Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Side 10
10 Fréttir 28. ágúst 2013 Miðvikudagur Sefur í rjóðri og safnar rusli n Kona á sjötugsaldri sefur úti allan ársins hring n Haldin söfnunaráráttu n Vill fá að vera í friði S kammt frá skarkala miðbæj- arins er trjárjóður. Himinhá og vígaleg grenitré ramma inn rjóðrið og í fyrstu virðist ekkert óvenjulegt þar að sjá. Þegar nánar er að gáð sést lítill göngu- stígur inn í rjóðrið og þegar nær dreg- ur glittir í nokkra litríka plastpoka. Þar fyrir innan hefst við íslensk kona á sjötugsaldri. Konan er heimilis- laus og hefur undanfarin 1–2 ár búið í rjóðrinu. Þar hefur hún sankað að sér rusli en konan hefur um árabil verið haldin söfnunaráráttu sem lýsir sér í því að hún sankar að sér heimil- issorpi. Konan er ekki fátæk en vegna söfnunaráráttu sinnar fær hún ekki íbúð leigða þar sem líklega fáir kæra sig um að láta safna heimilissorpi í íbúð sína. Flestir þeirra sem eru heimilislausir á Íslandi eru það vegna fíknivanda en konan stríðir ekki við slíkan vanda og hefur aldrei gert. Sefur í rjóðrinu Vegna þessara aðstæðna hefur kon- an komið sér fyrir í þessu trjárjóðri hér í miðri Reykjavík. Hér vita fáir af henni þrátt fyrir að rjóðrið sé staðsett rétt við eina fjölförnustu umferðar- götu landsins. Þar af leiðandi amast enginn við ruslasöfnuninni sem hún þó sjálf kannast ekki við að sé neitt vandamál. Konan stóð áður í áralöngum deil- um við nágranna sína þar sem hún bjó í lítilli kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi í borginni. Þar sankaði konan að sér drasli og rusli í íbúð sína og á sam- eign hússins. Kerfið virðist ekki hafa neinar lausnir fyrir konu í þessari stöðu og því sér hún um sig sjálf, sef- ur úti en hefst við á daginn í Dagsetri fyrir heimilislausa. Fólk tengt kon- unni, bæði ættingjar og aðrir, sem DV hefur rætt við segir allt hafa verið reynt til þess að hjálpa henni en hún vilji ekki hjálp og engin úrræði virð- ist duga. Það sé því lítið hægt að gera, henni virðist líða ágætlega utangarðs í samfélaginu. Vill fá að vera í friði „Ég bý ekki beint hér, ég sef bara hérna. Ég vil bara fá að vera í friði, af hverju fæ ég ekki bara að vera í friði?“ segir konan þegar blaðamað- ur og ljósmyndari heimsóttu hana í rjóðrið. Nákvæm staðsetning verður ekki gefin upp hér af virðingu við ósk konunnar um að fá að vera í friði. Í rjóðrinu hefst hún við í öllum veðrum og segist ekki vanta neitt. „Þó að auðvitað myndi ég vilja hafa skjól yfir höfuðið,“ segir hún. Hún segir vera skjólgott í rjóðrinu og hún kvarti ekki, nema þá helst yfir því að hún geti ekki átt neina fína hluti þar sem allt sé tekið frá henni og á þá við að einhverjir komi á svæðið þegar hún er ekki þar og taki það sem verðmætt er. Á peninga en fær ekki leigt Konan er góðleg í fasi, myndar- leg með sérstaklega blá augu. Hún er kappklædd, í allavega tveimur úlpum, þykkum buxum og striga- skóm. Henni segist ekki verða kalt, það sé skjól undir trjánum en hún myndi gjarnan vilja hafa þak yfir höf- uðið. Hún hafi peninga til þess að leigja, það skorti hana ekki en íbúð fær hún ekki til leigu. „Vegna þess að það er búið að eyðileggja mannorð mitt með röngum sögum um mig,“ segir hún og vísar þar í fréttaumfjöll- un, meðal annars í DV, um það þegar fjarlægt var úr íbúð hennar mikið magn sorps og þegar henni var gert samkvæmt dómsúrskurði að selja íbúð sína. Heimilissorp í miklu magni Í rjóðrinu er að finna hundruð rusla- poka í alls kyns litum sem virðast hafa að geyma heimilissorp af ýmsum toga. Á víð og dreif má sjá umbúðir; drykkjarfernur, matarílát, plast, skó og hjól svo eitthvað sé nefnt. Einnig hanga ruslapokar í trjám og konan hefur gert sér einhvers