Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Page 13
Fréttir 13Miðvikudagur 28. ágúst 2013 Norðmenn á móti ESB Sjö af hverjum tíu Norðmönnum myndu segja nei í þjóðaratkvæða- greiðslu um aðild að Evrópu- sambandinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem rannsóknarfyrirtækið Sentio framkvæmdi fyrir skemmstu. Niðurstöðurnar vekja athygli í ljósi þess að Íhaldsflokkurinn nýt- ur mests fylgis í skoðanakönnun- um fyrir þingkosningarnar sem fram fara 9. september næstkom- andi. Flokkurinn styður aðild að Evrópusambandinu. Norð- menn felldu aðild að Evrópusam- bandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1972 þegar 53,5 prósent landsmanna kusu gegn aðild en 46,5 prósent með aðild. Í þjóðarat- kvæðagreiðslu um sama mál árið 1994 var mjórra á mununum; 47,8 prósent vildu ganga í sambandið en 52,2 prósent vildu það ekki. Heilbrigðiskerfi í lamasessi Spænskir sjúklingar hafa sjaldan eða aldrei þurft að bíða jafn lengi eftir aðgerðum á sjúkrahúsum landsins. Á síðasta ári voru 571.395 sjúklingar settir á biðlista sem er mesti fjöldi frá árinu 2004 þegar farið var að taka upplýs- ingarnar saman. Meðalbiðtími lengdist úr 76 dögum í júní 2012 í 100 daga í desember 2012. Lög- um samkvæmt eiga sjúklingar ekki að þurfa að bíða lengur en sex mánuði eftir vissum aðgerð- um. Má þar nefna mjaðmaskipta- aðgerðir en 27 prósent sjúklinga þurfa að bíða lengur en í sex mánuði eftir slíkum aðgerð- um. Spánverjar hafa fengið að kenna á efnahagsniðursveiflunni undanfarin ár og glíma við mik- inn skuldavanda. Af þeim sökum hefur verið skorið niður í heil- brigðisþjónustu landsins með fyrrgreindum afleiðingum. Hæsta blokk N-Evrópu Til stendur að reisa 75 hæða íbúðabyggingu í suðurhluta Stokkhólms, höfuðborg Svíþjóðar. Þegar framkvæmdum lýkur verður hún hæsta íbúðabygging Norður- Evrópu. Sten Nordin, borgarstjóri Stokkhólms, kynnti bygginguna á blaðamannafundi sem haldinn var á mánudag. Hæsta íbúða- bygging Svíþjóðar er í Malmö, Turning Torso, en hún er 54 hæð- ir og 190 metra há. Borgaryfirvöld í Gautaborg tilkynntu svo fyrir skemmstu að framkvæmdir við 60 hæða íbúðablokk muni hefjast brátt en byggingin verður í Lind- holmen. Áætlanir gera ráð fyrir að hún verði tilbúin árið 2021. Kúba beitt þrýstingi n Ástæðan fyrir því að Edward Snowden var ekki um borð í flugvélinni Á stæða þess að uppljóstrarinn Edward Snowden fór ekki til Kúbu eftir að hann lenti á flug- vellinum í Moskvu í júní síð- astliðnum er sú að bandarísk yfirvöld beittu yfirvöld á Kúbu þrýstingi. Frá þessu greinir breska blaðið Guardian og vitnar í umfjöllun rússneska dag- blaðsins Kommersant. Þann 24. júní síðastliðinn var greint frá því að Snowden ætti pant- aða ferð til Kúbu og yrði um borð í flugvél sem færi þangað sama dag. Af hingað til ókunnum ástæðum var Snowden ekki um borð í vélinni eins og til stóð. Svo fór að Snowden fékk hæli í Rússlandi til eins árs. Að sögn Kommersant var hætt við fyrirhugaða ferð Snowdens til Kúbu á síðustu stundu. Var yfirvöldum í Rússlandi sagt að hleypa Snowden ekki um borð í vélina eftir að banda- rísk yfirvöld höfðu samband við yfir- völd í Kúbu. Ekki kemur fram hvers konar þrýstingi bandarísk yfirvöld beittu. Sem kunnugt er lak Snowden upplýsingum um persónunjósnir Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkj- anna til fjölmiðla og hafa bandarísk yfirvöld viljað fá hann framseldan til Bandaríkjanna. Að sögn Kommersant var Snowden í nokkra daga í sendi- ráði Rússa í Hong Kong í Kína áður en hann flaug til Moskvu. Hafði Snowden, að sögn Kommersant, lýst áhuga á að fara til Suður-Ameríku frá Rússlandi. „Sú leið sem hann ákvað að velja kom okkur á óvart þar sem við buðum honum ekki að koma til Rúss- lands,“ segir ónafngreindur embættis- maður í samtali við blaðið. n Fékk hæli Að lokum fór svo að yfirvöld í Rússlandi veittu Snowden hæli. Hætt var við ferðina til Kúbu á síðustu stundu. T vær