Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Síða 11
Reykjavíkur, byggingarfulltrúi,
borgarlæknir, landlæknisembættið
og aðrir opinberir aðilar höfðu þá
þurft að hafa afskipti af konunni.
Húsfélagið í húsinu hafði ítrekað
skorað á hana að láta af söfnun
inni og sinna eðlilegu viðhaldi, án
árangurs. Því fór svo að hún þurfti
að selja eignarhlut sinn í húsinu.
Nokkrum sinnum á þeim tæplega
þrjátíu árum sem konan bjó í íbúð
inni var hreinsað úr henni gegn
hennar vilja. Árið 2000 var 170
svörtum ruslapokum af sorpi hent
úr íbúðinni sem var 30 fermetrar.
Þegar íbúðin var að lokum tæmd
var hún gjörsamlega ónýt, veggir
og gólf gegnsósa og hún úrskurðuð
óíbúðarhæf.
Harkalegar aðgerðir
Aðspurð viðurkennir konan að um
gengi hennar hafi ekki verið góð í
íbúðinni en ekkert í líkingu við það
sem sagt hafi verið og henni finnst
aðgerðirnar gegn sér hafa verið
harkalegar. „Að ryðjast inn til mín
rétt fyrir jól, taka allt út, henda öllu
dótinu mínu, persónulegum mun
um. Það finnst mér ekki rétt að
gera,“ segir hún og þvertekur fyrir
að rottugangur hafi verið í húsinu
vegna söfnunaráráttu hennar. „Það
er bara ekki rétt,“ segir hún. Konan
vill þó ekki mikið ræða þetta og seg
ir óþarft fyrir fólk að hafa áhyggj
ur af henni þar sem hún bjargi sér
sjálf og það er það sem hún vill. Fá
að vera í friði.
Ruslaveröld í rjóðrinu
Eftir að konan flutti úr íbúðinni
fékk hún íbúð frá Félagsmálastofn
un gegn því að hún yrði undir eftir
liti. En hún stoppaði stutt þar við
þar sem hún hélt upp sama vana,
safnaði rusli í íbúðina og missti
hana. Síðan þá hefur hún verið hér
í rjóðrinu sínu þar sem hún hefur
byggt upp sína eigin ruslaveröld.
Hér fær hún að vera í friði og segir
það vera það eina sem hún biðji
um. Hún eigi ættingja sem hún er
ekki í reglulegu sambandi við en
hér líði henni bara ágætlega. „Ég
gæti alveg fengið að sofa í Konu
koti en ég vil vera hér,“ segir hún og
kveður okkur. „Ég ætla að fara gera
mig tilbúna fyrir daginn,“ segir hún
og afþakkar far. „Mér finnst gott að
labba bara, ég fæ mér súrmjólk eða
eitthvað á leiðinni,“ segir hún og
hverfur inn í rjóðrið sitt og klárar
morgunverkin áður en hún heldur
af stað inn í daginn.
Í DV á föstudag verður haldið
áfram með umfjöllun um fólkið
á götunni. Þá kynnumst við „ná
grönnum“ konunnar, útigangs
fólki sem hefst við í öðru rjóðri við
hliðina á henni. n
Fréttir 11Miðvikudagur 28. ágúst 2013
Björgvin fallinn frá
n Glímdi við erfið veikindi strax frá fæðingu
B
jörgvin Arnar Atlason, sex ára
drengur sem barðist alla tíð
við marga illvíga sjúkdóma,
lést á mánudag á sjúkrahúsi.
Fyrirhuguð styrktarhátíð til handa
móður hans mun fara fram á sunnu
daginn kemur eins og til stóð.
Björgvin litli glímdi við mikil
veikindi strax frá fæðingu en hann
fæddist með afar sjaldgæfan gena
galla, Geleophysic dysplasia, sem
olli margvíslegum afbrigðileika.
Hann gekkst meðal annars undir
þrjár hjartaaðgerðir og fimm hjarta
þræðingar auk þess sem fjarlægja
þurfti annað lungað vegna sýkingar.
Þá þurfti Björgvin að fá sonduhnapp
í magann vegna næringarleysis fyrir
ári og þurfti á súrefni að halda allan
sólarhringinn.
Veikindi Björgvins hafa kostað
tíma og mikla fjármuni af hálfu ein
stæðrar móður hans, Ásdísar Gott
skálksdóttur, og hafði verið skipulögð
fjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu
að Sunnubraut í Keflavík á sunnu
daginn kemur henni til styrktar. Að
standendur ætla að halda sínu striki
og halda skemmtunina þrátt fyrir
andlát Björgvins en þar koma fram
ýmsir þekktir listamenn á borð við
Björgvin Halldórsson, Sveppa, Eirík
Fjalar, Valdimar og Jón Jónsson svo
fáir séu nefndir. Miðaverð er 1.000 kr.
og fá yngstu börnin frítt inn en frjálst
er að láta meira af hendi rakna. n
B
irgir Þór Runólfsson, fjárfest
ir og dósent í hagfræði við
Háskóla Íslands, fékk afskrif
að erlent lán til hlutabréfa
kaupa á meðan hann var
stjórnarmaður í Sparisjóði Keflavíkur
fyrir hrunið 2008. Þetta kemur fram
í svartri skýrslu um Sparisjóðinn í
Keflavík sem endurskoðunarfyrir
tækið PwC vann um starfsemi sjóðs
ins. Fjölmiðillinn Kjarninn gerði
skýrsluna opinbera fyrir helgi.