konar fleti úr trjágreinum og ýmsum hlutum og Rjóðrið Konan hverfur í rjóðrið þar sem hún hefst við og hefur gert í 1–2 ár. M y n d ir K r iS ti n n M a g n ú SS o n „Ég bý ekki beint hér, ég sef bara hérna Þorleifur gunnlaugsson segir borgina hafa skyldu gagnvart konunni: „Þarf að fá skjól“ Það gengur auðvitað ekki að konan skuli sofa úti í öllum veðrum, hún þarf að fá skjól yfir höfuðið,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna og nefndarmaður í velferðarráði. Þorleifur þekkir til málefna konunn- ar og telur að borginni beri skylda til þess að útvega henni húsaskjól. „Það sem ég hef lagt til er að það verði sett upp færanlegt hús eins og er úti á Granda. Það yrði þá fylgst með því ef hún væri að safna og ruslið þá tekið inn á milli,“ segir hann. Fjögur hús eru úti á Granda en þau eru hugsuð sem búsetuúrræði fyrir heimilislausa sem glíma við fíknivandamál. Þorleifur sér fyrir sér sambærilega lausn fyrir konuna en þó yrði húsið staðsett annars staðar þar sem hún er ekki með fíknivandamál. „Ég held að venjuleg úrræði henti ekki þessari konu. Þarna gæti hún safnað inn til sín en það yrði bara séð til þess að það yrði tekið reglulega og fylgst með henni,“ segir hann. „Borgin hefur skyldur gagnvart fólki í hús- næðismálum og við eigum að leysa ákveðin félagsleg vandamál þó við sinnum ekki geðheilbrigðismálum sem slíkum. Þetta dæmi er undan- tekning sem þarf að sinna en borgin er bara svo ósveigjanleg í öllu svona – það þurfa allir að passa í einhverja kassa. Þarna er verkefni fyrir borgina að horfa út fyrir kassann og leysa,“ segir hann. „Auðvitað er ekki hægt að horfa upp á konuna þarna, hún sefur þarna úti í öllum verðum, það er bara í verstu veðrum sem hún fer í Konukot,“ segir hann. „Ég er búinn að ræða þetta við borgarstjóra, formann velferð- arráðs, mannréttindastjóra og fjöldann allan af fólki. Ég hef sett mér það að reyna stuðla að því að málið verði leyst áður en það vetrar,“ segir Þorleifur. „Auðvitað viljum við frekar vita af henni inni í húsnæði þar sem er hiti og rafmagn heldur en undir berum himni. Borgin ber mjög sterkar skyldur til þess að allir hafi þak yfir höfuðið.“ Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Fólkið á götunni 2.hluti 12. júlí 2013 DV hefur kynnt sér líf fólksins á götunni. Þann 12. júlí síðast- liðinn var umfjöllun um útigangsfólk í Reykjavík. 180 Um 180 manns teljast til heimilislausra á Íslandi. Flestir þeirra stríða við fíknivandamál og flestir njóta úrræða á vegum borgarinnar en fjölmörg eru í boði. hefur lagt yfir það ábreiður og plast. Hér virðist hún hafa skapað sér sína eigin veröld þar sem hún hefur rað- að rusli alls staðar í kringum sig. Að- spurð um ruslið gefur konan lítið fyrir það en segist stundum hafa safn- að flöskum og tekið með sér brauð í poka en vill þó ekki viðurkenna að hún safni sorpi þó að ummerki um það séu skýr. Hún tekur það fram að hún hafi ekkert við okkur að ræða og vilji bara fá að vera í friði. Greini- legt er þó að hún hefur borið hingað rusl og það líklega í talsverðan tíma miðað við magn þess. gat ekki hætt að safna Konan bjó áður í húsi í miðbænum en Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi hana árið 2011 til þess að selja eignarhlut sinn í húsinu en fyrir dómsúrskurðinn hafði henni verið meinað að búa í húsinu. Í tæp- lega þrjátíu ár safnaði hún rusli sem myglaði í íbúðina og lagði mikla ólykt frá henni. Ruslinu fylgdu meindýr sem fóru einnig inn í hin- ar íbúðir hússins. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli þess efnis að konan skyldi hætta að safna rusli varð hún ekki við þeirri beiðni. Heilbrigðiseftirlit

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.