líkar einnig vel að ala upp barn á Ís­ landi.“ Varð fyrir rasisma Hún vakti athygli á dögunum sem sérstakur bjargvættur miðborgar­ innar þegar hún kom upp um unga skemmdarvarga sem gengu ber­ serksgang á Ingólfstorgi. Tók hún upp myndband af spellvirkjunum og setti það á Facebook. Myndbandið fór sem eldur í sinu um netheima og rataði í fréttir landsmanna. Síðar þakkaði sjálfur miðborgarstjórinn, Jakob Frímann Magnússon, Kitty fyrir vasklega framgöngu. „Ég var ekki hissa á því hversu mikið mynd­ bandinu var dreift, þetta er Ísland. En ég vildi ekki heldur að þessum drengjum liði illa. Vinkona mín benti mér hins vegar á að ef ég hefði ekki gert þetta þá hefðu þeir ekki séð eftir þessu.“ Drengirnir gerðust uppvísir að kynþáttahatri í hennar garð. Ég er með þykkar augnabrýr og þeir gerðu eins konar múslimagrín að mér. Mér varð óglatt við það, ég hef aldrei lent í rasisma á Íslandi áður.“ Konurnar í lífi Kitty Þekktust er Kitty þó fyrir The Weird Girls Project, sem er röð verka eða myndbandsþátta þar sem konur eru í forgrunni. Hver þáttur er einstakur og byggist upp á ákveðinni hug­ myndafræði. Nú er á lokastigum heimildarmynd um Kitty og verk­ efnið sem heitir I want to be Weird. „Kvikmyndagerðarfólk hefur fylgt mér eftir í verkefnum mínum síðustu ár og úr varð þessi mynd um mig og konurnar í lífi mínu,“ segir hún og hlær en markmið verkefnisins er meðal annars að styrkja sjálfstraust kvenna og fá þær til að sleppa fram af sér beislinu. „Næst á dagskrá er að vinna næsta verkefni The Weird Girls hér á landi. Það er alltof langt liðið síðan síðast og þær bíða óþreyjufullar eftir að það fari í gang. Ég er einmitt núna í Megastore í Smáralind að skoða leikmuni í verkefnið,“ segir Kitty glöð í bragði. n Bjargvættur miðborgar Kitty fékk þakkir frá Jakobi Frímanni miðborgarstjóra fyrir vasklega framgöngu. Fallegar brúðir Kitty gifti sig í kjólnum sem hún klæddist á fyrsta stefnumótinu með Yessi. Afslöppuð brúðkaups- veisla við höfnina n Kitty Von-Sometime og Yessi giftu sig María Lilja í sjónvarpið Miklar hræringar hafa verið á Fréttablaðinu síðustu vikur. Mar­ ía Lilja Þrastardóttir mun færa sig um set af Fréttablaðinu og verð­ ur í vetur fréttakona í fréttatíma Stöðvar 2. María Lilja hefur fleiri járn í eldinum en í vetur verður hún einnig með útvarpsþáttinn Barmageddon á X­inu í félagi við Sunnu Ben ljósmyndara. Í þættin­ um munu þær fjalla um tónlist kvenna og rímar nafnið skemmti­ lega við þáttinn Harmageddon á sömu stöð. glöð saman Rikka og Skúli hafa sést saman hér og þar undanfarið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.