breskar konur hafa ver- ið fastar í Kína í meira en tvo mánuði eftir að draumafríið þeirra breyttist í martröð. Modupe Idowu, 59 ára, og vinkona hennar, Esther Jubril Badmos, 48 ára, voru handteknar eft- ir að hafa flækst inn í deilur í skóbúð í borginni Guangzhou. Þær þurftu að dúsa í ömurlegum aðstæðum í gæsluvarðhaldsfangelsi í 38 daga og þrátt fyrir að þeim hafi nú verið sleppt eru þær enn fastar í landinu þar sem að vegabréfsáritanir þeirra runnu út meðan á fangelsisvistinni stóð. Kínversk yfirvöld neita að láta þær hafa nýjar áritanir. Réðust á hana Dóttir Modupe segir í samtali við Daily Mail að upphaf vandræð- anna hafi verið þegar konurnar voru staddar í skóbúð. Þar hafi önn- ur konan, Esther, beðið um að láta breyta pöntun sem hún hafði gert fyrr í ferðinni í þessari búð. Starfs- menn búðarinnar brugðust illa við þessu af einhverjum ástæðum og réðust að konunni. „Þó að Ester hafi reynt að verja sig þá var henni hrint í gólfið, sparkað í hana og hún bar- in. Það var líka rifið í hárið á henni og heilu hárflyksurnar með,“ segir dóttir Modupe og heldur áfram: „Öryggis- vörður læsti þær inni í herbergi inn af búðinni og annar maður, sem við teljum vera bróður búðareigandans, kom inn í herbergið og kýldi Esther.“ Þegar konurnar sluppu úr búð- inni og fóru á lögreglustöðina voru vegabréf þeirra tekin og þær látnar skrifa undir skjöl sem þær skyldu ekki, áður en þær voru settar í klefa án matar í heila nótt. Daginn eftir voru þær svo færðar í gæsluvarð- haldsfangelsi. Frú Idowu, var sett í klefa með sex öðrum konum, neydd til að sofa á tréplötu og fara á kló- settið fyrir framan aðra fanga. Á meðan var farið með Esther á spítala þar sem var gert að sárum hennar. Komast ekki úr landi Síðan þetta gerðist hafa börn Modupe gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að hjálpa móður sinni en það hefur gengið illa. Þau hafa borgað um fjögur þúsund pund í lögfræðiaðstoð til þess að reyna fá hjálp fyrir móður sína auk þess sem tvö þeirra hafa flogið til Kína. Báð- um konunum var sleppt úr haldi 29. júlí en síðan þá hafa þær staðið í stappi við kínversk yfirvöld um að fá vegabréfsáritun til þess að kom- ast úr landi auk þess sem búðareig- andinn heimtaði 20 þúsund pund fyrir skemmdir sem konurnar höfðu átt að hafa valdið í búðinni en á end- anum var samið um upphæðina og þær borguðu 4.500 pund. Þær munu ekki fá vegabréfsáritanir fyrr en þær geta framvísað gögnum um að kær- ur gegn þeim hafi verið felldar niður. Hræddar um móður sína Ekki hefur enn tekist að afla þeirra gagna sem þarf til þess að koma konunum úr landi. Dóttir Modupe segist varla hafa þekkt móður sína þegar hún kom úr fangels- inu. „Þegar ég sá hana fannst mér hún líta út eins og gömul kona. Hún gat ekki gengið almennilega. Hún var svo brothætt og horuð enda hafði hún misst nokkur kíló þar sem hún borðaði nánast ekki neitt meðan hún var þarna inni.“ Dóttirin er nú komin aftur til Bretlands og bíður þess að móð- ir hennar komist aftur heim. Hún segir það hafa verið hryllilegt að horfa upp á móður sína í þessum aðstæðum. „Ég get eiginlega ekki lýst þessari reynslu með orðum. Við erum algjörlega ráðvillt. Þetta er eins og að horfa á hryllings- mynd.“ Systir hennar, Julie, tek- ur í sama streng. „Sársauki okkar er mjög raunverulegur. Ég er búin að gráta upp á hvern einasta dag. Ég er búin að þurfa að vera mik- ið frá vinnu því ég hef svo miklar áhyggjur af mömmu.“ Breska utanríkisráðuneytið vinnur að lausn málsins. n n Breskar konur komast ekki frá Kína n Flæktust í deilur í skóbúð Draumferðalagið varð að martröð Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Þó að Ester hafi reynt að verja sig þá var henni hrint í gólf- ið, sparkað í hana og hún barin. Það var líka rifið í hárið á henni og heilu hárflyksurnar með. Breyttist í martröð Ferðalag kvennanna breyttist í martröð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.