Birgir Þór var sá háskólakennari
á Íslandi sem var hvað umsvifa
mestur í atvinnulífinu á árunum
fyrir hrunið 2008. Félög hans skilja
eftir sig skuldir upp á mörg hund
ruð milljónir króna. Orðrétt segir
um afskriftina í skýrslunni: „Birgir
Þór Runólfsson fékk niðurfellingu
á erlendu láni sem aðrir viðskipta
vinir sparisjóðsins hafa almennt
ekki fengið.“ Ekki er tekið fram
hvaða hlutabréf Birgir Þór keypti
fyrir lánin en í skýrslu PwC kemur
fram að hann hafi verið skráður
persónulega fyrir lánum upp á tæp
lega 30 milljónir króna við spari
sjóðinn.
Rúmlega 550 milljóna afskrift
DV greindi frá því í apríl síðastliðinn
að Íslandsbanki og Landsbanki
þyrftu að afskrifa samtals ríflega 554
milljóna króna kröfur sínar í þrotabú
fjárfestingafélagsins H60 ehf. sem
var í helmingseigu Birgis Þórs og
eigin konu hans. Engar eignir fund
ust í búinu við gjaldþrotaskiptin.
Lánveitingar til þessa félags voru
meðal þeirra sem Fjármálaeftirlitið
gerði alvarlegar athugasemdir við
í skýrslu sinni um störf Sparisjóðs
Keflavíkur. Einungis voru veð fyrir
um þriðjungi lána félaga Birgis Þórs
við Sparisjóðinn í Keflavík sam
kvæmt skýrslu PwC.
Birgir Þór svaraði ekki fyrirspurn
um DV varðandi gjaldþrot félagsins.
Félagið H60 ehf. var stofnað utan
um stofnfjárbréfakaup í Sparisjóði
Keflavíkur árið 2007 en það var úr
skurðað gjaldþrota þann 13. sept
ember 2012 með úrskurði Héraðs
dóms Reykjaness..
Skuldaði meira en 800 milljónir
Í skýrslu PwC kemur fram að skuldir
Birgis Þórs, og félaga sem tengdust
honum, við sparisjóðinn hafi numið
rúmlega 814 milljónum króna árið
2010. Lánveitingar til Birgis Þórs og
félaga hans voru ekki skilgreind sem
ein áhættuskuldbinding samkvæmt
skýrslunni. Samtals átti Birgir Þór
sex eignarhaldsfélög sem fengu lán
hjá sparisjóðnum og fengu þessi fé
lög einnig afskrifuð lán þar sem
Birgir var sjálfur í persónulegum
ábyrgðum, samkvæmt skýrslunni.
Félag í eigu Birgis Þórs, Fuglavík ehf.,
fékk til dæmis 150 milljóna króna af
skrift af lánum sínum hjá sparisjóðn
um árið 2010 þrátt fyrir að Birgir Þór
væri persónulega ábyrgur fyrir þeim.
Ljóst er því að heildarafskriftir til
félaga Birgis Þórs Runólfssonar, og
hans persónulega, hjá Sparisjóðn
um í Keflavík nema mörg hundruð
milljónum króna. Þar að auki fékk
hann niðurfelldar persónulegar
ábyrgðir vegna lána sem hann hafði
tekið hjá sjóðnum.
Ekki náðist í Birgi Þór við vinnslu
fréttarinnar. n
Fékk afskrift sem
aðrir fengu ekki
n Lán til Birgis Þórs frá SpKef var afskrifað
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Birgir Þór Runólfs-
son fékk niðurfell-
ingu á erlendu láni sem
aðrir viðskiptavinir spari-
sjóðsins hafa almennt
ekki fengið.
Fékk afskrifað Stjórnarmaður í Spari-
sjóðnum í Keflavík, Birgir Þór Runólfsson,
fékk afskrifað erlent lán sem honum
hafði verið veitt til hlutabréfakaupa.
n Kona á sjötugsaldri sefur úti allan ársins hring n Haldin söfnunaráráttu n Vill fá að vera í friði
Heimilissorp
Umbúðir utan af mat
og annað almennt
heimilissorp er að finna
á víð og dreif um rjóðrið.
Ruslið
Eins og sést
er mikið rusl í
rjóðrinu.
Árið 2000 Fjallað var um það
þegar að 170 svartir ruslapokar af sorpi voru
bornir út úr 30 fermetra íbúð konunnar.
Lítil hetja Fyrirhuguð fjölskyldu-
samkoma á sunnudag mun fara
fram þrátt fyrir andlát Björgvins.